Morgunblaðið - 04.09.2018, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 247. DAGUR ÁRSINS 2018
Lofgjörðartónleikar verða haldnir í
Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu á
fimmtudaginn, 6. september, kl. 20
en þá mun Gospelkór Fíladelfíu leiða
söng ásamt hljómsveit undir stjórn
Óskars Einarssonar og verður Noel
McCalla sérstakur gestur. McCalla er
breskur söngvari, söng með íslensku
hljómsveitinni Mezzoforte um árabil
og hefur verið að koma fram með
henni undanfarið og söng í fyrra á 40
ára afmælistónleikum sveitarinnar.
Hljómsveitina sem leikur á tónleik-
unum á fimmtudaginn skipa Óskar
Einarsson, Jóhann Ásmundsson, Frið-
rik Karlsson, Pétur Erlendsson, Brynj-
ólfur Snorrason, Þórir Haraldsson,
Rafn Hlíðkvist, Jóhann Eyvindsson og
Greta Salóme Stefánsdóttir.
Á meðfylgjandi ljósmynd, sem tek-
in var árið 1984, um það leyti sem
hljómplatan No Limits kom út, má sjá
Mezzoforte með McCalla lengst til
hægri og sitjandi er David O’Higgins
saxófónleikari.
Noel McCalla
sérstakur gestur
Norræni kvartettinn Waco, skip-
aður Martin Myhre Olsen á saxó-
fóna, Kjetil André Mulelid á píanó,
Bárði Reinert Poulsen á kontrabassa
og Simon Olderskog Albertsen á
trommur, kemur fram á djasskvöldi
Kex hostels í kvöld kl. 20.30. Kvart-
ettinn hefur verið starfandi í fjögur
ár og hefur leikið
víða um heim og
hlotið lof fyrir.
Aðgangur er
ókeypis að tón-
leikunum.
Kex Hostel
er á Skúla-
götu 28.
Kvartett á Kexi
Deildarmeistarar Vals munu
helst fá keppni frá Íslands- og
bikarmeisturum Fram og ÍBV
á komandi vertíð í Olís-deild
kvenna, samkvæmt spá for-
manna fyrirliða og þjálfara
liðanna í deildinni. Vals-
mönnum er einnig spáð titl-
inum í Olís-deild karla, en öfl-
ugir leikmenn hafa haldið á
Hlíðarenda í sumar. Ef marka
má spána munu Haukar helst
halda í við Valsliðið í karla-
flokki. »3
Valur styrkst mikið
og mun svífa hæst
Ísland mætir Tékklandi á Laugardals-
vellinum klukkan 15 í dag í loka-
umferð undankeppni heimsmeistara-
móts kvenna í fótbolta, og þarf að
minnsta kosti jafntefli til að komast í
umspil um sæti í
lokakeppninni.
Sif Atladóttir
segir að leik-
urinn verði
erfiður
gegn
hörku-
liði. „Við
horfum til
þessa leiks eins
og bikarleiks.
Hann þarf að
vinna. Leikurinn er
upp á allt eða ekk-
ert,“ segir Sif. »1
Allt lagt í sölurnar
gegn Tékkunum í dag
„Það er kannski skrýtið að segja það
þegar við eru á toppnum en það er
deginum ljósara að við erum ekki að
spila eins vel og við getum,“ segir
Valsarinn Kristinn Freyr Sigurðsson
sem er leikmaður 19. umferðar Pepsi-
deildar í knattspyrnu. Hann telur sig
sjálfan hafa leikið undir getu á tíma-
bilinu en segir mestu máli skipta að
vinna Íslandsmeistaratitilinn. » 4
Toppliðið ekki spilað
eins vel og það getur
Þór Steinarsson
thor@mbl.is
Börnum býðst nú að æfa sig í
lestri með því að lesa upphátt fyr-
ir sérþjálfaða hunda í Bókasafni
Kópavogs.
„Hundarnir eru mjög góðir
hlustendur, þeir dæma ekki og
hlusta vel. Þetta eru sérþjálfaðir
hundar sem koma frá Vigdísi,
samtökum sem við erum í sam-
starfi með,“ segir Bylgja Júlíus-
dóttir, viðburðastjóri bókasafns-
ins, í samtali við Morgunblaðið.
