Morgunblaðið - 08.09.2018, Page 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018
8. september 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 109.38 109.9 109.64
Sterlingspund 141.5 142.18 141.84
Kanadadalur 82.94 83.42 83.18
Dönsk króna 17.035 17.135 17.085
Norsk króna 13.01 13.086 13.048
Sænsk króna 12.011 12.081 12.046
Svissn. franki 112.76 113.4 113.08
Japanskt jen 0.9819 0.9877 0.9848
SDR 152.91 153.83 153.37
Evra 127.04 127.76 127.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.2483
Hrávöruverð
Gull 1204.3 ($/únsa)
Ál 2030.0 ($/tonn) LME
Hráolía 77.02 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Landsframleiðsla á öðrum ársfjórð-
ungi jókst um 7,2% að raungildi frá
sama fjórðungi árið í fyrra. Þetta
kemur fram í nýrri mælingu Hag-
stofu Íslands sem gerð var opinber í
gær. Hagvöxtur á fyrri árshelmingi
mælist 6,4% en vöxturinn hafði
mælst 5,4% yfir sama tímabil í fyrra.
Slagkrafturinn í hagkerfinu er tölu-
vert meiri nú en greiningaraðilar
höfðu gert ráð fyrir.
Meiri fjárfesting en spáð var
Það er fjárfesting sem helst dreg-
ur vagninn um þessar mundir en hún
jókst um 7,5% á öðrum fjórðungi. Þá
jókst einkaneysla um 5,1% meðan
samneyslan jókst um 2,8%.
Greiningardeild Arion banka lýsir
hinum nýju tölum sem „dúndrandi
hagvexti“ og bendir á að atvinnu-
vegafjárfesting hafi vaxið um 6% en
Seðlabankinn hafi spáð 7,2% sam-
drætti fyrir árið í nýútgefnum Pen-
ingamálum. Þá hafi bankinn spáð
samdrætti upp á 3,5%. Þá bendir
bankinn á að vöxtur fjárfestingar í
íbúðarhúsnæði sé mikill og nemi
19%.
Hagvöxtur
mun meiri
en spáð var
Mældist 7,2% á
öðrum ársfjórðungi
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Tryggingafræðileg staða stærstu líf-
eyrissjóða landsins hefur orðið fyrir
áhrifum vegna mikillar lækkunar á
hlutabréfum Icelandair Group á síð-
ustu misserum. Á lista yfir 20
stærstu hluthafa fyrirtækisins eru
11 lífeyrissjóðir. Þeir eiga samanlagt
tæp 55% í fyrirtækinu. Frá því að
gengi bréfa félagsins reis hæst í apr-
ílmánuði 2016 hefur markaðsvirði
þess lækkað um nærri 158 milljarða
króna. Miðað við núverandi eigna-
stöðu sjóðanna 11 hefur eign þeirra í
félaginu því rýrnað um 87 milljarða
króna. Þannig hefur gengi bréfa fé-
lagsins lækkað úr 38,9 í 7,38.
Í þessu sambandi er hins vegar
nauðsynlegt að minnast þess að
margir sjóðanna eignuðust öll eða
verulegan hluta bréfa sinna í félag-
inu á gengi sem var mun lægra en
núverandi gengi þeirra. Þannig
keypti Lífeyrissjóður verslunar-
manna t.d. stærstan hluta sinna
bréfa seint á árinu 2010 á genginu
2,5.
Áhrifin mikil hjá þeim stærsta
Um langt árabil hefur Lífeyris-
sjóður verslunarmanna verið stærsti
hluthafi Icelandair Group og nemur
eignarhluturinn í dag tæpum 14%.
Morgunblaðið leitaði svara við því
hvaða áhrif lækkun bréfa Icelandair
Group hefur haft á tryggingafræði-
lega stöðu sjóðsins. Spurt var hver
áhrifin hefðu verið frá árslok 2016,
þegar gengi bréfa félagsins í Kaup-
höll stóð í 23,55.
Svar sjóðsins er að áhrifin nemi
1,1 prósentustigi. Í svarinu er þó
einnig ítrekað eins og áður segir að
sjóðurinn keypti stærstan hluta
bréfa sinna í félaginu á mun lægra
gengi og að frá árinu 2010 nemi „[…]
árleg raunávöxtun […]14,07%. Til
samanburðar má nefna að árleg
raunávöxtun sjóðsins frá 2010 er
5,5%. Frá 2010 hefur sjóðurinn feng-
ið arðgreiðslur að fjárhæð 1,7
ma.kr.“ Lífeyrissjóður starfsmanna
ríkisins er næststærsti hluthafi Ice-
landair. Eign sína varðveitir sjóður-
inn í tveimur aðskildum deildum, A-
og B-deild. Samanlagt stendur hlut-
urinn í 9,78%. Þegar mest lét átti
LSR 14% í félaginu. Hefur sjóðurinn
því dregið úr eignarhlut sínum í
sjóðnum um þriðjung á síðastliðnum
þremur árum.
Frá árslokum 2016 hefur lækkun
bréfa Icelandair þrýst trygginga-
fræðilegri stöðu A-deildar sjóðsins
niður um 0,72 prósentustig. B-deild-
in hefur orðið fyrir minni áhrifum og
nemur hún 0,3 prósentustigum til
lækkunar.
Þriðji stærsti eigandi Icelandair
Group er Gildi lífeyrissjóður og er
eignarhluturinn í dag tæp 8% af út-
gefnu hlutafé félagsins. Áætluð áhrif
verðlækkunar bréfa Icelandair á
tryggingafræðilega stöðu sjóðsins
frá ársbyrjun 2017 til loka ágúst-
mánaðar eru metin 0,7 prósentustig.
