Morgunblaðið - 04.09.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 04.09.2018, Qupperneq 4
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Verulegur samdráttur hefur orðið í framleiðslu erlendra kvikmynda á Íslandi. Neikvæð áhrif af Brexit og versnandi samkeppnishæfni lands- ins eiga þar hlut að máli. Þetta segir Leifur B. Dagfinnsson, stjórnarformaður og framleiðandi hjá True North, og bendir á að hing- að komi ekki lengur verkefni sem kalla á hundraða manna starfslið. Í stað þess að kvikmyndaverin sendi hingað 150 til 400 manna teymi sendi þau nú jafnan aðeins fáeina starfs- menn til að taka ljósmyndir. Þótt verkefnastaðan í sjónvarpsauglýsingum og umfangs- minni upptökum fyrir bíómyndir sé ágæt hafi mikið dregið úr stærri verkefnum. Raunar hafi ekkert stórt verkefni komið hingað í ár. Síðasta ár mjög lélegt „Reksturinn verður þungur þegar verkefnum fækkar og launin hækka. Hvað á þá að gera? Á að halda dampi eða segja öllum upp. Þetta er vand- meðfarið. Síðasta ár var mjög lélegt. Fyrr í sumar byrjaði þetta þó að rúlla aftur. Það er hins vegar allt saman með herkjum. Það sem hefur komið inn á ratsjána eru verkefni sem kalla á snjó í Norður-Evrópu. Þar eru Íslendingar, Finnar og Norðmenn að bítast um verkefnin. Það er erfitt að ná í stóru verk- efnin vegna hás tilkostnaðar á Ís- landi. Verðlag hér er orðið afar hátt. Þá er sama hvort um er að ræða mat, bíla, gistingu eða hvað annað. Allt sem snýr að framleiðslu er orðið mjög dýrt á Íslandi. Við það bætist að gengi krónunnar er of sterkt. Það munaði líka mikið um Brexit. Við skiptum mikið við Breta og fund- um strax fyrir miklum samdrætti frá Bretlandi eftir að gengi pundsins hrundi. Bretar hættu nánast að koma hingað. Það er þó hægt og ró- lega byrjað að jafna sig.“ Leifur segir að fyrir vikið hafi 5% hækkun á endurgreiðslu á fram- leiðslukostnaði kvikmynda ekki dug- að til. Framleiðendur kvikmynda eða sjónvarpsefnis á Íslandi eiga kost á endurgreiðslum á allt að 25% af framleiðslukostnaði sem fellur til hér á landi. True North kom að framleiðslu síðustu Mission Impossible-myndar- innar, sem frumsýnd var í fyrrasum- ar, og fóru tökur fram hjá dóttur- félagi félagsins í Noregi. Félagið velti um 5 milljörðum árið 2012 og um 5 milljörðum í fyrra. Með tilliti til verðbólgu er það samdráttur að raunvirði. Á sama tímabili hefur inn- lendur kostnaður, einkum laun, hækkað mikið. Framlegð af rekstri hefur dregist saman. Veltan hrundi svo niður í milljarð í fyrra. Noregur nánast hagstæðari „Við erum líka með starfsemi í Noregi. Noregur er nánast orðinn hagstæðari en Ísland út af veiku gengi norsku krónunnar. Vissulega hefur hótelum fjölgað á Íslandi og úrvalið hefur aukist mikið síðustu ár. Verð á gistingu hefur hins vegar hækkað,“ segir Leifur. Spurður hvort tímabil framleiðslu slíkra stórmynda sé að baki á Íslandi bendir Leifur aftur á gengið. „Það er búið að mynda svo mikið hérna. Hingað hafa komið heims- þekkt vörumerki eins og Star Wars og þekktir leikstjórar og leikarar. Annaðhvort hefur Ísland verið ofnot- að, eða að fyrirtækin telja einfald- lega of dýrt að koma hingað og mynda á Íslandi. Það er bara þannig. Við erum ekki samkeppnishæf sem stendur,“ segir Leifur. Spurður um jákvæð teikn á lofti segir Leifur að fyrirtæki hans sé að skoða tvö stór verkefni á Íslandi. Hann sé bundinn trúnaði um þau á þessu stigi. Íslend- ingar hafi gott orðspor í kvikmynda- heiminum. Það orð fari af Íslending- um að þeir séu duglegir og reiðubúnir að vinna langan vinnudag þegar á þarf að halda. „Við erum að skoða um 10 verk- efni sem eru misjafnlega á veg kom- in. Maður þekkir hins vegar alltof mörg dæmi þess að hingað ætla menn að koma og taka upp í kannski í 4-6 vikur. Síðan skera þeir niður og koma í nokkra daga með lítið teymi og mynda bara landslagsmyndir og fara svo heim.