Morgunblaðið - 04.09.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 04.09.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2018 1.259.000 Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Verð frá m. vsk Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á króna árið 2017 en var 535,2 millj- ónir árið 2016. Fyrirtækið seldi vörur og þjónustu fyrir tæpa 7 millj- arða króna árið 2017 miðað við tæpa 6,9 milljarða árið 2016. Eignir félagsins námu 3,9 milljörðum króna í árslok 2017 mið- að við 3,4 milljarða í árslok 2016. Eigið fé í árslok 2017 nam 803,5 milljónum króna miðað við 720,3 milljónir í árslok 2016. Eiginfjár- hlutfall fyrirtækisins nam 20,4% í árslok 2017. Heildarskuldir félags- ins námu 3,1 milljarði króna í árslok 2017 en á sama tíma árið 2016 námu þær 2,7 milljörðum króna. peturhreins@mbl.is Lyfjaverslanakeðjan Lyf og heilsa skilaði hagnaði upp á 283,2 milljónir króna árið 2017 og jókst hann um rúm 16% á milli ára en hagnaðurinn árið 2016 nam 243,2 milljónum króna. Fram kemur í ársreikningi félagsins að það hyggist greiða hlut- höfum arð sem nemur 100 milljónum króna. Félagið er nánast alfarið í eigu eignarhaldsfélagsins Faxar ehf. sem á 99,56% hlut en Toska ehf. á 0,44% hlut. Bæði félögin eru að fullu leyti í eigu Jóns Hilmars Karlssonar. Hann er sonur Karls Wernerssonar sem áður átti fyrirtækið. Rekstrarhagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir nam 604,5 milljónum Lyf og heilsa hagnast um 283 milljónir  Hagnaðurinn jókst um 16% á milli ára Morgunblaðið/Golli Heilsa Hagnaður Lyfja og heilsu hf. nam 283 milljónum króna árið 2017. ● WOW air flutti 28% fleiri farþega til og frá landinu í ágúst sl. en á sama tíma á síðasta ári, eða 413 þúsund farþega. Það er mesti fjöldi sem félagið hefur flutt í einum mán- uði frá upphafi. Í tilkynningu frá fé- laginu segir að sætanýting hafi sömuleiðis verið betri, en hún var 93% í mánuðinum samanborið við 90% í ágúst í fyrra. „Sætanýtingin jókst þrátt fyrir 30% aukningu á framboðnum sætiskílómetrum miðað við sama tímabil í fyrra,“ segir í tilkynningunni. Hlutfall tengifarþega hefur einnig aukist. Það er nú 61% samanborið við 43% á sama tíma í fyrra, og hef- ur aldrei verið hærra. Það sem af er ári hefur WOW air flutt um 2,4 milljónir farþega. Metfjöldi með WOW air 4. september 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 106.86 107.38 107.12 Sterlingspund 138.92 139.6 139.26 Kanadadalur 82.09 82.57 82.33 Dönsk króna 16.703 16.801 16.752 Norsk króna 12.808 12.884 12.846 Sænsk króna 11.711 11.779 11.745 Svissn. franki 110.51 111.13 110.82 Japanskt jen 0.9643 0.9699 0.9671 SDR 149.67 150.57 150.12 Evra 124.55 125.25 124.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.6491 Hrávöruverð Gull 1206.85 ($/únsa) Ál 2111.5 ($/tonn) LME Hráolía 77.53 ($/fatið) Brent ● Heildarviðskipti með hlutabréf í ís- lensku Kauphöllinni í ágúst námu tæp- um 37 milljörðum skv. nýrri samantekt frá Nasdaq OMX Iceland. Það er 4% hækkun frá fyrri mánuði. Viðskiptin hafa þó minnkað ef miðað er við sama tíma á síðasta ári, eða um 16%. Mest voru viðskipti með bréf Marel, Icelandair Group og N1. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,2% á milli mánaða og stendur nú í 1.594 stig- um, samkvæmt tilkynningunni. Í lok ágúst voru hlutabréf 23 félaga skráð á Aðalmarkað og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmark- aðsvirði skráðra félaga 997 milljörðum króna. tobj@mbl.is Hlutabréfaviðskipti í Kauphöll aukast um 4% STUTT 1,6 milljarða afgangur var á við- skiptajöfnuði við útlönd á öðrum árs- fjórðungi ársins 2018. Á sama tíma í fyrra var 11,9 milljarða afgangur á viðskiptajöfnuði. Hrein staða við út- lönd var jákvæð um 261 milljarð króna, eða um 9,8% af vergri lands- framleiðslu (VLF) og batnaði um 69 milljarða, eða um 2,6% af VLF í fjórðungnum. Þetta kemur fram í upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2018 og erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins. 49,8 milljarða halli Halli á vöruskiptajöfnuði var 49,8 milljarðar samanborið við 46,7 millj- arða halla yfir sama tímabil í