Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Qupperneq 32
Öryggi 26. október 2018KYNNINGARBLAÐ Jón Viðar Arnþórsson er meðal annars þekktur fyrir að hafa stofnað íþróttafélagið Mjölni en í dag er hann með nýtt félag sem heitir ISR Matrix. Jón Viðar hefur staðið fyrir sjálfsvarnarnámskeiðum fyrir konur árum saman. Sunnudaginn 25. nóvember hefst nýtt námskeið, ISR Clutch, sem er ætlað fyrir karla og konur frá 16 ára aldri. „Hingað til hef ég bara kennt karlmönnum öryggistök og bar- dagaíþróttir en þetta verður mun víðtækara, þarna læra þeir allan pakkann. Allt frá því að slá frá sér og verja sig yfir í að beita nánast hvaða brögðum sem er, allt eftir því hvers aðstæður krefjast. Kerfið er hannað með það í huga að á götunni, í villtum heimi ofbeldis, þá gilda engar reglur og það verður að taka mið af því. Líkja má þessu við MMA fyrir götuna. Inni í þessari kennslu er meðal annars beiting vopna og mikil taktík,“ segir Jón Viðar. Á fyrsta kennsludegi verður kennt sex tíma grunnnámskeið og fólk getur síðan haldið áfram inn í stig- vaxandi framhaldsnámskeið ef það kýs svo. Námskeiðið reynir bæði á andlegan og líkamlegan styrk. „Þetta kerfi er notað af sérsveit bandaríska flughersins og er gríðarlega öflugt. Áherslan er á að verja þig og yfir- buga árásarmann með mjög skjótum hætti,“ segir Jón. Lokuð sjálfsvarnarnámskeið fyrir konur Jón Viðar hefur haldið sjálfsvarnar- námskeið fyrir konur allt frá árinu 2011 en undanfarin misseri hefur orðið mikil þróun í þessari kennslu hans: „Síðasta eina og hálfa árið hef ég verið að kenna ISR CAT kerfið sem er miklu betra en það sem ég notaði áður. Þetta nær yfir víðtækara svið og hefur verið þróað fyrir stelpur í bandaríska hernum sem eru sendar sem njósnarar á hættuleg svæði í Mexíkó, Afganistan, Íran og víðar, þar sem þær geta þurft að bjarga sér úr lífshættulegum aðstæðum.“ Jón Viðar segir að þessi þjálfun sé orðin mjög yfirgripsmikil: „Við erum með grunnnámskeið sem allar kon- urnar þurfa að fara í gegnum fyrst, en það tekur 6 klukkutíma. Síðan tekur við framhaldsþjálfun fyrir konur sem er mjög vinsæl. Munurinn á þessu og sambærilegum námskeiðum sem hafa verið kennd hér undanfarin ár er sá að þú lærir ekki bara að slá frá þér eða losa þig úr tökum heldur líka að verjast í átökum inni í bifreið, inni í lyftu, lærir að losa þig ef þú ert frelsissvipt og bundin – lærir að beita ýmsum vopnum ef þess þarf, egg- vopnum og skotvopnum. Einnig lær- irðu taktík til að komast úr slæmum aðstæðum og einnig að fyrirbyggja þær. Næsta grunnnámskeið fyrir konur verður haldið sunnudaginn 2. desem- ber og í kjölfarið taka við framhalds- námskeið fyrir þær sem það vilja. Nánari upplýsingar og skráning eru á vefsíðunni isrmatrix.is. Sjá einnig Facebook-síðuna ISR Matrix – Iceland. Kennsla fer fram í húsnæði ISR Matrix að Stórhöfða 17, Reykjavík. Símanúm- er er 862 0808. ISR MATRIX: Sjálfsvörn við hættulegustu aðstæður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.