Morgunblaðið - 04.09.2018, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2018 25
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík, s. 458-2200
UPPBOÐ
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Uppboð verður á eftirfarandi ökutækjum þriðjudag-
inn 11. september nk. kl. 12:15, að Vatnsnesvegi 33,
Keflavík:
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum,
3. september 2018,
Ásgeir Eiríksson, staðgengill sýslumanns.
AE867
AX208
AX888
BK748
DA498
EAF21
ED439
EDP20
EK527
EMZ59
FTF28
FUZ96
GZD68
HAS02
IR373
KM938
LG898
LJ034
ME839
MG658
MK160
MR587
MU342
NAM87
NO388
NRJ11
OR357
OS317
OS640
PB463
PY699
RA407
RH011
RO846
RO878
RPR82
RV078
SL536
SMX49
TG452
TS491
TY232
UG027
US625
USN53
UU097
VF533
YZT65
ZOP18
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Boccia
með Guðmundi kl. 10. Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-16.
Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leib. kl.
12.30-16. MS-fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt.
Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni,
Allir velkomnir. s: 535-2700.
Áskirkja Spilum kl 20 í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar. Allir
velkomnir Safnaðarfélag Áskirkju
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14.
Fella- og Hólakirkja Fyrsta samvera að hausti. Kyrrðarstund kl. 12 í
umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Súpa og brauð eftir
stundina á vægu verði. Helga Ben kemur í heimsókn, kynnir leikfimi
og ýmislegt skemmtilegt. Hlökkum til að sjá ykkur öll eftir sumarfrí.
Félagsmiðstöð Aflagranda 40 Í dag er stóla jóga hjá okkur kl 9.30,
tálgað í tré hópurinn mætir aftur í hús kl 13 og eru allir velkomnir með
að tálga. Kl 13.30 er það línudansinn og er þetta fyrsti tíminn eftir
sumarfrí. Verið velkomin til okkar
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi í setustofu frá 9-10. Í dag
kl. 13.30 og alla þriðjudaga í vetur verður spiluð Félagsvist í salnum.
Þátttökugjald er 200 krónur og verðlaun eru veitt fyrir efstu sætin.
Komið og spilið með okkur félagsvist, allir eru velkomnir til okkar og
vantar okkur nýja spilara í hópinn. Verið velkomin á Vitatorg, Lindar-
götu 59, sími 411 9450.
Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jónshúsi
og heitt á könnunni alla virka daga frá 9.30-16. Vatnsleikf. Sjál. 7.30/15.
Qi Gong Sjál. kl. 9. Karlaleikf. Ásg. kl.12. Boccia. Ásg. kl. 12.45.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl.
14.45.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl.9-12.
Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30.
Glervinnustofa m/leiðb. kl. 13-16. Línudans kl. 13-14 (speglasal). Allir
velkomnir.
Gjábakki kl. 9. handavinna, kl. 9.30 silfursmíði (kennsla fer fram að
Smiðshöfða 14 Rvk), kl. 13 handavinna, kl. 13.00 hreyfi- og jafnvægis-
æfingar, kl. 14 hreyfi- og jafnvægisæfingar.
Grensáskirkja Kyrrðarstund kl. 12.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11, 500 kr skiptið eða 1305.- kr.
mánuðurinn, allir velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl.
12.15. Spjallhópur kl 13, allir velkomnir. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl.
14.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, bridge í handavinnustofu kl. 13 og eftir-
miðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, myndlistanámskeið hjá Margréti Zophoníasdóttir kl. 9, brids
kl.13, bókabíll kl. 14.30, bónusbíll kl. 14.55, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir
velkomnir óháð aldri. Nánari í síma 411 2790.
Korpúlfar Boccia kl. 10 í Borgum. Helgistund hefst í dag kl. 10.30,
sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 13.30 og heimanámskennsla í
Borgum kl. 16.30
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, opin lista-
smiðja kl. 9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, boccia, spil
og leikir kl.15.30. Uppl í s. 411 2760.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.15. Kaffispjall í
króknum kl. 10.30. PÚTT Á GOLFVELLINUM KL. 10.30. Kvennaleikfimi
í Hreyfilandi kl. 11.30. Lomber á Skólabraut kl. 13.30. Bridge í
Eiðismýri 30, kl. 13.30. Skráning stendur yfir í sameiginlega ferð
félagsstarfsins og kirkjunnar sem farin verður þriðjudaginn 18.
september. ATH. næsta fimmtudag verður félagsvist í salnum á
Skólabraut kl. 13.30.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík SKÁKIN – vetrarstarfsemi
skákklúbbsins hefst í dag 4. sept. kl. 13.
