Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 43
Öryggi 26. október 2018 KYNNINGARBLAÐ
Prolan stoppar ryðið
og endist lengi
Velkomnir í hellinn minn,“ segir Smári Hólm kankvís þegar hann tekur á móti blaða-
manni og myndatökumanni í hús-
næði sínu að Rauðhellu 1 í Hafnar-
firði. Smári Hólm rekur þar lítið en
afar kröftugt ryðvarnarverkstæði
ásamt eiginkonu sinni og samstarfs-
félaga, Sigríði Ragnarsdóttur.
Smári Hólm sinnir jöfnum höndum
bílum fyrir bílaumboðin, bílaflota fyr-
irtækja og bílum einstaklinga. Hann
segir nýja bíla vera ótrúlega fljóta að
ryðga. Annar bíllinn sem búið er að
lyfta upp þarna inni er nýr sýningar-
bíll frá umboði og ekki enn kominn
á númer. Smári sýnir okkur merki-
lega marga ryðbletti undir þessum
splunkunýja bíl. „Það er bara enginn
bíll hannaður fyrir íslenska veðráttu
og saltið á götunum fer strax að éta
sig inn í þá. Auk þess fer ál sérstak-
lega illa og tærist mun hraðar en
stál,“ segir Smári.
Ég bið Smára Hólm um að lýsa
ryðvarnarferlinu:
„Ég tek bílana inn daginn áður
og þurrka þá í miklum hita til að ná
kjörhitastigi áður en Prolan er borið
á þá. Bíllinn verður að vera alveg
skraufþurr og heitur. Áður en ég
hef lokið við að þurrka hann lyfti ég
honum upp, tek dekkin undan hon-
um, tek allt plast utan af honum, tek
pönnurnar undan honum. Svo þegar
ég er búinn að hreinsa allt sem ég
get tekið undan bílnum þá blæs ég
hann með háþrýstilofti.“
Töfraefnið Prolan
Smári Hólm notast eingöngu fyrir
hið frábæra ryðvarnarefni Prolan
en hann er umboðsaðili fyrir það á
Íslandi:
„Ryðið sem er komið til dæmis í
bíl drekkur í sig Prolan-vörnina sem
endist síðan von úr viti sem forvörn
því hún liggur á bílnum og hrindir
stöðugt frá honum vatni. Kemur í
veg fyrir að súrefni og vatn komist
að járninu. Þess vegna skiptir svo
miklu máli að bíllinn sé þurr þegar
borið er á hann.“
Meðfylgjandi myndir sýna dæmi
um ótrúlega virkni Prolan á hluti sem
virðast ónýtir og ekki annað í stöð-
unni en að kaupa nýja. En Prolan
gerir kraftaverk á veðruðum og illa
ryðguðum hlutum.
Af hverju Prolan-ryðvörn?
n Myndar þykka sterka filmu.
n Binst við yfirborð og myndar
sterka vörn í lengri tíma.
n Hægt að stöðva ryðmyndun sem
hafin er.
Yfirborðið myndar filmu og stöðvar
yfirborðsaðgengi súrefnis og vatns.
n Myndar ekki rafleiðni upp að 70kV
og nýtist því vel þar sem glímt er við
rakavandamál í rafmagni.
n Þolir háþrýstiþvott allt að 170bör
eftir að hafa tekið sig.
n Efnið hefur gott þol gegn vægum
sýrum, salti, áburði og fjölmörgum
öðrum tæringarefnum.
n Vottað af NSF til notkunar í mat-
vælaframleiðslu og uppfyllir flokkun
H1 í því tilfelli.
n Hefur góða smureiginleika fyrir
hreyfanlega hluti, m.a. í kopar- og
nælonfóðringu.
n Hefur almennt ekki áhrif á gler,
lakk eða aðra yfirborðsmeðhöndl-
aða fleti.
Alltaf í bílunum
„Ég fæddist með smurkönnu í
annarri hendi og skiptilykilinn í hinni.
Pabbi var mikill jeppakall, ég fór
mikið með honum á fjöll og fékk að
keyra fyrst sjö ára. Ég er búinn að
vera á kafi í jeppamennsku alla mína
ævi en hef tekið mér hlé frá henni
síðustu árin,“ segir Smári.
Verkstæðið hans hér að Rauð-
hellu 1 er opið frá 8 til 17 virka daga.
Gott er að fara inn á heimasíðuna
hjá Smára Hólm
WWW.smariholm.com til að sjá
hvar Rauðhella 1 er í Hafnarfirði.
Panta þarf tíma símleiðis í 788-
5590 og getur biðtíminn verið
nokkuð langur. Smári er eftirsóttur
í bransanum enda hefur hann afar
gott orð á sér:
„Ég kappkosta að vinna af mikilli
fagmennsku. Ég er líka búinn að vera
í jeppa- og bílageiranum alla mína
ævi.“
Sjá nánar á Facebook-síðunni
https://www.facebook.com/prolan-
rydvorn/ og vefsíðunni https://www.
smariholm.com/.
OG EFTIR PROLAN