“ Leifur segir að um 250 Íslending- ar hafi starfað við stærri verkefnin. Með afleiddum störfum megi tvö- falda töluna í 500 starfsmenn. Til dæmis hafi um helmingurinn af 2 milljarða kostnaði við upptökur á FF8 á Íslandi verið laun, eða tæpur milljarður íslenskra króna. Þau erlendu betur launuð – Hver verður þróunin í greininni? „Það verður samdráttur. Blessun- arlega erum við að framleiða íslenskt efni sem fyllir upp í tómarúmið. Er- lendu verkefnin eru oft betur launuð. Það þarf alltaf að sníða sér stakk eft- ir vexti í íslensku verkefnunum.“ – Hvaða þýðingu hefur það fyrir tekjur íslenskrar kvikmyndagerðar að erlendum verkefnum fækki? „Með endurgreiðslunni viljum við sjá miklu jafnari og stöðugri umsvif í greininni. Að við séum með allavega eitt eða tvö stór erlend verkefni á ári, sjónvarpsþætti eða kvikmyndir, til að viðhalda þessum útflutningi og fá gjaldeyri inn í landið. Afleiddu tekj- urnar eru miklar fyrir þjóðarbúið. Það er sjaldgæft að afleiddu tekjurn- ar séu jafn miklar í íslensku verkefn- unum. Því er mikilvægt, til að við- halda stöðugleika í verkefnum, að íslenska krónan veikist um 15-20%. Stóru erlendu verkefnin hafa að öllu jöfnu haldið uppi íslensku vinnuafli í kvikmyndaiðnaðinum.“ Kvikmyndageirinn skreppur saman  Stjórnarformaður True North segir samkeppnisstöðu Íslands hafa versnað mikið undanfarin ár  Nú sé jafnvel hagstæðara að taka upp kvikmyndir í Noregi  Fundu fyrir samdrætti vegna Brexit Ljósmynd/Þór Kjartansson/True North/Birt með leyfi Heimsþekkt vörumerki True North hefur meðal annars komið að upptökum á kvikmynd í Stjörnustríðsseríunni. Leifur B. Dagfinnsson Stjörnustríð og Þór » True North hefur síðustu ár komið að gerð kvikmynda á borð við Star Wars: The Force Awakens og Rogue One, Obli- vion, Noah, The Secret Life of Walter Mitty og Thor 2 (Thor: The Dark World), Fast & the Fu- rious 8 og Justice League. » Þá má nefna Black Mirror (Netflix), Alpha, Blade Runner 2049, Fast 8: Fate of the Furious, Justice League, 22 July (Netflix). » Leifur áætlar að félagið hafi komið að 9 af hverjum 10 stórum erlendum kvikmynda- verkefnum hér síðustu ár. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2018 laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Pappelina gólfmotta, 70 x 100 cm Verð 12.500 kr. Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is Á líkama Ragnars Lýðssonar voru tveir áverkar, annar á höfði og hinn á hægri síðu, sem máttu teljast lífs- hættulegir. Þetta sagði Sebastian Kunz réttarmeinafræðingur er hann bar vitni fyrir Héraðsdómi Suður- lands í gær í máli Vals Lýðssonar sem ákærður er fyrir að hafa orðið bróður sínum að bana á heimili sínu Gígjarhóli II 31. mars sl. Aðalmeð- ferð málsins er lokið og hefur nú ver- ið lagt í dóm Hjartar O. Aðalsteins- sonar dómstjóra á Suðurlandi. Sparkað í og stappað á Ragnari Alvarlegasti áverkinn á höfði Ragnars var langur skurður á vinstra enni, sem mikið blæddi úr. Kunz sagði að útilokað væri að sá áverki hefði verið afleiðing falls. Mat Kunz á áverkum á höfði og líkama Ragnars megi skýra með því að sparkað