Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Side 35
Öryggi 26. október 2018 KYNNINGARBLAÐ
Boðleið hefur lengi sérhæft sig í síma og netmálum fyrir lítil sem stór fyrirtæki og hótel og hef-
ur kappkostað að veita fyrirtækjum
heildarþjónustu á þeim sviðum. Núna
hefur Boðleið bætt við sig öryggiskerf-
um og myndaeftirlitsbúnaði sem nýtast
jafnt fyrirtækjum sem og einstaklingum
sem vilja hafa fullkomið öryggiskerfi
án þess að greiða endilega fyrir það
mánaðarlegt gjald.
Einföld og þráðlaus kerfi
Einfaldleikinn er í fyrirrúmi varðandi
þau öryggiskerfi sem Boðleið veitir.
Þorvaldur Harðarson, sölustjóri fer yfir
það:
„Allir skynjarar eru þráðlausir,
glugga/hurðaskynjarar, hreyfiskynjarar
sem henta í ýmis rými, með gæludýra-
stillingu, vatnsskynjarar, reykskynjarar
og gasskynjarar. Allt þráðlaust og með
rafhlöðu sem þarf að skipta um á 6 til
12 mánaða fresti, eftir því hvaða búnað
er um að ræða en kerfið gefur tilkynn-
ingu þegar skipta þarf um rafhlöður.
Helsti kosturinn við þetta er að ekki
þarf að draga lagnir að öllum skynjur-
um og geta því vel flestir sett kerfið upp
sjálfir. Stjórnborðið getur verið á vegg
eða með borðstandi og þarf bara raf-
magn. Öllu er síðan stýrt í gegnum app
og kerfið sendir þér tilkynningar í tölvu-
pósti, í gegnum appið eða með SMS
sendingum allt eftir því hvað hentar.
Kerfið er afar sveigjanlegt og þægi-
legt í notkun. Þú getur til dæmis látið
börnin þín hafa snertilykkla sem þau
bera einungis að kerfinu til að slökkva
á því og þú færð tilkynningu senda um
að barnið hafi skilað sér heim.“
Grunnpakkinn í öryggiskerfum kostar
aðeins 22.900 kr.
Myndavélakerfi fyrir heimili og sum-
arhús
Það er alltaf að verða algengara að
fólk vilji setja upp myndavélakerfi við
heimili sín eða sumarbústaði, sérstak-
lega utandyra og býður Boðleið upp
á frábært kerfi sem uppfyllir þarfir
flestra þegar kemur að slíku.
„Við bjóðum upp á einfalt kerfi og
pakkatilboð með t.d. fjórum mynda-
vélum og innbyggðum skynjurum í
myndavélunum ásamt móðurstöð.
Vélarnar geta allar verið úti. Upptaka
næst á harðan disk og hægt er að
uppfæra í skýið með Google Drive eða
Dropbox. Þessi pakki kostar frá 60 þús-
und krónum,“ segir Þorvaldur.
Boðleið er í sambandi við virta og
trausta birgja til að tryggja gæðabún-
að. Meðal annars selur Boðleið Yealink
sem eru líklega mest seldu IP símar á
Íslandi í dag. Ennfremur býður Boðleið
upp á 3CX símkerfi sem er afar þekkt
og útbreitt.
Nánar má skoða vöruúrvalið í
vefverslun Boðleiðar á voruland.is en
heimasíða Boðleiðar er bodleid.is. Til að
panta þjónustu eða fá nánari upp-
lýsingar eða tilboð er gott að hringja í
síma 535 5200 eða senda tölvupóst á
netfangið sala@bodleid.is.
Öryggis- og myndavélakerfi
frá Boðleið