Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Side 36
Öryggi 26. október 2018KYNNINGARBLAÐ
Optima ehf. var stofnað árið 1953 og hefur allar götur síðan þjónustað fyrirtæki
með skrifstofuvörur. Optima var
fyrsti aðilinn hér á landi til að flytja
inn ljósritunarvélar og síðan þá
hefur þjónustan þróast í takt við
tímann. Í dag er Optima einn af
stærstu sölu- og þjónustuaðilum í
prentbúnaði og prentlausnum og
býður þekkt merki á borð við Ricoh
og Xerox.
Optima býður jafnframt fjöl-
breytt vöruúrval sem tengist öryggi
fyrirtækja og einstaklinga. Má þar
nefna öryggisskápa, munaskápa
og eldtraustar skjalahirslur í öllum
stærðum.
Eldtefjandi öryggisskápar og ör-
yggisskjalaskúffur
Að sögn Hildar Birnu Gunnars-
dóttur, sölustjóra Optima, hefur
sala á öryggisskápum fyrir heimili
farið vaxandi undanfarin ár og tekið
kipp eftir innbrotahrinu undanfarin
misseri. „Við bjóðum einnig upp á
eldtefjandi öryggisskápa sem og
eldtefjandi skjalaskúffur sem henta
vel undir mikilvæg trúnaðargögn,“
segir Hildur. „Eldtöf getur verið í allt
að tvær klukkustundir sem eykur
líkur á að verðmætin verði ekki eldi
að bráð,“ segir hún.
Hún bendir einnig á að sala á
sérstökum öryggisskápum fyrir
hótel hafi vaxið mjög undanfarin ár í
takt við aukna uppbyggingu hótela.
Sem ferðamenn þekkjum við öll þá
tilfinningu að vilja geta treyst á ör-
yggishólfið í herberginu okkar.
Uppgjörsskápur og seðlabox
„Við bjóðum upp á uppgjörsskápa
fyrir fyrirtæki. Starfsmaðurinn ber
eingöngu ábyrgð á að setja uppgjör
dagsins í hólf og fellur það ofan í
læst hólf sem eingöngu yfirmenn
komast í. Enn fremur bjóðum við
upp á sérstök seðlabox fyrir pen-
ingaseðla sem staðsett eru hjá
afgreiðslufólki. Starfsfólk setur þá
verðmætari seðla í boxið í stað
afgreiðsluskúffu,“ segir Hildur. Ef til
þjófnaðar kemur er hindrað að-
gengi að stærstu seðlunum.
„Mjög stór liður í okkar rekstri er
sala á starfsmanna-, nemenda- og
munaskápum til fyrirtækja, stofn-
ana og skóla. Þar á hver starfs-
maður eða nemandi læsanlegt hólf
eða skáp til afnota og getur verið
öruggur um að verðmæti hans
séu á góðum stað meðan á vinnu
stendur.“
Optima selur líka talningarvélar
fyrir banka sem eru
með öryggisskanna
sem skannar falsaða
seðla.
Optima er til húsa
á tveimur stöðum, að
Ármúla 13 í Reykjavík,
og Glerárgötu 28 á
Akureyri. Í Ármúlan-
um er, auk skrifstofu,
sýningarsalur þar
sem hægt er að skoða
allar helstu vörurnar,
öryggisvörur og aðrar
skrifstofuvörur fyrir-
tækisins. Opið er virka
daga frá 9 til 17.
Sjá nánar á optima.
is
OPTIMA:
Verðmæti og trúnaðargögn í
þjófheldum og eldtefjandi hirslum