Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Side 70
70 FÓLK 26. október 2018
LOKAÐIR STURTUKLEFAR
MEÐ TOPPI, SPORNA
GEGN RAKA OG MYGLU
Kíktu á sturta.is og
skoðaðu úrvalið
S. 856 5566
Orkustöðvarnar þurfa
að vera heiðarlegar
n Sycamore Tree taka upp hjá heimsfrægum framleiðanda n Bítlarnir þrætuepli
Þ
au Ágústa Eva Erlends-
dóttir og Gunnar Hilmars-
son skipa hljómsveitina
Sycamore Tree en hljóm-
sveitin hefur verið á mikilli sigl-
ingu undanfarin misseri. Hljóm-
sveitin gaf út sína fyrstu breiðskífu,
Shelter, á síðasta ári og hlaut mikið
lof gagnrýnenda og fór beina leið
á topplista landsins. Bandið hlaut
fjölda tilnefninga og verðlaun á
hlustendaverðlaunum nú fyrr á
árinu auk þess sem Ágúst Eva var
kosin söngkona ársins.
Bandið vinnur nú hörðum
höndum að gerð nýrrar plötu en
plötuna vinna þau með hinum
virta útsetjara Rick Nowel. Rick,
sem er einn sá stærsti í sínu fagi,
hefur unnið með stórstjörnum á
borð við Lana Del Rey, FKA Twigs,
Lykke Li og Madonnu svo ein-
hverjir séu nefndir. Hljómsveitin
stefnir á útgáfu plötunnar á nýju
ári.
Átti að leika hund í
mynd Hrafns
Ágústa segist hafa sungið síð-
an hún var barn og sex ára hafi
hún komið fyrst fram en það var á
helgileik.
„Pabbi minn sendi mig í pruf-
ur fyrir kvikmyndina Hin helgu vé
eftir Hrafn Gunnlaugsson þegar
ég var tíu ára. Ég komst í lokaúrtak
þar en þá fékk pabbi að lesa hand-
ritið og dró mig snarlega úr því
verkefni.“ Myndin fjallar um sjö
ára dreng sem verður ástfanginn
af tuttugu ára heimasætu. „Ég átti
að leika hund og þetta var mjög
skrýtið allt saman.“
Átján ára gömul fór Ágústa í al-
þjóðlega hæfileikakeppni í Banda-
ríkjunum og kynntist þá leiklist í
fyrsta sinn.
„Ég gerði þetta í flippi. Það
var kennaraverkfall og ódýrt að
fljúga. Þarna voru stelpur í svona
„pageant“ kjólum og mér fannst
þetta rosalega fyndið. Þar keppti
ég í sápuóperuleik og endaði í
öðru sæti. Ég hef alltaf haft áhuga
á rugli og að brjóta upp aðstæður
eins og ég gerði með Silvíu Nótt.
Ég hef sinnt bæði tónlistinni og
leiklistinni alla tíð síðan, tekið þátt
í söngleikjum og sungið með kór-
um. Leiklistin hefur verið meira
áberandi síðustu tíu ár en nú er
það að breytast.“
Gunni hóf tónlistarferilinn í bíl-
skúrnum þrettán eða fjórtán ára
eins og svo margir unglingsstrák-
ar gerðu. Þetta var á tíunda ára-
tugnum og sterk tónleikasena í
borginni.
„Ég ætlaði að fara í músík, flutti
til London og spilaði sem ba-
ssaleikari. Síðan tók lífið U-beygju
og ég fór á kaf í hönnun og setti
tónlistina á hilluna. Á síðustu
árum hef ég fundið þörfina fyrir að
byrja aftur að semja og spila,“ seg-
ir hann.
Tómatakast á sviði
Ágústa segir að sameiginlegur
vinur þeirra, gítarleikarinn Ómar
Guðjónsson, hafi leitt þau saman.
Gunni segir:
„Við höfðum aldrei talað
saman þegar við hittumst á fyrsta
Sycamore Tree fundinum sumar-
ið 2016 fyrir utan eitt vink á Klapp-
arstígnum fyrir fimm árum sem
Ágústa man ekkert eftir, en hún
var þar að leggja bílnum sínum
ólöglega.“ Ágústa áréttar að hún
hafi ekki lagt í stæði fatlaðra.
„Hálfu ári áður en við hittu-
mst á fundinum voru ég og Ómar
byrjaðir að vinna að efninu. Okk-
ur fannst kvenrödd hæfa efninu og
ég gerði lista yfir fjórar söngkonur
sem komu til greina. Ágústa var að
sjálfsögðu efst og var sú fyrsta og
eina sem var spurð,“ segir Gunni.
Hingað til hefur Gunni samið
flesta textana en hann hefur hvatt
Ágústu til að skrifa. Þegar hún
byrjaði komu þeir tuttugu í einu.
„Hans textar eru oft um ástina
en mínir miklu dekkri. Ég er að
bíða eftir staðfestingu á því hvort
ég sé snillingur eða aumingi,“ segir
Ágústa og hlær. „Ég hef enga dóm-
greind á það sem ég geri, enga.
