Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Síða 35
Öryggi 26. október 2018 KYNNINGARBLAÐ Boðleið hefur lengi sérhæft sig í síma og netmálum fyrir lítil sem stór fyrirtæki og hótel og hef- ur kappkostað að veita fyrirtækjum heildarþjónustu á þeim sviðum. Núna hefur Boðleið bætt við sig öryggiskerf- um og myndaeftirlitsbúnaði sem nýtast jafnt fyrirtækjum sem og einstaklingum sem vilja hafa fullkomið öryggiskerfi án þess að greiða endilega fyrir það mánaðarlegt gjald. Einföld og þráðlaus kerfi Einfaldleikinn er í fyrirrúmi varðandi þau öryggiskerfi sem Boðleið veitir. Þorvaldur Harðarson, sölustjóri fer yfir það: „Allir skynjarar eru þráðlausir, glugga/hurðaskynjarar, hreyfiskynjarar sem henta í ýmis rými, með gæludýra- stillingu, vatnsskynjarar, reykskynjarar og gasskynjarar. Allt þráðlaust og með rafhlöðu sem þarf að skipta um á 6 til 12 mánaða fresti, eftir því hvaða búnað er um að ræða en kerfið gefur tilkynn- ingu þegar skipta þarf um rafhlöður. Helsti kosturinn við þetta er að ekki þarf að draga lagnir að öllum skynjur- um og geta því vel flestir sett kerfið upp sjálfir. Stjórnborðið getur verið á vegg eða með borðstandi og þarf bara raf- magn. Öllu er síðan stýrt í gegnum app og kerfið sendir þér tilkynningar í tölvu- pósti, í gegnum appið eða með SMS sendingum allt eftir því hvað hentar. Kerfið er afar sveigjanlegt og þægi- legt í notkun. Þú getur til dæmis látið börnin þín hafa snertilykkla sem þau bera einungis að kerfinu til að slökkva á því og þú færð tilkynningu senda um að barnið hafi skilað sér heim.“ Grunnpakkinn í öryggiskerfum kostar aðeins 22.900 kr. Myndavélakerfi fyrir heimili og sum- arhús Það er alltaf að verða algengara að fólk vilji setja upp myndavélakerfi við heimili sín eða sumarbústaði, sérstak- lega utandyra og býður Boðleið upp á frábært kerfi sem uppfyllir þarfir flestra þegar kemur að slíku. „Við bjóðum upp á einfalt kerfi og pakkatilboð með t.d. fjórum mynda- vélum og innbyggðum skynjurum í myndavélunum ásamt móðurstöð. Vélarnar geta allar verið úti. Upptaka næst á harðan disk og hægt er að uppfæra í skýið með Google Drive eða Dropbox. Þessi pakki kostar frá 60 þús- und krónum,“ segir Þorvaldur. Boðleið er í sambandi við virta og trausta birgja til að tryggja gæðabún- að. Meðal annars selur Boðleið Yealink sem eru líklega mest seldu IP símar á Íslandi í dag. Ennfremur býður Boðleið upp á 3CX símkerfi sem er afar þekkt og útbreitt. Nánar má skoða vöruúrvalið í vefverslun Boðleiðar á voruland.is en heimasíða Boðleiðar er bodleid.is. Til að panta þjónustu eða fá nánari upp- lýsingar eða tilboð er gott að hringja í síma 535 5200 eða senda tölvupóst á netfangið sala@bodleid.is. Öryggis- og myndavélakerfi frá Boðleið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.