Morgunblaðið - 08.09.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018
VERÐ FRÁ 319.900 KR.
Íslensk fararstjórn, vandaðar
gistingar og mikið innifalið.
NÁNAR Á UU.IS
4.–13. APRÍL EGYPTALAND
KAÍRÓ OG SIGLING
UM NÍL
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Villi bauð vinum sínum í „folf“ eða fótboltagolf í
skemmtigarði í tilefni þess að hann náði 12 árum
ekki aftra sér, en fyrstu haustdagarnir eru ekki
mikið frábrugðnir sumri að þessu sinni.
í gær. Eins og sjá má fer mikil einbeiting í spyrn-
una hjá drengnum. Strákarnir létu hvassviðri
Mikil einbeiting í fótboltagolfi á 12 ára afmæli Villa í hlýrri sunnanátt í Skemmtigarðinum í Grafarvogi
Íslenska sumarið heldur áfram að mestu óbreytt
Morgunblaðið/Hari
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Útgerðarrisinn HB Grandi hefur
undirritað samning við Brim hf. um
kaup á öllu hlutafé útgerðarfélagsins
Ögurvíkur. Kaupverðið nemur 12,1
milljarði króna. Það mun hins vegar
geta tekið leiðréttingum þegar niður-
staða fjárhagsuppgjörs félagsins
miðað við 31. ágúst 2018 liggur fyrir.
Kaupverðið er greitt í peningum og
verður fjármagnað með eigin fé og
lánsfé.
Athygli vekur að seljandi Ögurvík-
ur er jafnframt langstærsti hluthaf-
inn í HB Granda með 37% hlut.
Með kaupunum skýrist betur með
hvaða hætti Brim mun fjármagna til
lengri tíma kaupin á fyrrnefndum
hlut í HB Granda. Þau viðskipti
gengu í gegn fyrr á þessu ári og nam
kaupverðið 23,6 milljörðum króna.
Guðmundur Kristjánsson, for-
stjóri HB Granda og eigandi Brims,
segir að með viðskiptunum styrki HB
Grandi stöðu sína og byggi upp afla-
heimildir í tegundum sem fyrirtækið
hafi ekki verið mjög stórt í.
„Það á ekki síst við í þorski. Það er
gríðarlegur styrkur fyrir HB Granda
að eignast með þessu 2.500 tonn af
þorskkvóta,“ segir hann. Hann ítrek-
ar þó að Ögurvík verði áfram rekin
með sama hætti og fyrr, en nú sem
dótturfélag HB Granda.
„Það fylgja því miklir kostir að
kaupa fyrirtæki innan sama sveitar-
félags. Það þarf ekki að flytja neinar
aflaheimildir á milli. Vissulega munu
HB Grandi og Ögurvík skiptast á
aflaheimildum innbyrðis en það er
fyrst og síðast gert til þess að auka
hagkvæmni og styrkja stöðu beggja
fyrirtækja.“
Segir Guðmundur að HB Grandi
sé nýbúinn að láta smíða þrjá ísfisk-
togara og að með aukinni hagkvæmni
fyrirtækjanna verði landvinnsla efld.
Ögurvík gerir út einn frystitogara,
Vigra, sem smíðaður var í Noregi ár-
ið 1992. Skipið verður áfram gert út
en Guðmundur segist sjá fyrir sér að
því verði í auknum mæli beint í átt að
karfaveiðum til að tryggja hag-
kvæmni.
Hlutdeild Ögurvíkur í útgefnu
aflamarki er 1,76% en hlutdeild HB
Granda fram til þessa hefur verið
9,43%. Heildaraflamark félagsins eft-
ir kaupin fer þá í 11,19% en skv. lög-
um má hlutdeild hvers félags ekki
fara yfir 12% af aflamarki í landinu.
Frystitogari á sex milljarða
Samhliða kaupunum hefur HB
Grandi lýst því yfir að félagið skoði
sölu á frystitogara sem það er með í
smíðum á Spáni.
„Smíðaverðið á þessu skipi er sex
milljarðar. Við höfum áhuga á að
selja skipið í tengslum við fjárfest-
inguna í Ögurvík. Það dregur ekki úr
vilja okkar að veiðigjöldin á þær teg-
undir sem frystitogarar veiða eru fá-
ránlega há. Þetta eru því að mörgu
leyti hagkvæmnissjónarmið sem
liggja þarna að baki,“ segir Guð-
mundur.