Sumt er frábært en níutíu prósent
fíflagangur. Einhver annar þarf að
sigta þetta út og grípa.“
Gunni segir að hvert lag hljóm-
sveitarinnar sé ein saga og einn
heimur. Textarnir séu byggðir á
reynslu þeirra beggja og annars
fólks einnig. „Þegar þú ert með
fólk sem vill hlusta er glatað að
segja ekki eitthvað sem skiptir
máli.“
Ágústa bendir Gunna á að hann
hafi samið lag á síðustu plötu sem
er einmitt um eitthvað sem skiptir
engu máli. „Ég læt hann finna fyr-
ir því á hverjum einustu tónleikum
og segi fólki að nú ætlum við að
spila leiðinlega lagið. Þá fær hann
persónulegt tómatkast frá sínum
eigin hljómsveitarmeðlimi,“ segir
Ágústa og hlæja þau bæði. „Fólki
finnst þetta samt fyndið,“ bætir
hún við.
Heimsfrægur framleiðandi
Sycamore Tree gáfu út sína fyrstu
plötu, Shelter, á síðasta ári og gekk
hún vonum framar. Enduðu sex
af átta lögunum inni á vinsælda-
listum. „Meira að segja leiðinlega
lagið endaði á lista,“ segir Gunni.
Um haustið áttu þau að spila á
Iceland Airwaves hátíðinni en þá
var Ágústa komin á steypirinn.
Hún segir:
„Í bjartsýniskasti hélt Gunni
í vonina um að við gætum spil-
að þann níunda nóvember en ég
fæddi þann sjöunda.“
Hátíðin er mikill sýningargluggi
fyrir íslenska tónlistarmenn og er-
lendir útsendarar að leita að tón-
list fyrir kvikmyndir, auglýsingar
og fleira. Það var á þessum tíma
sem Gunni tók eftir að framleið-
andinn Rick Nowels var búinn að
skrifa við eitt af lögunum þeirra á
Youtube: „Great band, great song.“
Nowels hefur meðal annars unnið
með Stevie Nicks, Madonnu, Cher
og Rod Stewart.
Gunni komst í samband við
Nowels og flaug í kjölfarið út til
Los Angeles til að hitta hann.
„Hann vildi heyra nýja efnið
og við tókum það upp fyrir hann
hérna heima. Honum leist það
vel á þetta að hann ákvað að við
myndum gera heila plötu. Það
verkefni hefur verið í gangi síðan
í febrúar.“
Þið ætlið væntanlega á alþjóð-
legan markað með þetta?
Ágústa segir: „Við erum á kafi í
öðrum verkefnum, og Rick líka, en
við höfum nýtt hverja lausa stund
til að halda plötunni gangandi
og það hefur gengið vel. Um ára-
mótin ætlum við að kynna þetta á
alþjóðavettvangi.“
Vildi ekki skemmta
útrásarvíkingakonum
Spurning um áhrifavalda bands-
ins varpar strax ljósi á mikinn
ágreining milli Ágústu og Gunna,
það er Bítlana. „Við erum ekki
sömu megin þar,“ segir Ágústa. „Ef
hann semur lag í anda Bítlanna þá
breytist ég í skessu.“ Gunni viður-
kennir að það komi stundum
„smá bítl í hann“ og hann heldur
mjög upp á John Lennon.
Er það að koma fram á tón-
leikum sambærilegt við að leika á
sviði?
„Nei, tónlist getur ekki ver-
ið þannig. Þessar orkustöðvar
sem maður notar til að flytja lög-
in þurfa að vera svo heiðarlegar til
að virka. Tónlist snýst um það að
hreyfa við fólki og á tónleikum þarf
hún að ganga upp tilfinningalega,“
segir Ágústa.
Hafið þið verið beðin um að
koma fram í undarlegum einka-
samkvæmum?
„Ég er ennþá beðin um að
koma fram sem Silvía Nótt,“ seg-
ir Ágústa og brosir. „Í eitt sinn átti
að fljúga mér upp á Esjuna með
þyrlu til að skemmta eiginkon-
um útrásarvíkinganna. Þær voru
með einhvern flipp-klúbb og voru
að flippa með peninga. Þegar þær
voru búnar að ganga upp fjallið
átti ég að vera Silvía Nótt og taka á
móti þeim með kampavín.“
Var þetta gert?
„Ég sagði pent nei takk.“
Fatahönnuður og tímaflakkari
Tónlistin er ekki það eina sem
Gunni og Ágústa bardúsa við
þessa dagana. Gunni hefur starfað
sem fatahönnuður víða um heim
í tuttugu ár. Meðal annars hjá All
Saints í London, Bestseller í Dan-
mörku og Kormáki og Skildi hér á
Íslandi.
Ágústa er með annan fótinn í
Noregi og Litháen. Þar er hún að
leika í HBO sjónvarpsþáttaröð
sem nefnist Beforeigners. „Þetta
er vísindaskáldskapur og satíra
um fólk frá öðrum tímum. Ég leik
eitt af þremur stærstu hlutverkun-
um, persónu frá víkingatímanum
sem gengur ekki vel að passa inn
í nútímann.“ n
Kristinn Haukur Guðnason
Guðni Einarsson
kristinn@dv.is /gudnieinarsson@dv.is
Textagerð „Ég er að bíða eftir stað-
festingu á því hvort ég sé snillingur
eða aumingi.“