Færri komast að en vilja
Verkefnið Lesið fyrir hunda er
aðallega hugsað fyrir börn á aldr-
inum 6-12 ára. Það hófst í vor og
verður haldið fyrsta laugardag
hvers mánaðar í vetur. Sex börn
komast að í hvert skipti og er að-
sóknin mikil. Færri komast að en
vilja.
„Þetta hefur verið ótrúlega vin-
sælt. Foreldrar velja lesefnið fyr-
irfram og börnin lesa með hund-
inum og eiganda hans í 15-20
mínútur. Eftir lesturinn geta
börnin fengið mynd af sér með
hundinum ef þau vilja,“ útskýrir
Bylgja.
Lesturinn fer fram á 3. hæð
bókasafnsins sem er rólegasta
svæðið í húsinu. Starfsmenn bóka-
safnsins færa til hillur og húsgögn
til að búa til afmarkað svæði fyrir
lesturinn. Teppi og púðum er svo
komið fyrir á gólfinu til að mynda
notalega og örugga stemningu.
Útskýra orð fyrir hundunum
Félagið Vigdís – vinir gæludýra
á Íslandi heldur utan um verkefni
og var stofnað sérstaklega í þeim
tilgangi. Hundarnir fara í sérstakt
mat og eigendur sækja námskeið
til að mega taka þátt.
„Eigandinn hlustar og leiðréttir
ekki þótt barnið lesi vitlaust held-
ur grípur frekar orð sem hann
heldur að barnið skilji ekki og bið-
ur barnið að útskýra það fyrir
hundinum,“ útskýrir Margrét Sig-
urðardóttir, formaður Vigdísar.
„Hundaeigendur sitja alltaf
með hundi og barni í lestr-
arstund. Eigendur verða að
vita hvað þeir eru að gera,“
bætir Margrét við.
Næsta lestrar-
stund fer fram 6.
október og ekk-
ert kostar að
taka þátt. Til
að skrá sig
þarf að senda
tölvupóst á
bylgjaj@kopavogur.is.
Lásu upphátt fyrir hunda
Hundarnir eru
góðir hlustendur
og dæma ekki
Morgunblaðið/Eggert
Lestur Rebekka Lind Steinarsdóttir las fyrir lestrarhundinn Sölku og eiganda Sölku, Gyðu Guðjónsdóttur.
Hundurinn Salka og eigandi hennar Gyða Guðjónsdóttir hafa aðstoðað
börn við lestur í þrjú ár. Salka er af tegundinni Cavalier.
„Hundur og eigandi mynda lestrarteymi. Allir vinna saman til að hjálpa
börnum að auka orðaforða og færni. Við gulltryggjum að við séum bæði
með frábæra hunda og frábært fólk til að passa að allir séu hæfir í verk-
efnið og allir vinni í sömu átt,“ segir Margrét Sigurðardóttir, formaður
Vigdísar.
Við lesturinn sitja eða liggja hundarnir kyrrir og leggja stundum
höfuðið á fætur barnanna.
„Ég hallast að því að hundunum þyki hryllilega nota-
legt að láta lesa fyrir sig. Það er viss ró í því,“ bætir
Margrét við.
Salka er góður hlustandi
VERKEFNIÐ LESIÐ FYRIR HUNDA HEFUR VERIÐ VIRKT Í 5 ÁR
Víkingur Bjarnason
og Salka náðu vel
saman.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 641 KR. ÁSKRIFT 6.960 KR. HELGARÁSKRIFT 4.346 KR. PDF Á MBL.IS 6.173 KR. I-PAD ÁSKRIFT 6.173 KR.
1. Dauði samfélagsmiðlastjörnu …
2. Nína Björk og Aron giftu sig
3. Svo feit og fín og ert að …
4. Hvað var hann að gera með hinni?
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á miðvikudag Hæg norðlæg eða breytileg átt og skýjað um morg-
uninn, en léttir síðan til S- og V-lands. Hiti 7 til 15 stig.
Á fimmtudag Suðaustanátt, 10-18 m/s og rigning með köflum V-
lands, hvassast á annesjum, annars hægari og víða léttskýjað.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, 3-10 m/s og dálítil rigning eða
skúrir, þó síst á NA-landi. Hiti 8 til 16 stig að deginum.
VEÐURÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á