Raðauglýsingar
Tilboð/útboð
Félagsstarf eldri borgara
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Bókhald
NP Þjónusta
Býð fram liðveislu við bókanir, reikn-
ingsfærslur o.fl.
Hafið samband í síma 649-6134.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
HERRASKÓR - STAKAR
STÆRÐIR 39, 40, 41, 42, 45, 46, og
47. Verð: 6.990kr
Laugavegi 178, sími 551 2070.
Opið mán. - fös. kl. 10–18,
Laugardaga kl. 10 - 14
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur, laga
ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
ættum íslenskra valkyrja, segir
við okkur:
„Af hverju fær Finnur ekki að
spila með?“ Augu okkar urðu að
einu spurningarmerki og einn
segir; „Hva! Hann getur bara
mætt með nikkuna næst og spil-
að með. Steina var ekkert að tví-
nóna við svarið: „Strákar! Hún er
úti í bíl!“ Finnur náði í nikkuna,
kunni þessi lög öll upp á tíu og
hefur verið einn af máttarstólp-
unum síðan.
Nú hefur síðasti „eðaltónninn“
hans Finns verið tekinn – í bili.
Grunar mig að á góðum stað
heyrist „upphafstónar“ á góðum
lögum hljóma með ákveðnum stíl
sem enginn annar en Finnur réði
við.
Við kveðjum góðan og per-
sónulegan eðaldreng með sökn-
uði og biðjum góðan Guð að
styrkja Steinu, börn og barna-
börn. En minningin um góðan
dreng lifir.
Fyrir hönd tónlistarhópsins
Blítt og létt,
Sigurmundur G. Einarsson.
Manni bregður alltaf þegar
maður fréttir af andláti sam-
ferðamanna sinna og góðra vina,
en þannig var það hjá mér er ég
frétti af andláti Arnfinns Frið-
rikssonar ökukennara og langar
mig aðeins að minnast hans á
minn hátt.
Kæri vinur, mér brá illilega
þegar ég frétti að þú værir farinn
frá fólki þínu og samferðafólki þó
svo að ég viti að þú ert hér ein-
hvers staðar með okkur. Í hvert
skipti sem ég hef verið heima í
Eyjum hef ég rekist á þig í Húsa-
smiðjunni, Krónunni eða á förn-
um vegi og alltaf var sama glottið
á þér þegar við mættumst, svo
kom spjallið. Fyrst var viðkvæðið
hjá þér. Þú hér og svo hvað ert
þú að gera hér? Fátt varð um
svör hjá mér annað en ég er bara
hér heima í Eyjum. Við áttum
okkur sameiginlegt áhugamál –
harmonikkuna.
Þú varst góður með nikkuna
og ég verð að játa að ég hálf öf-
undaði þig þegar ég horfði á þig
spila hversu léttilega þú lékst þér
að spila í c, g, f, a, e eða hvar sem
var á nótnaborðinu. Þú fórst létt
með þetta allt.
Síðast þegar við hittumst vor-
um við ákveðnir í að fara inn á
Hraunbúðir og taka lagið saman,
en við verðum að láta það bíða
betri tíma, en við eigum eftir að
taka lagið saman annars staðar, á
betri stað með miklu betri hljóð-
færi.
Finnur minn, þú fyrirgefur
þessi fátæklegu skrif mín, en þú
hefur verið svo ofarlega í huga
mér frá því ég frétti af andláti
þínu að ég varð að senda þér línu,
en það eru svo mörg ár frá því að
við kynntumst að ég hreinlega
man ekki í dag hvenær leiðir
okkar lágu saman, sennilega í
gegnum músík.
Ég kveð þig að sinni en ég er
líka sannfærður um að þú hefur
fengið góðar móttökur í dýrð
drottins.
Þú varst góður drengur. Ég
bið þess að algóður Guð blessi og
varðveiti Steinu, börn, tengda-
börn, barnabörn og barnabarna-
börn og gefi þeim styrk í sorg
sinni.
Friðrik Ingi Óskarsson.
Óhætt er að segja að 19. ágúst
2018 hafi verið örlagaríkur dagur
í lífi mínu, ég heyri röddina í
ömmu brotna í símanum, það
kemur löng þögn og þá átta ég
mig á hvað hefur gerst. Yfir-
þyrmandi söknuður og tómleiki
hellist yfir mann, afi hefur kvatt
þessa veröld. Ég man það eins og
það hafi gerst í gær þegar ég var
búin að fylgjast með einstökum
manni sem leit út fyrir að vera
svona ljómandi afalegur, gekk að
honum úti á götu og spurði „viltu
vera afi minn“.
