Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 57
TÍMAVÉLIN 5726. október 2018 RÁIN Hafnargata 19a Keflavík S. 421 4601 FERSK OG FALLEG ÞJÓNUSTAR ÞIG Í MAT OG DRYKK ÞRJÁTÍU HANDTEKNIR EFTIR LEIK VÍKINGS OG FRAM n Bakvörður tók högg fyrir dómara U pp úr sauð á Reykja- víkurmótinu í knattspyrnu vorið 1940 í leik Víkings og Fram. Eftir atvik á vellinum veittust áhorfendur að dómara leiksins og þurfti lögreglan að hand- taka þrjátíu pilta. „Uss, það var bara box,“ sagði ungur piltur sem kom af leik Víkings og Fram á Íþrótta- vellinum. Leikurinn var ró- legur í fyrri hálfleik en í þeim seinni færðist harka í hann. Var allt að verða vitlaust á vellinum og þurfti dómarinn, Gunnar Axelsson, margsinnis að hafa afskipti af leikmönn- um. Um tólf hundruð áhorfend- ur voru á leiknum. Undir lok- in hljóp einn áhorfandi inn á völlinn og ætlaði að slá Gunn- ar en þá kom bakvörður Vík- ings, Gunnar Hannesson, honum til varnar. Endaði það með því að bakvörðurinn fékk bylmingshögg. Lögreglan kom aðvífandi og skarst í leikinn og urðu þá margir áhorfendur reið- ir. Gerði hópur pilta og full- orðinna manna aðsúg að lög- reglunni og dómaranum. Stympingar milli lögreglu og óeirðarseggjanna stóðu lengi yfir inni á Íþróttavellinum og bárust slagsmálin út á Suður- götuna. Að lokum fór svo að þrjátíu óeirðaseggir voru handteknir, yfirheyrðir og loks sleppt. Umfjöllun blaðanna var á eina leið; að árásin hafi verið tilhæfulaus og óeirðaseggirn- ir ættu að fá bann og sekt- ir. Meira að segja blaðamenn Morgunblaðsins og Þjóðvilj- ans voru sammála um það. Úrslit leiksins voru 1-0 Víkingi í vil. n ÍSLENDINGUR Á TÍRÆÐISALDRI FLÚÐI AF SKOSKUM FLUGVELLI „Þeir ætluðu alveg að verða vitlausir í útlendingaeftirlitinu í Skotlandi þegar þeir sáu hvað ég var gamall verndarnefnd sem þríklofnaði í af- stöðu sinni og fór síðan til Barna- verndarráðs sumarið 1959. Á meðan sú meðferð stóð yfir átti Dollý að vera á landinu en Stein- grím var þá farið að gruna að hún myndi reyna að fara til Bandaríkj- anna á nýjan leik með börnin. Var þá móðir hennar komin til Íslands. Steingrími tókst að fá það staðfest með hjálp lögreglunn- ar á Keflavíkurflugvelli að Dollý og börnin væru á farþegalista hjá Pan American Airlines. Stöðv- aði lögreglan þá ferð með tilskip- un dómsmálaráðuneytisins. Tíu dögum síðar gerðu Dollý og móðir hennar aðra misheppnaða tilraun til að flýja. Steingrímur krafðist þess að börnin yrðu tekin af henni en þess í stað voru lögregluþjónar fengnir til að vakta Laugarásveg- inn í mánuð. Hasar í Kaupmannahöfn og Miami Úrskurðurinn dróst og 18. desem- ber fékk Steingrímur hringingu frá vini um að húsið við Laugarásveg- inn væri mannlaus. Hafði Dollý þá komist til Kaupmannahafnar með börnin um morguninn undir fölskum nöfnum og í dulbúningi. Fékk hún nemanda sinn úr sund- ballettinum til að aðstoða sig og fljúga með út. Steingrímur hringdi strax í sendiherrann í Kaupmannahöfn og var Dollý yfirheyrð á flugvellin- um en þar sem hún hafði banda- rískt vegabréf aðhafðist danska lögreglan ekki. Sama kvöld komust Dollý og börnin til New York en nemandinn flaug aftur til Íslands. Varð Steingrímur mjög reiður yfir þessu og í kjölfarið kallaði utanríkisráðherra sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund. Ekk- ert kom þó út úr þeim fundi. Þann 17. febrúar árið 1960 úrskurð- aði Barnaverndarnefnd að elsti drengurinn skyldi vera hjá Dollý en hin tvö hjá Steingrími. Hóf Steingrímur þá að reyna að fá börnin frá Bandaríkjunum en Dollý bjó þá í Flórída. Fór hann með lögfræðingi til fógeta í Miami og fékk liðsinni fulltrúa þar til að ná í börnin. Þau voru ein heima hjá sér en Dollý var við vinnu. Þeir tóku tvö yngri börnin en skildu elsta drenginn eftir og brunuðu út á flugvöll. Í Miami keypti Stein- grímur fyrsta flug út, sem var til Kúbu en seinkun varð á því flugi. Dollý krafðist ógildingar á ís- lenska úrskurðinum og aflaði lið- veislu lögreglunnar til að stöðva brottför Steingríms og barnanna. Rétt áður en vélin fór í loftið komu lögreglumenn, stöðvuðu Stein- grím og tóku börnin í sína vörslu. Var þeim komið fyrir á fóstur- heimili uns málið yrði útkljáð fyrir bandarískum dómstólum. Í febrúar 1961 var íslenski úr- skurðurinn dæmdur ógildur og í nóvember það ár var Dollý dæmt forræði yfir öllum börnunum en Steingrímur umgengnisrétt yfir sumartímann. Kæft á Íslandi Mikið var fjallað um málið í banda- rískum fjölmiðlum og þar sagt frá öllum smáatriðum í barningi Steingríms og Dollýjar í þeirra hjónabandi. Steingrímur var jú einu sinni sonur fyrrverandi for- sætisráðherra og hafði þar að auki starfað á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Á Íslandi heyrðist hins vegar ekki múkk. Steingrímur sendi mág sinn, Sveinbjörn Dagfinnsson hæsta- réttarlögmann, til að funda með öllum ritstjórum dagblaðanna og samþykktu þeir að fjalla ekki um málið nema með leyfi Steingríms. Morgunblaðið var með tilbúna frétt sem dregin var úr birtingu og afhenti Matthías Johannessen Steingrími öll gögn um málið. n sagði Lárus við Morgunblaðið við komuna á Reykjavíkurflugvöll. „Þeir ætluðu alveg að verða vitlaus- ir í útlendingaeftirlitinu í Skotlandi þegar þeir sáu hvað ég var gamall. Í Prestwick höfðu þeir víst aldrei séð svona gamlan mann og því síður að hann væri að ferðast,“ sagði Lárus brosandi. Lárus var fæddur árið 1855 og lést tæpu ári eftir flugferðina af- drifaríku. n Lárus við heimkomuna Morgunblaðið 8. júlí 1949. Íþróttavöllurinn Fram og Víkingur takast á. Sara Jane Donovan Tíminn 26. mars 1954. Dollý Kennir lömuðum sund.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.