Morgunblaðið - 08.09.2018, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018
vilji hann vekja athygli á sólarorku
og hvers hún er megnug.
Miklir möguleikar Indlands
„Ég hef mikinn áhuga á endurnýj-
anlegum orkugjöfum. Indland á
mikla möguleika þegar kemur að
sólarorku. Þar er mikil sól. En það
eru ekki margir á Indlandi sem vita
af sólarorku. Sérstaklega í minni
bæjum þar sem menntunarstig er
lágt. Þess vegna hóf ég þetta verk-
efni. Hugmyndin er að nota endur-
nýjanlega orku til þess að ferðast á
milli staða og upplýsa og mennta
fólk í leiðinni,“ segir Sushil.
Sushil ferðast á rafhjóli með kerru
og sólarsellu sem IKEA útvegar og
er fyrirtækið hans aðalstyrktaraðili.
Kom hann að þróunarvinnu hjólsins
ásamt IKEA en umverfisvænar
samgöngur eru fyrirtækinu hug-
leiknar. Sést það bersýnilega þegar
horft er yfir bílastæðin fyrir utan
verslunina en þar eru nú 60 hleðslu-
stöðvar fyrir rafbíla.
Óttast íslenskan vind
Sushil segir að afar mikilvægt sé
að vekja athygli á endurnýjanlegum
orkugjöfum. „Það er mjög mikilvægt
fyrir yngri kynslóðina að skilja
hversu mikilvægt það er að stemma
stigu við hnattrænni hlýnun og
hversu augljós áhrif hennar eru og
verða á líf hennar. Þetta er alþjóðleg
áskorun. Ekki bara fyrir fólk á Ind-
landi eða á Íslandi. Það þurfa allir að
skilja og viðurkenna að veðurfar er
að breytast mjög hratt og að hrein
orka er það sem þarf. Af nógu er að
taka. Við höfum sólarorku, vindorku
og vatnsorku,“segir Sushil.
Spurður hvernig honum lítist á ís-
lenskar veðuraðstæður segist hann
helst óttast vindinn. „Þetta verða
120 km á dag, sem er nokkuð mikið.
En ég er reyndur hjólamaður og æfi
á hverjum degi á Indlandi. Það er
reyndar aðeins öðruvísi. Það er
kannski helst vindurinn sem ég
hræðist en ég verð rétt búinn.“
Hrein orka nauðsynleg fyrir alla
Indverjinn Sushil Reddy hyggst hjóla í kringum Ísland á rafhjóli og vekja athygli á hreinni orku
Hann hjólaði 7.400 km leið um Indland og fræddi þá sem á vegi hans urðu um mikilvægi sólarorku
7.400 km löng ferð Sushils um
Norðvestur-Indland tók 79
daga. Stoppaði hann ásamt
teymi sínu í 78 bæjum í 10 mis-
munandi fylkjum á Indlandi.
„Við dvöldum hjá heimafólki.
Heimafólkið skipulagði svo við-
burði í kringum komu okkar þar
sem við sátum oft saman í hring
og útskýrðum hvernig sólarorka
virkar í verki. Vorum með tæki
og tól og auðvitað hjólið. Þetta
var sameiginlegt verkefni okkar
allra. Indland er fjölbreytt land
og það voru töluð samanlagt 10
tungumál í bæjunum sem við
fórum í gegnum. Við þurftum
því að fá aðstoð heimafólks við
túlkun. Þetta var mjög lær-
dómsrík reynsla,“ segir Sushil.
Fengu hjálp
heimafólks
SAMVINNUVERKEFNI
Indland Sushil hjólaði 7.400 km leið um Indland og hér sést hann með Taj Mahal-höllina frægu í baksýn.
Þekking Sushil hafði margt fram að færa á ferðum sínum og fræddi þá sem
á vegi hans urðu um mikilvægi sólarorku fyrir Indland.
Morgunblaðið/Valli
Ikea Húsgagnarisinn IKEA er aðalstyrktaraðili Sushil og þróaði með hans að-
stoð þetta rafhjól með sólarsellu sem á að koma honum hringinn um Ísland.