eða stappað hafi verið á Ragnari. Á hægri síðu hans voru mörg brot- in rifbein í kjölfar mikilla sparka eða stapps af hendi manns sem annað- hvort var berfættur eða í sokkum, sagði Kunz. Tvö rifbeinanna voru brotin á þá vegu að þau stungust inn í lifur og lungu Ragnars. Lítið blóð var í kringum áverka á lifur, sem Kunz segir að bendi til þess, þar sem lifrin sé blóðríkt líf- færi, að sá áverki hafi verið veittur annaðhvort rétt fyrir andlát Ragn- ars eða eftir það. Lifraráverkinn, sagði Kunz, var þó einn og sér ban- vænn, þ.e.a.s. Ragnar hefði látist vegna innvortis blæðinga af hans völdum, hefði hann ekki fengið lækn- isaðstoð, strax eða fljótlega. Kunz krufði lík Ragnars 3. apríl síðastliðinn og eins og fram kemur í ákæru var það mat Kunz að dauða Ragnars hefði borið að með óeðlileg- um hætti, líklegast saknæmum. Dánarorsök Ragnars var banvæn innöndun magainnihalds, í kjölfar af- leiðinga þungra högga á höfuðið. „Hinn látni kastaði upp, sem er þekkt viðbragð hjá einstaklingi sem hefur hlotið skaða á höfði, innan- skúmsskaða, og að teknu tilliti til þess að þegar hann byrjar að kasta upp var hann með lítilli meðvitund, ef einhverri, var hann ófær um að hósta upp innihaldi magans, sem eru þau viðbrögð sem einstaklingur með meðvitund myndi framkalla,“ sagði Kunz um dánarorsökina. Atlagan var „mjög harkaleg“ Kolbrún Benediktsdóttir saksókn- ari sagði það vera ljóst að atlaga Vals að Ragnari hefði verið „mjög harka- leg“ og að mati ákæruvaldsins teldist sekt Vals fullsönnuð. Ákæruvaldið fer fram á að Valur verði dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir manndráp. Þá nema bótakröfur barna Ragnars á hendur Vals alls 40 milljónum króna, eða 10 milljónum króna á hvert. Kol- brún sagði að Val hefði mátt vera það fullljóst að árás hans á Ragnar gæti endað með andláti þess síðar- nefnda. Ólafur Björnsson, verjandi Vals, fer fram á að Valur verði sýknaður af ákærunni, en að öðrum kosti að hon- um verði gerð vægasta refsing sem unnt er að gera, með vísan til þess að það hafi ekki verið ásetningur hans að svipta bróður sinn lífi. Þá krefst ákærði að bótakröfum barna Ragn- ars á hendur honum verði vísað frá eða þær lækkaðar verulega. Valur, sem er 68 ára gamall, hefur neitað sök í málinu og borið við minnisleysi um atburðina voveiflegu. Lífshættulegir áverkar  Alvarlegir áverkar á höfði og síðu  Aðalmeðferð í Gýgjar- hólsmálinu lokið  Ákæruvaldið telur sekt fullsannaða Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Mál Valur Lýðsson ásamt verjanda. „Það er auðvitað áhyggjuefni fyrir okkur ef ljósmæður eru óánægð- ar,“ sagði Linda Kristmundsdóttir, framkvæmdastjóri kvenna- og barnasviðs Landspítalans, við mbl.is í gær. Sex ljósmæður hafa enn ekki dregið uppsagnir sínar til baka eftir að samningur Ljós- mæðrafélagsins við ríkið var undir- ritaður í lok júlí. Samkvæmt nýjustu upplýsingum sem Linda hefur hafa engar nýjar uppsagnir borist í kjölfar úrskurð- ar gerðardóms, sem skilaði niður- stöðu sinni síðastliðið fimmtudags- kvöld. Talsverðrar óánægju gætir meðal ljósmæðra vegna þess að hún felur ekki í sér leiðréttingu á launa- setningu þeirra. Linda stefnir að því að taka stöð- una með yfirljósmæðrum sviðs Landspítalans sem fyrst. „Við erum stærsti vinnustaður ljósmæðra á landinu og það eina sem við getum gert er að horfa inn á við,“ sagði Linda enn fremur. Sex ljósmæður standa enn við uppsagnir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.