Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Síða 34
Öryggi 26. október 2018KYNNINGARBLAÐ Vörn öryggiskerfi var stofn-að árið 2008 af Jóni Á. Hermannssyni og hefur síðan vaxið og dafnað og er í dag í viðskiptum við 1200 fyrirtæki auk fjölda heimila. Átta manna teymi sér um sölu og uppsetningu á myndavélum um allt land. „Vörn hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á alls kyns tækninýj- ungar og erum við ávallt með nýjasta og besta búnaðinn frá heimsþekktum framleiðendum. Við vorum með þeim fyrstu sem buðu uppá þann möguleika að skoða myndavélar í gegnum síma,“ segir Jón Ágúst. „Við erum með vöru- merkið Dahua og bjóðum upp á 4k myndavélar sem eru 8 megapixla með nýrri gerð af nætursjón sem heitir Starvis. Hún virkar þannig að myndin verður ekki svarthvít að nóttu til, hún heldur lit og þannig er auðveldara að greina einstaklinga í miklu myrkri. Og 4k myndavélar eru það besta sem hægt er að fá í dag í almennum vélum, en þær eru samt á viðráðanlegu verði. Vélarn- ar henta vel bæði fyrir fyrirtæki og heimili.“ Fyrir heimili býður Vörn upp á 4 megapixla myndavél sem kostar 15.900 kr. auk virðisaukaskatts, einnig er 4K myndavél í boði. Fyrirtæki geta leitað tilboða, „við setjum upp og þjónustum stærri sem smærri fyrirtæki.“ Snjalltæknin vinsælust í dag Snjalltæknin er í boði hjá Vörn og langflestir eru að snjallvæðast. „Það er gríðarlega vinsælt, það vilja allir geta haft stjórn á hlutun- um í gegnum símann,“ segir Jón Ágúst. „Þú getur skoðað mynda- vélarnar í gegnum símann, getur kveikt og slökkt á þjófavörninni, kaffivélinni, heita pottinum í sum- arbústaðnum svo dæmi sé tekið, það er hægt að gera allt með þessu kerfi í dag. Ef þú ert með þjófavörn og myndavélakerfi þá ertu fljótur að sjá í símanum hvað er að gerast, þú ert fljótari en ör- yggisfyrirtækið er að hringja í þig. Þannig getur þú sparað þér stórar upphæðir í vöktun. Við erum leiðandi í tækninýj- ungum í öryggismálum og verslum við bestu fyrirtæki í heimi. Þjón- ustustöðin okkar er í Reykjavík, en við setjum upp öryggiskerfi um allt land.“ Gæðaeftirlitskerfi fyrir útgerðar- fyrirtæki Fyrir útgerðarfyrirtæki býður Vörn upp á gæðaeftirlitskerfi og er það komið upp hjá mörgum fyrirtækj- um og er framarlega þar, sem dæmi má nefna Þorbjörn í Grinda- vík, GPG Seafood og Fiskmarkað Íslands. „Þessi fyrirtæki og fleiri nota myndavélakerfi sem gæða- eftirlitskerfi fyrir fiskvinnsluna og fleira, enda geta öryggismyndavél- ar hjálpað til við margt.“ Myndavélakerfi – vörn gegn ein- elti og skemmdarverkum í skólum „Vörn hefur sett upp mynda- vélakerfi í fjölmarga skóla á höf- uðborgarsvæðinu og hefur það reynst gott vopn í baráttunni gegn einelti. Skemmdarverk á skóla- lóðum geta kostað mikla fjármuni og eru nánast úr sögunni þegar myndavélar eru til staðar,“ segir Jón Ágúst. Allar upplýsingar um Vörn ör- yggiskerfi má fá í síma 561-5600, netfanginu vorn@vorn.is og á heimasíðunni www.vorn.is. VÖRN ÖRYGGISKERFI: Leiðandi í öryggismálum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.