Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Síða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Síða 60
60 26. október 2018TÍMAVÉLIN Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Æ vi Danans Peters Freuchen var lyginni líkust. Hann var ævin- týramaður sem kannaði norðurheimskautið á tíma sem lítið var vitað um staðinn. Hann vildi fremur glíma við ísbirni en vera innan um fólk og lenti í mörgum ævintýrum á ferðum sínum. Auk þess kvæntist hann þremur mjög ólíkum konum, barðist við nasista og skrifaði metsölubækur. Missti eiginkonu í spænsku veikinni Peter Freuchen var fæddur í Nyköbing í Danmörku árið 1886. Á unga aldri varð hann stór og mik- ill að burðum, vel yfir tveir metrar á hæð. Hann ætlaði að verða lækn- ir en fékk nóg af náminu í Kaup- mannahafnarháskóla og ákvað þess í stað að verða landkönnuður. Í ævisögu sinni frá árinu 1953 segir hann: „Til helvítis með fólk, ég ætla að rannsaka fjandans óbyggðirnar.“ Árið 1906 fór hann í sína fyrstu Grænlandsferð af mörgum og starfaði hann gjarnan með Knud Rasmussen, einum fremsta inúíta- fræðingi síns tíma. Í einni ferðinni kynntist hann fyrstu eiginkonu sinni, Navarana Mequpaluk, og eignuðust þau saman tvö börn. Hún lést úr skæðustu farsótt sögunnar, spænsku veikinni. Freuchen og Rasmussen komu upp verslunar- og veiðistöð á Thule á norðurhluta eyjunnar þar sem í dag er flugstöð Bandaríkjahers. Þaðan fóru þeir og margir fleiri í könnunarleiðangra um eyjuna næstu tvo áratugina, hina svoköll- uðu Thule-leiðangra, sem voru margir hverjir mjög hættulegir. Líkt og Roald Amundsen notuðu þeir sleðahunda til að komast yfir ís- breiðurnar og veiddu rostung, hval, úlfa, seli og hvítabirni. Sargaði af sér fótinn Í einni slíkri ferð, árið 1926, lenti Freuchen í mikilli lífshættu og sagði hann frá því í æviminningum sín- um. Hann var á ferð með fram fjalli í miklum snjóstormi þegar snjóflóð kom æðandi niður og grófst hann undir. Freuchen hélt stillingu sinni undir farginu og hugsaði hvað hann ætti til bragðs að taka. Mundi hann þá eftir því að inúítarnir nota frosinn skít úr sleðahundum til að búa til verk- færi og ákvað að nýta sér þá að- ferð. Freuchen bjó sér til smá rými í skaflinum og hafði hægðir. Síðan kældi hann þær niður í snjónum og meitlaði úr þeim lítinn hníf. Þenn- an hníf notaði hann til að klóra sig út úr snjónum. Þrátt fyrir þessa ótrúlegu út- sjónarsemi var vandræmum Freuchen hvergi nærri lokið. Hann var kaldur og örmagna þegar hann komst úr flóðinu og átti þá eftir að ganga þriggja tíma leið yfir ís- breiðuna til baka. Á leiðinni fékk hann alvarleg kalsár og þurfti að taka af sér fótinn án deyfingar. Hluta af fætinum át hann til að fá orku. Óskarsverðlaunakvikmynd Árið 1924 giftist hann Magdalene Vand Lauridsen, sem var milljóna- mæringur og dóttir smjörmógúls. Norðurslóðirnar voru ekki eini staðurinn sem Freuchen kann- aði. Heimurinn var hans ær og kýr. Hann var í frumskógum Afríku, Síberíu, Suðurskautslandinu og fleiri framandi slóðum. Hann skrif- aði næstum þrjátíu bækur sem rokseldust, flestar um Grænland og inúíta en einnig mikið um siglingar. Þá skrifaði hann einnig nokkrar skáldsögur. Var ein þeirra, Eskimo, gerð að kvikmynd árið 1933 og vann Óskarsverðlaun fyrir bestu klipp- ingu. Foreldrar Magdalene gerðu hann að ritstjóra tímarits um tíma. Freuchen fyrirleit nasismann sem var í miklum uppgangi á fjórða áratugnum. Stefnan hafði einnig áhrif í Danmörku og lenti hann nokkrum sinni upp á kant við fólk því hann var ekki hræddur við að segja meiningar sínar. Ef einhver talaði illa um gyðinga gekk hann upp að þeim sama og sagði með ógnandi röddu: „Ég er gyðingur, hvað ætlar þú að gera í því?“ Hann var þó ekki gyðingur. Dæmdur til dauða Þegar Þjóðverjar hernámu Dan- mörku árið 1940 gekk hann, ein- fættur maður á sextugsaldri, í andspyrnuhreyfinguna. Hann tók að sér að fela flóttamenn og skemma fyrir aðgerðum þýska hersins. Að lokum var hann hand- tekinn af hernámsliðinu og dæmd- ur til dauða. Sagt er að Hitler sjálfur hafi fyrirskipað dauðadóminn yfir Freuchen. En hann náði að sleppa og flýja yfir Eyrarsund til Svíþjóð- ar. Þar hélt hann áfram að aðstoða andspyrnuhreyfinguna. Undir lok stríðsins skildi hann við Magdalene og skömmu síðar kvæntist hann sinni þriðju eigin- konu, Dagmar Gale, tískuhönnuði hjá Vogue. Fluttu þau saman til Bandaríkjanna þar sem hann bjó síðustu árin. Freuchen lést 71 árs gamall eftir hjartaáfall á flug- stöð Bandaríkjahers í Anchorage í Alaska. Lík hans var brennt og öskunni dreift yfir ísbreiðurnar við Thule. n NOTAÐI EIGIN SAUR TIL AÐ BJARGA SÉR ÚR SNJÓFLÓÐI n Hitler vildi hann feigan n Át sinn eigin fót Peter og Navarana Hún lést úr spænsku veikinni. Peter og Dagmar Kápan gerð úr feldi ísbjarnar sem hann felldi. Peter Freuchen Borðaði eigin fót.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.