Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Side 60
60 26. október 2018TÍMAVÉLIN
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Æ
vi Danans Peters
Freuchen var lyginni
líkust. Hann var ævin-
týramaður sem kannaði
norðurheimskautið á tíma sem lítið
var vitað um staðinn. Hann vildi
fremur glíma við ísbirni en vera
innan um fólk og lenti í mörgum
ævintýrum á ferðum sínum. Auk
þess kvæntist hann þremur mjög
ólíkum konum, barðist við nasista
og skrifaði metsölubækur.
Missti eiginkonu í spænsku
veikinni
Peter Freuchen var fæddur í
Nyköbing í Danmörku árið 1886. Á
unga aldri varð hann stór og mik-
ill að burðum, vel yfir tveir metrar
á hæð. Hann ætlaði að verða lækn-
ir en fékk nóg af náminu í Kaup-
mannahafnarháskóla og ákvað
þess í stað að verða landkönnuður.
Í ævisögu sinni frá árinu 1953 segir
hann: „Til helvítis með fólk, ég ætla
að rannsaka fjandans óbyggðirnar.“
Árið 1906 fór hann í sína fyrstu
Grænlandsferð af mörgum og
starfaði hann gjarnan með Knud
Rasmussen, einum fremsta inúíta-
fræðingi síns tíma. Í einni ferðinni
kynntist hann fyrstu eiginkonu
sinni, Navarana Mequpaluk, og
eignuðust þau saman tvö börn. Hún
lést úr skæðustu farsótt sögunnar,
spænsku veikinni.
Freuchen og Rasmussen komu
upp verslunar- og veiðistöð á Thule
á norðurhluta eyjunnar þar sem
í dag er flugstöð Bandaríkjahers.
Þaðan fóru þeir og margir fleiri
í könnunarleiðangra um eyjuna
næstu tvo áratugina, hina svoköll-
uðu Thule-leiðangra, sem voru
margir hverjir mjög hættulegir. Líkt
og Roald Amundsen notuðu þeir
sleðahunda til að komast yfir ís-
breiðurnar og veiddu rostung, hval,
úlfa, seli og hvítabirni.
Sargaði af sér fótinn
Í einni slíkri ferð, árið 1926, lenti
Freuchen í mikilli lífshættu og sagði
hann frá því í æviminningum sín-
um. Hann var á ferð með fram fjalli
í miklum snjóstormi þegar snjóflóð
kom æðandi niður og grófst hann
undir. Freuchen hélt stillingu sinni
undir farginu og hugsaði hvað hann
ætti til bragðs að taka.
Mundi hann þá eftir því að
inúítarnir nota frosinn skít úr
sleðahundum til að búa til verk-
færi og ákvað að nýta sér þá að-
ferð. Freuchen bjó sér til smá rými
í skaflinum og hafði hægðir. Síðan
kældi hann þær niður í snjónum og
meitlaði úr þeim lítinn hníf. Þenn-
an hníf notaði hann til að klóra sig
út úr snjónum.
Þrátt fyrir þessa ótrúlegu út-
sjónarsemi var vandræmum
Freuchen hvergi nærri lokið. Hann
var kaldur og örmagna þegar hann
komst úr flóðinu og átti þá eftir
að ganga þriggja tíma leið yfir ís-
breiðuna til baka. Á leiðinni fékk
hann alvarleg kalsár og þurfti að
taka af sér fótinn án deyfingar.
Hluta af fætinum át hann til að fá
orku.
Óskarsverðlaunakvikmynd
Árið 1924 giftist hann Magdalene
Vand Lauridsen, sem var milljóna-
mæringur og dóttir smjörmógúls.
Norðurslóðirnar voru ekki eini
staðurinn sem Freuchen kann-
aði. Heimurinn var hans ær og kýr.
Hann var í frumskógum Afríku,
Síberíu, Suðurskautslandinu og
fleiri framandi slóðum. Hann skrif-
aði næstum þrjátíu bækur sem
rokseldust, flestar um Grænland og
inúíta en einnig mikið um siglingar.
Þá skrifaði hann einnig nokkrar
skáldsögur. Var ein þeirra, Eskimo,
gerð að kvikmynd árið 1933 og vann
Óskarsverðlaun fyrir bestu klipp-
ingu. Foreldrar Magdalene gerðu
hann að ritstjóra tímarits um tíma.
Freuchen fyrirleit nasismann
sem var í miklum uppgangi á fjórða
áratugnum. Stefnan hafði einnig
áhrif í Danmörku og lenti hann
nokkrum sinni upp á kant við fólk
því hann var ekki hræddur við að
segja meiningar sínar. Ef einhver
talaði illa um gyðinga gekk hann
upp að þeim sama og sagði með
ógnandi röddu: „Ég er gyðingur,
hvað ætlar þú að gera í því?“ Hann
var þó ekki gyðingur.
Dæmdur til dauða
Þegar Þjóðverjar hernámu Dan-
mörku árið 1940 gekk hann, ein-
fættur maður á sextugsaldri, í
andspyrnuhreyfinguna. Hann
tók að sér að fela flóttamenn og
skemma fyrir aðgerðum þýska
hersins. Að lokum var hann hand-
tekinn af hernámsliðinu og dæmd-
ur til dauða. Sagt er að Hitler sjálfur
hafi fyrirskipað dauðadóminn yfir
Freuchen. En hann náði að sleppa
og flýja yfir Eyrarsund til Svíþjóð-
ar. Þar hélt hann áfram að aðstoða
andspyrnuhreyfinguna.
Undir lok stríðsins skildi hann
við Magdalene og skömmu síðar
kvæntist hann sinni þriðju eigin-
konu, Dagmar Gale, tískuhönnuði
hjá Vogue. Fluttu þau saman til
Bandaríkjanna þar sem hann bjó
síðustu árin. Freuchen lést 71
árs gamall eftir hjartaáfall á flug-
stöð Bandaríkjahers í Anchorage
í Alaska. Lík hans var brennt og
öskunni dreift yfir ísbreiðurnar við
Thule. n
NOTAÐI EIGIN SAUR TIL AÐ
BJARGA SÉR ÚR SNJÓFLÓÐI
n Hitler vildi hann feigan
n Át sinn eigin fót
Peter og Navarana Hún lést úr spænsku veikinni.
Peter og Dagmar Kápan gerð
úr feldi ísbjarnar sem hann felldi.
Peter Freuchen Borðaði eigin fót.