fyrra. Afgangur á þjónustujöfnuði var 55 milljarðar króna en á sama tíma í fyrra nam afgangurinn 61,4 milljörð- um. Frumþáttatekjur skiluðu 100 milljóna króna afgangi en rekstrar- framlög 3,6 milljarða halla. Sam- kvæmt bráðabirgðayfirlitinu námu erlendar eignir þjóðarbúsins 3.250 milljörðum króna í lok ársfjórðungs- ins en skuldir 2.989 milljörðum. Hrein fjármagnsviðskipti bættu er- lenda stöðu þjóðarbúsins um 15 milljarða króna í fjórðungnum. Er- lendar eignir jukust um 15 milljarða króna vegna fjármagnsviðskipta en skuldir stóðu á jöfnu. Gengis- og verðbreytingar höfðu jákvæð áhrif á erlenda stöðu þjóð- arbúsins um 59 milljarða króna. Á vef Seðlabankans kemur fram að það skýrist af 3,1% lækkun á gengi krón- unnar gagnvart helstu gjaldmiðlum miðað við gengisskráningarvog og rúmlega 1% verðhækkunum á er- lendum verðbréfamörkuðum í árs- fjórðungnum. peturhreins@mbl.is 1,6 milljarða afgangur  Hrein staða við útlönd jákvæð um 261 milljarð króna Morgunblaðið/Ómar Jákvæð staða 1,6 milljarða afgang- ur reyndist vera á viðskiptajöfnuði. BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Gengið hefur verið frá kaupum danska lífeyrissjóðsins PFA og sjóðs í rekstri VIA equity á 30% hlut í upp- lýsingatæknifyrirtækinu Advania sem m.a. rekur umfangsmikla starf- semi hér á landi. Þetta herma heim- ildir Morgunblaðsins Tilkynnt verð- ur um kaupin opinberlega í dag. Núverandi eigendur Advania eignuðust meirihluta í félaginu þeg- ar Framtakssjóður Íslands seldi hlut sinn í því á árunum 2014 og 2015. FSÍ hafði eignast upplýsingatækni- fyrirtækið SKÝRR árið 2010. Í árs- byrjun var Advania hins vegar til í kringum umbreytingar- og samein- ingarferli SKÝRR. Samkvæmt upp- lýsingum sem FSÍ hefur látið uppi nam hagnaður af fjárfestingu sjóðs- ins í Advania 840 milljónum króna og jafngilti það heildarávöxtun upp á 50,6%. Núverandi eigendur Advania AB eru m.a. Nordic Mezzanina, sem er finnskur fjárfestingasjóður, hópur sænskra fjárfesta og lykilstjórnend- ur á vettvangi fyrirtækisins. Ekki hafa fengist upplýsingar um skipt- ingu eignarhluta í félaginu. Sterkir bakhjarlar VIA equity er danskt sjóðastýr- ingafyrirtæki sem fjárfestir í tækni- og þjónustugeiranum í Norður-Evr- ópu. Stærð þriggja meginsjóða í stýringu þess nemur 3 milljörðum danskra króna, jafnvirði 50,5 millj- arða íslenskra króna. PFA er stærsti lífeyrissjóður starfsfólks á almennum vinnumark- aði í Danmörku og nýtur m.a. þjón- ustu VIA equity í starfsemi sinni. Sjóðfélagar PFA eru 1,2 milljónir. Sjóðir PFA eru í dag metnir á um 500 milljarða danskra króna, jafn- virði 8.420 milljarða íslenskra króna. Til samanburðar námu eignir alls ís- lenska lífeyrissjóðakerfisins ríflega 3.900 milljörðum króna um síðustu áramót. Advania AB hefur vaxið mjög að umfangi á síðustu árum. Þannig kemur fram í nýjustu árs- skýrslu félagsins að tekjur félagsins hafi numið rúmum 2.800 milljónum sænskra króna, jafnvirði 33,2 millj- arða króna á síðasta ári og að þær hafi vaxið um 60% milli ára. Þá hafi EBITDA félagsins hækkað um 59% og nam þá 258 milljónum sænskra króna, jafnvirði ríflega 3 milljarða ís- lenskra króna. Nýtt fjármagn í Advania  Danskir fjárfestar kaupa umtalsverðan hlut í Advania AB  Íslendingar í lykil- stöðum hjá félaginu hér heima og erlendis  Tekjur félagsins 33,2 milljarðar í fyrra Morgunblaðið/Valli Forysta Forstjóri Advania AB er Gestur B. Gestsson (t.h.). Ægir Már Þórisson (t.v.) er forstjóri Advania á Íslandi. Fleiri lykilstjórnendur eru íslenskir. Löng saga » Einar J. Skúlason stofnaði samnefnt fyrirtæki í Reykjavík árið 1939. » Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar (SKÝRR) stofnað árið 1953. » SKÝRR er breytt í hlutafélag árið 1996 og fyrirtækið einka- vætt. » Áratug síðar eru SKÝRR og Teymi sameinuð undir merki fyrrnefnda félagsins. » Á árunum 2009 til 2011 sameinast Kögun, Landsteinar Strengur, Eskill, EJS og Teymi Hands í AS, ásamt Kerfi AB í Svíþjóð undir merki SKÝRR. » Advania verður til árið 2012 með sameiningu SKÝRR, Hug- urAx, Kerfi í Svíþjóð og Hands í Noregi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.