Afi var ekki lengi að svara og
frá þeim degi hefur hann verið afi
minn og Steina verið amma mín.
Afi var einstakur maður í alla
staði, alltaf var hægt að treysta á
hann, þar sem hann var fylltist
allt af gleði, stríðinn var hann en
umfram allt kærleiksríkur í alla
staði. Ég er þakklát fyrir góðar
minningar sem ylja mér um
hjartarætur, rúntarnir niður í
Skýli, harmonikkustundirnar og
ófáir kaffibollar á Strembunni.
Elsku afi, þín verður saknað sárt,
strákarnir mínir munu líka minn-
ast þín um ókomna tíð. Elsku
amma mín, megi guð vera með
þér og mundu að ég elska þig og
verð ávallt til staðar fyrir þig.
Þín „afastelpa“
Ragnheiður Guðfinna.
Þýska gæðavaran varð að
láta undan fyrir íslensku veðri.
Það sama gerðist reyndar hjá
öðrum ferðafélögum okkar. Við
urðum að aka niður á Djúpavog
til að fá gert við tjöldin til að
geta haldið áfram ferðinni. Það
gekk eftir og héldum við áfram
og komum við í Hólmatungur.
Það var svo dásamlegt að við
gleymdum stund og stað. Karl-
arnir tóku að sér að hafa ofan
af fyrir krökkunum á meðan
við gengum um og skoðuðum
jurtir. Hiltrud var sú eina í
hópnum sem þekkti allar jurt-
irnar. Hinar konurnar sögðu að
það væri nú ekki gott til af-
spurnar að sú sem þekkti ís-
lensku jurtirnar væri þýsk en
ekki íslensk.
Þessi ferð varð okkur öllum
ógleymanleg. Við vorum öll
orðin börn í ferðinni, ánægjan
skein úr hverju andliti. Karl-
arnir okkar voru í Rótarý og
voru fjölskylduferðirnar marg-
ar og hver annarri skemmti-
legri, eins og Þórsmerkurferð-
in, þar sem dætur okkar
týndust og margar fleiri ferðir.
Við Hiltrud áttum margar góð-
ar stundir í Kvenfélagi Akra-
ness. Við vorum saman í nefnd
á Barnaárinu (1979) og fengum
bæjarstjórnina á fund til okkar
til að svara spurningum sem
viðkom börnum á leikskóla,
dagheimilum o.fl. Það var því-
líkur áhugi fyrir þessum fundi
að við næstum sprengdum utan
af okkur húsnæðið sem fund-
urinn var haldinn í.
Ég verð líka að minnast á
listanefndina sem við vorum í
þegar við söfnuðum fyrir lista-
verki eftir Ásmund Sveinsson
sem stendur núna við Stillholt
á Akranesi. Listamaðurinn var
heillaður þegar hann vissi að
það væru kvenfélagskonur sem
væru að kaupa verk af honum.
Við Hiltrud vorum báðar mjög
áhugasamar um listir og það
var alltaf gaman þegar við fór-
um einar suður á listasýningar.
Það var mikið hlegið í eitt
skipti þegar við vorum að aka
heim og vorum búnar að kaupa
málverk án þess að hafa karl-
ana okkar með í ráðum.
Hiltrud var vel lesin og hafði
mikinn áhuga á hollum mat en
það gekk ekki alltaf ofan í
börnin mín og er mér minn-
isstætt þegar okkur var boðið
einu sinni í mat til þeirra.
Börnin mín vildu ekki borða
matinn og tók þá Lilja yngri
dóttirin þau inn í eldhús og bjó
handa þeim annars konar lost-
æti. Er þetta oft rifjað upp og
mikið hlegið.
Hiltrud var mjög dugleg að
prjóna og sauma.
Það var alltaf gaman að
koma í heimsókn á Vogabraut-
ina og spjalla um heima og
geima yfir kaffibolla. Það er
svo margt sem ég get tínt til
eftir tæpa 50 ára vináttu en nú
læt ég staðar numið og kveð
elsku vinkonu mína með þökk
fyrir einlæga vináttu. Hvíl í
Guðs friði.
Ég sendi Guðmundi, Krist-
jáni, Sigrúnu og Lilju mínar
dýpstu samúðarkveðjur.
Kristrún Jónsdóttir
(Kidda).