Morgunblaðið - 08.09.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018
Stjórnendur N-lax ehf. (áður Norð-
urlax) tilkynntu ekki Fiskistofu um
slysasleppingu sem varð úr landeldi
fyrirtækisins á regnbogasilungi á
Auðbrekku við Húsavík eins og þó
er skylt samkvæmt lögum. Viðbrögð
fyrirtækisins voru heldur ekki sam-
kvæmt skráðu verklagi þess. Málið
er til áframhaldandi skoðunar hjá
Fiskistofu, að því er fram kemur í
tilkynningu Matvælastofnunar.
Slysasleppingin varð í síðasta
mánuði. Athugun Matvælastofnunar
bendir til þess að við slátrun úr einu
keri hafi losnað rist af niðurfallsröri
og fiskar komist í frárennsli stöðv-
arinnar sem rennur í fráveitukerfi
Húsavíkur. Vitað er að eldisfiskar
bárust í fráveitu bæjarins. Fram
kemur í tilkynningu Mast að engin
hreinsun er í fráveitukerfinu og því
ekki hægt að útiloka að lifandi fisk-
ur hafi borist til sjávar. Tekið er
fram að eldisfiskurinn er ófrjór og
getur ekki fjölgað sér í íslenskri
náttúru.
Umfang slysasleppingarinnar er
óljóst en þó ekki talið verulegt. Talið
er að 300 regnbogasilungar hafi
verið í kerinu og sláturtölur gefa til
kynna að hátt hlutfall þeirra hafi
skilað sér í slátrun.
N-lax ehf. starfar samkvæmt
starfsleyfi sem það tók við af
Norðurlaxi. Leyfið nær til eldis í
kerjum á landi, fyrir allt að 20 tonn-
um af laxi, regnbogasilungi og
bleikju.
Er þetta önnur slysasleppingin
sem vitað er um á þessu ári. Lax
slapp úr sjókvíum Arnarlax í
Tálknafirði í byrjun júlí í sumar.
Silungur slapp um fráveitu
N-lax ehf. við Húsavík tilkynnti ekki um slysasleppingu
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
Nýjar
vörur!
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
Nýjar
haust
vörur
KJÓLL 12.990.-
Til í gulu, gráu, vínrauðu
ST: 38-44
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Glæsilegt
peysuúrval
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Túnikur
Kr. 8.990
Str. 44-56
Opið í dag kl. 11-15
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Skoðið LAXDAL.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
Buxna-, peysu- og
blússuúrval
Fasteignir