Morgunblaðið - 04.09.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.09.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2018 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Fyrir passann, ökuskírteinið, ferilskrána o.fl. Skjót og hröð þjónusta Engar tímapantanir Góð passamynd skiptir máli Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Nýliðinn ágúst var fremur svalur mánuður. Þetta kemur fram í yfir- liti Veðurstofu Íslands. Hiti var nærri meðallagi árin 1961 til 1990 en nær alls staðar undir meðallagi síðustu tíu ár, einna síst austan- lands. Úrkoma var meiri en í meðallagi norðan- og austanlands en undir meðallagi vestanlands. Þá var enn- fremur sólríkt á vesturhluta lands- ins. Er það mikil breyting frá fyrri sumarmánuðum, júní og júlí, sem voru með fádæmum vætusamir og sólarlitlir. Meðalhiti í Reykjavík í ágúst var 10,4 stig, 0,1 stigi ofan meðallags árin 1961 til 1990, en -1,5 stigum neðan meðallags síðustu tíu ár. Á Akureyri var meðalhitinn 9,6 stig, -0,3 stigum neðan meðallags árin 1961 til 1990, og -1,2 stigum neðan meðallags síðustu tíu ár. Í Stykkis- hólmi var meðal- hitinn 9,7 stig og 10,2 stig á Höfn í Hornafirði. Úrkoma var undir meðallagi á vestanverðu landinu en yfir meðallagi norð- an- og austan- lands. Úrkoma í Reykjavík mældist 48,1 millimetri, sem er um 78% af meðalúrkomu árin 1961 til 1990. Á Akureyri mældist úrkoman 53,3 mm og er það 56% umfram meðallag árin 1961 til 1990 Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 185, sem eru 30 fleiri en að meðallagi í ágúst. Á Akureyri mældust 117 sólskinsstundir, 19 færri en í meðalári. sisi@mbl.is Ágúst var svalur Í borginni Meðal- hiti var 10,4 stig.  Minni rigning og meiri sól vestanlands Alls seldust 90 verk á málverkauppboði Gallerís Foldar sem haldið var í gærkvöldi. Föl voru verk eftir marga af helstu myndlistamönnum þjóðar- innar svo og aðra minna kunna. Olíumálverk af Vestmannaeyjum eftir Sverri Haraldsson var slegið á 1.450 þúsund krónur, sem var tvöfalt verðmat á verkinu. Þá seldist mynd af Vík í Mýr- dal eftir Ísleif Konráðsson á þreföldu matsverði, það er eina milljón króna, sem er hæsta verð sem nokkru sinni hefur fengist á uppboði fyrir mynd eftir naívista. „Mætingin á uppboðið var góð og áhuginn greinilega talsverður, sem er í takt við það sem við höfum greint að undanförnu,“ segir Jóhann Ágúst Hansen uppboðshaldi í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. sbs@mbl.is Mynd af Vík í Mýrdal seld á þreföldu verði Morgunblaðið/Árni Sæberg Mikill fjöldi verka á málverkauppboði Gallerís Foldar Rekstur Árvakurs hf., útgefanda Morgunblaðsins, mbl.is og K100, þyngdist verulega árið 2017 frá fyrra ári. Tap fyrir skatta nam 241 milljón króna en var 48 milljónir árið áður. Versnandi afkoma skýr- ist af því að þrátt fyrir að tekjur hafi aukist um rúm 3% og numið 3,7 milljörðum þá jukust gjöld um tæp 9% og námu 3,9 milljörðum króna. Afkoma fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir var neikvæð um 93 milljónir króna, en var já- kvæð um 99 milljónir ári fyrr. Tap ársins nam 284 milljónum króna en árið 2016 var tapið 50 milljónir. Eiginfjárstaða er eftir sem áður sterk og var eiginfjárhlutfallið 39% um áramót. Þá var nýlega lokið við hlutafjáraukningu upp á 200 millj- ónir króna. Erfitt rekstrarumhverfi „Það er kunnara en frá þurfi að segja að rekstur einkarekinna ís- lenskra fjölmiðla