Morgunblaðið - 04.09.2018, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Ómar
Fjárfesting Stórir fjárfestingasjóðir
hafa nú keypt sig inn í Advania.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Stærsti lífeyrissjóður Danmerkur
hefur í samvinnu við fjárfestingarsjóð
sem rekinn er af norðurevrópska
sjóðastýringafyrirtækinu VIA equity,
keypt 30% hlut í upplýsingatæknifyr-
irtækinu Advania. Trúnaður ríkir um
kaupverð hlutarins. Tilkynnt verður
um kaupin í dag samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins.
Advania er í eigu finnska fjárfest-
ingasjóðsins Nordic Mezzanine,
sænskra fjárfesta og lykilstjórnenda
félagsins. Það rekur starfsstöðvar hér
á landi, í Noregi, Danmörku og Sví-
þjóð. Höfuðstöðvar félagsins eru í síð-
astnefnda landinu. Advania var áður í
meirihlutaeigu Framtakssjóðs Ís-
lands sem seldi fyrirtækið í tveimur
skrefum á árunum 2014 og 2015 til
Advinvest.
Íslendingar í lykilstöðum
Íslendingar hafa þó enn ríka að-
komu að félaginu. Forstjóri móður-
félagsins, Advania AB er Gestur B.
Gestsson. Forstjóri Advania á Íslandi
er hins vegar Ægir Már Þórisson.
Fleiri lykilstjórnendur fyrirtækisins
eru Íslendingar. Má þar m.a. nefna
Lilju Brynju Skúladóttur sem situr í
framkvæmdastjórn félagsins og Evu
Sóleyju Guðbjörnsdóttur sem er fjár-
málastjóri Advania á Íslandi. Þá situr
Katrín Olga Jóhannesdóttir, formað-
ur Viðskiptaráðs Íslands, í stjórninni.
Advania byggist á grunni margra
gamalgróinna íslenskra fyrirtækja.
Má þar m.a. nefna Einar J. Skúlason,
sem stofnað var 1939, SKÝRR sem
stofnað var 1953, Teymi hf., Kögun,
Landsteina Strengi, Eskil og HugAX.
»16
Kaupa 30% hlut í Advania
Stærsti lífeyrissjóður Danmerkur og fjárfestingasjóður koma í eigendahópinn
Þ R I Ð J U D A G U R 4. S E P T E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 207. tölublað 106. árgangur
TRÉ ÁRSINS
MÆLDIST 11
METRA HÁTT
FJÖLSÓTT
STEFNUMÓT
VIÐ MYNDLIST
KRISTINN SYNGUR
Á FYRSTU TÓNLEIK-
UM HAUSTSINS
LISTAKAUPSTEFNA 30 HAFNARBORG 33VESTURBÆJARVÍÐIR 12
Er kominn tími á
nýja þvottavél?
Sjáðu allt úrvalið á
elko.is
Minjastofnun vill að starfsemi
Björgunar ehf. sem til stendur að
flytja í Álfsnesvík við Kollafjörð
verði valinn annar staður. Í skýrslu
um mat á umhverfisáhrifum segir að
umrætt svæði sé einstök heild minja
um verslun, útveg og landbúnað.
Reykjavíkurborg skoðar nú hvernig
bregðast megi við þessari umsögn
og heitir samráði við Minjastofnun.
Skoða verði meðal annars hvort
grípa megi til mótvægisaðgerða.
Kjarni málsins sé þó sá að annar
staður fyrir starfsemi Björgunar sé
ekki tiltækur. Sá kostur að leita ann-
að sé illfær. Þá er bent á að með
staðsetningu í Álfsnesvík geti Björg-
un sótt möl til steypuframleiðslu í
sjó; sú efnisvinnsla geti verið hag-
kvæmur kostur og komið í veg fyrir
umhverfisrask í landi. »11
Morgunblaðið/RAX
Björgun Athafnasvæði við Ártúnshöfða.
Leggjast gegn flutn-
ingum Björgunar í
Álfsnesvíkina
Ákæruvaldið fer fram á að Valur
Lýðsson verði dæmdur í 16 ára
fangelsi fyrir manndráp, fyrir að
hafa orðið Ragnari Lýðssyni bróð-
ur sínum að bana 31. mars síðastlið-
inn á heimili Vals á Gýgjarhóli II í
Bláskógabyggð. Þetta kom fram í
málflutningi Kolbrúnar Benedikts-
dóttur saksóknara í Héraðsdómi
Suðurlands í gær. Verjandi Vals,
Ólafur Björnsson, fór fram á í mál-
flutningi sínum að Valur yrði sýkn-
aður af manndrápsákæru fyrir að
hafa orðið bróður sínum að bana,
en að öðrum kosti að honum yrði
gerð vægasta refsing sem unnt
væri að gera, með vísan til þess að
það hefði ekki verið ásetningur
hans að svipta bróður sinn lífi. »4
Ákæruvaldið krefst
16 ára fangelsis
Hollenska skemmtiferðaskipið Zuiderdam hélt
úr Sundahöfn í gær. Skipið var þá að ljúka þriðju
og síðustu ferð sinni til landsins í sumar. Fjöl-
mörg önnur skemmtiferðaskip eru væntanleg til
landsins í september. Síðasta skipið kemur til
Reykjavíkur í seinni hluta októbermánaðar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Síðasti stóri mánuðurinn í ferðum skemmtiferðaskipa
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Síðasta ár var annus horribilis í
rekstrinum. Hreinlega lélegt ár mið-
að við síðustu 6 ár. Því verður ekki
lýst á annan veg,“ segir Leifur B.
Dagfinnsson, stjórnarformaður
True North, um umsvif félagsins.
Veltan var 5 milljarðar árið 2016
en aðeins einn milljarður í fyrra.
True North hefur verið umsvifa-
mesta kvikmyndafyrirtæki landsins
þegar kemur að samstarfi við erlend
kvikmyndaver. Heimsþekktar kvik-
myndastjörnur hafa komið hingað til
lands vegna verkefna félagsins.
„Reksturinn verður þungur þegar
verkefnum fækkar og launin hækka.
Hvað á þá að gera? Á að halda dampi
eða segja öllum upp?“ spyr Leifur.
True North hefur meðal annars
komið að gerð Star Wars og Fast &
the Furious-mynda á Íslandi.
Ekki lengur samkeppnishæf
Spurður hvort tímabil framleiðslu
slíkra stórmynda sé að baki á Íslandi
bendir Leifur á hátt gengi krónunn-
ar. Það sé farið að bíta mikið.
„Það er búið að mynda svo mikið
hérna. Hingað hafa komið heims-
þekkt vörumerki eins og Star Wars
og þekktir leikstjórar og leikarar.
Annaðhvort hefur Ísland verið ofnot-
að eða að fyrirtækin telja einfaldlega
of dýrt að koma hingað og mynda á
Íslandi. Það er bara þannig. Við er-
um ekki samkeppnishæf sem stend-
ur,“ segir Leifur.
Hrun í kvikmyndagerð
Velta True North minnkaði úr 5 milljörðum í 1 milljarð milli ára 2016 og 2017
Félagið kom að gerð Star Wars Stjórnarformaður segir Ísland orðið of dýrt
Brexit hafði áhrif
» Leifur segir að í kjölfar
Brexit og lækkunar á gengi
pundsins hafi verulega dregið
úr eftirspurn frá Bretlandi.
» Breskir kvikmyndagerðar-
menn hafi nánast hætt að
koma hingað til lands.
» Þetta sé þó byrjað að lagast.
MKvikmyndagerð skreppur … »4