Hefur aukið stöðu
sína frá 2016
Líkt og í svari Lífeyrissjóðs versl-
unarmanna kemur fram í svari Gildis
að „góð afkoma Icelandair síðustu ár
hefur haft jákvæð áhrif á trygginga-
fræðilega stöðu.“
Frá ársbyrjun 2016 hefur Gildi
selt 6 milljónir bréfa í Icelandair og
er meðalgengi í þeim viðskiptum
32,6 fyrir samtals 195,3 milljónir
króna. Yfir sama tímabil hefur Gildi
hins vegar bætt við eignarhlut sinn í
Icelandair sem nemur 112,2 milljón-
um hluta. Meðalgengi þeirra við-
skipta var á genginu 17,9 eða fyrir
um 2 milljarða króna.
Lækkunin víða haft áhrif
Morgunblaðið/Ómar
Upp og niður Bréf Icelandair hafa risið mjög og hnigið á síðustu árum.
Tryggingafræðileg staða lífeyrissjóðanna versnar vegna lækkunar Icelandair
Lífeyrissjóður verslunarmanna hefur nær ekkert selt í félaginu á síðustu árum
Eignastýringarfyrirtækið State
Street Global Advisors hefur fjár-
fest í íslenska ferðaþjónustufyrir-
tækinu Guide to Iceland fyrir 20
milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði
2,2 milljarða króna. Með viðskipt-
unum eignast Street Global Advis-
ors 20% hlut í fyrirtækinu.
Heildarvirði þess samkvæmt
viðskiptunum er því 11,2 millj-
arðar króna.
Fyrirtækið skilgreinir sig sem
markaðstorg íslenskrar ferðaþjón-
ustu og þar geta ferðaskipuleggj-
endur, gististaðir og fleiri boðið
þjónustu sína. Yfir 500 íslensk
ferðaþjónustufyrirtæki nýta sér
þann vettvang. Þá segir í tilkynn-
ingu sem send var út í tengslum
við fjárfestinguna að vefsíða
Guide to Iceland fái um eina millj-
ón heimsókna í mánuði hverjum.
Fjárfesta
í Guide to
Iceland
Íslenska ferðaþjónustufyrirtækið Íslenskir fjalla-
leiðsögumenn hefur hætt sérferðum sínum til
Grænlands í bili og er fyrirtækið í endurskipu-
lagningu á þeim rekstri. Kom til uppsagna og var
þremur sölumönnum sagt upp ásamt öðrum
starfsmönnum sem hafa sinnt þjónustuhlutverk-
um í ferðum til Grænlands. Íslenskir fjallaleið-
sögumenn þjónusta 70-80 þúsund ferðamenn á ári
og starfa um 120 manns við kjarnaþjónustu fyrir-
tækisins. Hátt í 250 starfsmenn vinna þar á sumr-
in. Ágústmánuður var metmánuður hjá fyrirtæk-
inu en þrátt fyrir það stendur yfir endurskipu-
lagning á ferðum fyrirtækisins til Grænlands.
Íslenskt rekstrarumhverfi, sterkt gengi krónunn-
ar og launakostnaður gera það að verkum að erfitt
er að reka slíka þjónustu erlendis.
„Við erum í endurskipulagningu á þeim rekstri.
Við erum ennþá með bækistöðvar á Grænlandi og
starfsemi en við höfum hins vegar verið að taka til
í þeim söluvörum sem við vorum með,“ segir Arn-
ar Bjarnason, framkvæmdastjóri Íslenskra fjalla-
leiðsögumanna, en tekur þó fram að Grænlands-
starfsemin sé lítill hluti af heildarstarfsemi
fyrirtækisins.
Íslensku launakostnaður miklu hærri
„Gengi krónunnar hefur gert það að verkum að
það er erfitt að reka þjónustu á Grænlandi frá Ís-
landi á samkeppnisgrundvelli. Það getur verið að
við förum með þessa starfsemi til Grænlands og
rekum það undir danskri kennitölu. Það er allt op-
ið í því,“ segir Arnar við Morgunblaðið. „Við erum
í raun að laga fyrirtækið að breyttu rekstrarum-
hverfi með því að bjóða upp á dagsferðir og lengri
ferðir á Íslandi.“ Spurður hvort þessi endurskipu-
lagning hafi átt sér langan aðdraganda segir Arn-
ar svo vera. „Síðasta ár var erfitt. Við erum í þess-
um breytingafasa og erum að laga okkur að
breytingum á markaði,“ segir Arnar.
„Launakostnaður íslenskra leiðsögumanna er
mun hærri en evrópskra leiðsögumanna. Laun
hafa hækkað um 70% frá 2011, eða um 10% á ári að
meðaltali ef horft er á launavísitöluna. Það er
hægt að fá leiðsögumenn frá Evrópu sem kosta
helminginn af því, jafnvel einn þriðja. Það er rosa-
lega mikill munur. Við getum ekki rekið þetta út
frá íslenskum forsendum,“ segir Arnar, en á
Grænlandi hafa Íslenskir fjallaleiðsögumenn verið
í samkeppni við fyrirtæki tengd dönsku og græn-
lensku atvinnulífi auk ferðaskrifstofa frá Banda-
ríkjunum. peturhreins@mbl.is
Hætta sérferðum til Grænlands
Íslensk laun gera Íslenskum fjallaleiðsögumönnum erfitt fyrir á Grænlandi
– fyrir dýrin þín
Ást og umhyggja fyrir dýrin þín
Veldu bosch hundafóður fyrir hundinn þinn
Þýskt hágæða fóður – fersk innihaldsefni án aukaefna.
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranes | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
15 kg
8.990 kr.