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Indverjinn Sushil Reddy er væntan-
legur til landsins hinn 11. september
og hyggst takast á við það verðuga
verkefni að hjóla hringinn um landið
á rafhjóli með kerru og sólarsellu.
Sushil vill með þessu framtaki vekja
athygli á hreinni orku og er í for-
svari fyrir framtakið Sun Pedal
Ride. Fyrsta ferð hans var löng og
ströng, um 7.400 km, og lá í gegnum
10 fylki á Norðvestur-Indlandi þar
sem jafn mörg tungumál eru töluð.
Fyrir afrekið komst kappinn í
Heimsmetabók Guinness fyrir
lengstu ferð á rafhjóli. Sushil kemur
til Íslands á vegum Charge-
ráðstefnunnar og verður það í þriðja
skipti sem þessi alþjóðlega ráðstefna
er haldin hér á Íslandi þar sem
fulltrúar orkufyrirtækja koma sam-
an og ræða um mikilvægi vöru-
merkjastjórnunar í geiranum.
Sushil leggur af stað 12. septem-
ber og hyggst taka sér tvær vikur í
ferðina en það er IKEA sem útveg-
aði Sushil hjólið, kerruna og sólar-
selluna. Þar sem veðurskilyrði geta
verið með ýmsu móti á þessum tíma
árs mun E-Golf-rafbíll frá Heklu
fylgja Sushil hringinn.
Hugsar alla daga um lausn
„Náttúran hefur mikla orku sem
hægt er að beisla,“ sagði Sushil er
blaðamaður Morgunblaðsins sló á
þráðinn til hans í Mumbai. Sushil
ólst upp í þessari 12 milljón manna
borg á Indlandi. „Þar er augljóslega
mjög mikil mengun. Þegar þú býrð í
svona stórborg kemstu í snertingu
við mengun alla daga. Á sama tíma
hugsar maður um lausn við vand-
anum. Hvernig hægt sé að minnka
mengun. Það má segja að þetta sé
eitt af því sem hvatti mig persónu-
lega til þess að fara út í þetta verk-
efni,“ segir Sushil sem er orkuverk-
fræðingur og útskrifaðist frá
háskóla á Indlandi árið 2013.
Sushil segir að með ferðum sínum
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Fleiri
frábærir
tímar í boði!
Fitform
60 ára plús
Nánar á jsb.is
og í síma 581 3730
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
Dr. Friðrik Larsen er forvígismaður
ráðstefnunnar Charge – Energy
Branding sem haldin verður í
þriðja skipti dagana 24.-25. sept-
ember næstkomandi. Þar verður
mikilvægi vörumerkjastjórnunar
hjá orkufyrirtækjum til umfjöll-
unar.
Íslendingar í dauðafæri
Friðrik segir að almennt séu orku-
fyrirtæki orðin meðvitaðri um
markaðssetningu á afurðum sín-
um en að sú þróun sé nokkuð hæg
og að sum fyrirtæki eigi langt í
land með það að skilja út á hvað
það gangi að verða að vörumerki.
Aðspurður segir Friðrik að það sé
mikilvægt fyrir öll íslensk útflutn-
ingsfyrirtæki að markaðssetja sín-
ar vörur á hreinum orkugrunni.
„Íslendingar eru í algjöru dauða-
færi að búa til vörumerki fyrir ís-
lenska orku sem byggir á sjálf-
bærum grunni. Það er ein ástæða
fyrir því að ég held ráðstefnuna
hér. Ég vil að við sjáum mögu-
leikana í því að virkja hugvitið úr
háskólunum líka, ekki bara ár og
sprænur,“ segir Friðrik. „Þetta á
ekki einungis við um orku-
fyrirtæki, heldur öll fyrirtæki sem
eru að flytja út vörur sem nota ís-
lenska orku sem grunn.“
Virkja ekki bara ár og sprænur
ORKUMARKAÐURINN