HB Grandi kaupir Ögurvík af Brimi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Umsvif Guðmundur Kristjánsson leiðir nú enn ein stórviðskiptin á árinu.
Kaupverðið 12,1 milljarður sem greitt er með reiðufé Skoða sölu á frystitogara sem er í smíðum
Seljandinn er forstjóri HB Granda Heildaraflamark HB Granda verður 11,19% í kjölfarið
Stór viðskipti
» Brim hf. keypti 37% hlut í
HB Granda fyrr á þessu ári fyr-
ir 23,6 milljarða króna.
» Nú kaupir HB Grandi Ög-
urvík af Brimi fyrir 12,3 millj-
arða.
» Brim keypti Ögurvík af fyrri
eigendum í júní 2016 en kaup-
verðið var trúnaðarmál.
Vaðlaheiðargöng verða tilbúin föstu-
daginn 30. nóvember og opnuð fyrir
almennri umferð næsta dag, 1. des-
ember. Kveðið er á um þetta í sam-
komulagi sem Vaðlaheiðargöng hf.
og Ósafl sf. staðfestu í gær. Einnig
var gert samkomulag um uppgjör og
greiðslu bóta upp á tæplega 1.400
milljónir króna til verktakans sam-
kvæmt úrskurði sáttanefndar.
Bæturnar koma einkum vegna
þess að í göngunum var meiri jarð-
hiti en nokkru sinni var reiknað með
og tafði vatnselgurinn verkið um
marga mánuði. Í tilkynningu sem
gefin var út í gær segir að verkkaupi
geri ágreining um bótafjárhæðina og
áskilji sér rétt til að fara með málið
fyrir dóm.
„Við munum nú einhenda okkur í
lokavinnuna, kalla til fleiri starfs-
menn og setja fleiri á vaktir til þess
að ná því markmiði að skila göng-
unum tilbúnum til umferðar 30. nóv-
ember næstkomandi,“ segir Einar
Hrafn Hjálmarsson, verkefnisstjóri
Ósafls, í tilkynningu.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra upplýsti ríkisstjórnina í gær
um stöðu málsins, það er samning
um hvernig ljúka megi framkvæmd-
um á tilsettum tíma. Allt byggist það
á samningi um lán frá ríkissjóði, sem
er hluthafi í Vaðlaheiðargöngunum.
Skilyrðin sem sett eru fyrir láninu
snúa að því hvernig verkkaupi geti
þegar þarf dregið á lán til að borga
verktakanum.
Mikill léttir
„Það er okkur léttir að geta tryggt
opnun ganganna áður en vetur sest
að fyrir alvöru. Við höfum fundið
mikinn áhuga hér norðanlands og
raunar allra sem þurfa að treysta á
öruggar samgöngur um þetta
svæði,“ segir Valgeir Bergmann,
framkvæmdastjóri Vaðlaheiðar-
ganga. sbs@mbl.is
Göngin opnuð 1. desember
Samið um verklok í Vaðlaheiði Ríkið setur skilyrði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vaðlaheiðargöng Valgeir Berg-
mann hefur stýrt verkefninu.
Sjötugur karlmaður lést í vinnuslysi
sem varð í botni Skutulsfjarðar rétt
fyrir klukkan 14 í gær. Maðurinn
lést þegar hann varð undir hlera
dráttarvagns. Slysið varð þegar ver-
ið var að undirbúa affermingu. Lög-
reglan á Vestfjörðum og Vinnu-
eftirlitið rannsaka tildrög slyssins.
Lést í
vinnuslysi
Dómkvaddir matsmenn hafa kom-
ist að þeirri niðurstöðu að Samband
sveitarfélaga á Suðurnesjum hafi
orðið af allt að þremur milljörðum
króna þegar einkaleyfi til fólks-
flutninga var afturkallað af hálfu
Vegagerðarinnar. Þetta staðfestir
Berglind Kristinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri sambandsins.
Málið snýr að leið strætós númer
55 sem ekur milli höfuðborgar-
svæðisins og Keflavíkurflugvallar.
Strætó fékk upphaflega einkaleyfi
á umræddri leið árið 2012, en það
var síðan afturkallað með ólögmæt-
um hætti að mati SSS.
Berglind segir málið nú hjá ríkis-
lögmanni og vonar hún að takist að
afgreiða málið í sátt.
Gætu átt milljarða
hjá Vegagerðinni