er erfiður um þessar mundir og hefur raunar verið misserum saman eins og sést af umræðunni á vettvangi ríkis- valdsins að laga rekstrarumhverfi þeirra. Árvakur hefur ekki farið varhluta af þessu og eru skýring- arnar nokkrar,“ segir Haraldur Jo- hannessen, framkvæmdastjóri Ár- vakurs. „Samkeppnin við Ríkisútvarpið hefur farið harðnandi vegna auk- inna umsvifa þess, einkum á aug- lýsingamarkaði. Erlend samkeppni hefur einnig harðnað mjög og þar keppa innlendir miðlar við erlenda miðla sem búa við allt aðrar að- stæður, svo sem í skattalegu tilliti og í tækifærum til auglýsingasölu. Ennfremur hefur launakostnaður hér á landi hækkað ört og fyrir fyrirtæki þar sem sá liður vegur langsamlega þyngst í rekstrinum, þá er óhjákvæmilegt að það hafi veruleg áhrif. Hluti af tapi síðasta árs stafar þó einnig af því að við erum að byggja upp nýja starfsemi og sú uppbygging hefur kostað töluvert fé, en við gerum ráð fyrir að hún muni skila sér í auknum tekjum, meiri hagkvæmni og já- kvæðri afkomu. Við höfum á þessu ári sýnt aukið aðhald í rekstrinum en hann hefur engu að síður áfram verið þungur. Upp á síðkastið höfum við hert á þessum aðgerðum og teljum að þær muni duga til að loka því gati sem myndast hefur. Við höfum lagt okkur fram um að gera þetta án þess að skerða þjónustu við áskrif- endur og aðra notendur miðla Ár- vakurs og höfum frekar aukið við og breikkað þjónustuna.“ Sterk staða miðlanna „Það er ánægjulegt, og lykilat- riði til framtíðar, að staða miðla Árvakurs hefur haldist sterk og styrkst. Morgunblaðið nær nú til rúmlega helmings þjóðarinnar í hverri viku, sem er aukning frá fyrra ári, mbl.is heldur áfram yfir- burðastöðu sem fréttamiðill á net- inu og K100 hefur styrkt stöðu sína og þar teljum við mikil sóknarfæri. Við höfum líka verið að bjóða nýj- ungar, eins og Hljóðmoggann, fyrir fólk á ferðinni og aðra sem geta frekar hlustað á blöð en lesið þau. Þá erum við stöðugt að skoða ný tækifæri til vaxtar, til að afla nýrra tekna og veita aukna þjónustu,“ segir Haraldur. Neikvæð afkoma í erfiðu umhverfi  Tap af rekstri Árvakurs í fyrra  Miðlar fyrirtæk- isins standa sterkt Morgunblaðið/ÞÖK Fjölmiðlar Samkeppnin á íslenskum fjölmiðlamarkaði er mikil um þessar mundir og fer vaxandi, ekki síst vegna aukinna umsvifa Ríkisútvarpsins. Tímar keppenda í heilu og hálfu maraþoni í Reykjavíkur- maraþoninu í síð- asta mánuði eru ógildir. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Íþróttabandalag Reykjavíkur sendi frá sér und- ir kvöld í gær. Þar segir að mistök hafi verið gerð þegar brautir í mara- þoni og hálfu maraþoni voru lagaðar. Færa þurfti grindur við snúnings- punkt við Sæbraut skömmu fyrir hlaup og láðist að færa þær til baka. Afleiðingin varð sú að hlaupaleiðin var 213 metrum of stutt eins og end- urmæling staðfestir. Þrátt fyrir ógildingu tímans hafa dómarar Reykjavíkurmaraþonsins ákveðið að úrslit standi. Þó er óvíst hvort erlend hlaup taki tímana gilda sem inntökuskilyrði. „Maður finnur til með þeim sem voru að hlaupa á sínum bestu tím- um og fá þá ekki skráða og eins með þeim sem eru til dæmis að reyna að komast í Boston-maraþonið,“ sagði Arnar Pétursson, sem kom fyrstur Íslendinga í mark í Reykjavíkur- maraþoninu á dögunum í samtali við mbl.is í gærkvöldi. Tímarnir eru ógildir  Mistök í Reykja- víkurmaraþoninu Hlaup Leiðin var of stutt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.