Morgunblaðið - 08.09.2018, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Stjórnvöld í Kína hafa lofað að
auka lánveitingar sínar og fjárfest-
ingar í Afríku um 60 milljarða
Bandaríkjadala á næstu þremur ár-
um. Xi Jinping, forseti Kína, sagði
á tveggja daga fundi með leiðtogum
Afríkuríkja í Peking í vikunni að
stjórn sín setti ekki nein skilyrði
fyrir aðstoðinni en varaði stjórn-
völd í samstarfslöndunum við því að
eyða fénu í óarðbær „gæluverk-
efni“.
Kínverska stjórnin lofaði lönd-
unum 15 milljörðum dala í styrki og
lán án vaxta eða með ívilnunum.
Hún hét enn fremur 20 milljarða
dala lánalínu, stofnun 10 milljarða
sjóðs sem á að fjármagna þróunar-
aðstoð og fimm milljarða sjóðs sem
á að greiða fyrir innflutning frá
Kína. Stjórnin hyggst einnig hvetja
kínversk fyrirtæki til að fjárfesta
að andvirði 10 milljarða dala í
Afríkulöndunum.
Þetta bætist við 60 milljarða dala
lán, styrki og fjárfestingar sem kín-
versk stjórnvöld lofuðu Afríku-
löndunum á leiðtogafundi sem hald-
inn var fyrir þremur árum.
Skuldavandinn eykst
Xi Jinping skýrði einnig frá því
að Kínverjar myndu afskrifa vaxta-
laus lán sem þeir hafa veitt fátæk-
ustu og skuldugustu Afríkulönd-
unum og falla í gjalddaga fyrir lok
ársins. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
varaði við því í maí að 15 af 35 fá-
tækum Afríkulöndum sunnan Sa-
hara stæðu frammi fyrir alvar-
legum greiðsluvanda vegna mikilla
skulda. Stjórnvöld í nokkrum vest-
rænum löndum hafa sakað Kínverja
um að hafa aukið skuldabyrði
ríkjanna með því að veita þeim lán
til að fjármagna verkefni í
tengslum við stefnu Xi sem nefnd
hefur verið Belti og braut og miðar
að gerð mannvirkja sem auka að-
gang Kínverja að mörkuðum og
náttúruauðlindum í Asíu, Afríku og
Evrópu, auk þess að styrkja stöðu
Kína sem heimsveldis. Nokkrir
vestrænir embættismenn hafa jafn-
vel sakað Kínverja um að hegða sér
eins og nýlenduveldi í Afríku til að
efla efnahag Kína.
Kínversk stjórnvöld neita þessu.
„Kínverjar hafa ekki aukið skulda-
byrði Afríku. Ástæður skuldavanda
álfunnar eru flóknar. Skuldirnar
hafa hlaðist upp á löngum tíma,“
hefur fréttaveitan AFP eftir Xu
Jinghu, sérlegum sendimanni kín-
versku stjórnarinnar í afrískum
málefnum. „Jafnvel þegar litið er á
ríki sem eru mjög skuldug kemur í
ljós að Kína er ekki helsti lánar-
drottinn þeirra. Þannig að það er út
í hött að kenna Kína um skuldir
Afríku.“
Stofnun Johns Hopkins-háskóla,
sem rannsakar tengsl Kína og Afr-
íku (CARI), segir að kínverskir
bankar hafi veitt Afríkulöndum og
ríkisfyrirtækjum þeirra lán að and-
virði 136 milljarða dala á árunum
2000 til 2017. Kína sé helsti lánar-
drottinn aðeins þriggja af 17
Afríkulöndum sem eru í mestum
skuldavanda, þ.e. Djíbútí, Vestur-
Kongó og Sambíu. Gert er ráð fyrir
því að skuldabyrði þeirra minnki
vegna afskriftanna sem Xi boðaði.
Greiðsluvandi Afríkuríkja er
einnig rakinn til þess að hrávöru-
verð hefur lækkað í heiminum og
útflutningstekjur þeirra hafa því
minnkað. Útflutningur Afríku-
ríkjanna til Kína var talsvert meiri
en innflutningur þeirra frá landinu
á árunum 2010-2014 en verðlækk-
unin varð til þess að þetta hefur
snúist við. Innflutningur þeirra frá
Kína umfram útflutninginn þangað
nam 50 milljörðum dala á síðasta
ári.
Leiðtogar Afríkuríkjanna hafa
fagnað lánveitingum Kínverja
vegna verkefna sem tengjast Belti
og braut, en nokkrir þeirra hafa
látið í ljós áhyggjur af skuldabyrð-
inni sem fylgir þeim. Vaxandi
óánægja er t.a.m. í Kenía vegna
járnbrautar, sem kostaði 3,2 millj-
arða dollara, eftir að í ljós kom að
hún skilar ekki jafnmiklum tekjum
og gert var ráð fyrir.
Áhersla lögð á Belti og braut
Miklar breytingar hafa orðið á
lánveitingum Kínverja til Afríku á
síðustu árum. Mikil lækkun hrá-
vöruverðsins og minni hagvöxtur í
Kína urðu til þess að Kínverjar
leggja nú minni áherslu á fjárfest-
ingar í námum og náttúru-
auðlindum í Afríku en veita nú fleiri
lán til mannvirkjaverkefna sem
tengjast Belti og braut.
Fyrirkomulagið er oft þannig að
kínverskur banki veitir Afríkuríki
lán til að fjármagna verkefnið og
landið gerir síðan samning við kín-
verska verktaka um framkvæmdina
og rekstur mannvirkisins. Afríku-
ríkið þarf síðan að greiða afborg-
anir af láninu í áratugi og sumum
tilvikum þarf það einnig að greiða
kínverska fyrirtækinu þóknun fyrir
rekstur mannvirkisins, að sögn The
Wall Street Journal. Íbúar Afríku-
ríkjanna hafa kvartað yfir því að
verktakarnir noti marga kínverska
verkamenn við framkvæmdirnar í
stað þess að ráða heimamenn.
Djíbútí er eitt ríkjanna sem eru
mest háð lánveitingum frá Kína og
segir Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að
skuldir landsins hafi aukist úr 50%
af vergri landsframleiðslu árið 2014
í 85% árið 2016. Kínverjar hafa
komið upp herstöð í landinu, eins
og Bandaríkin, vegna nálægðar
þess við mikilvæga siglingaleið um
Rauðahaf og við Mið-Austurlönd.
Kínverska einræðisstjórnin hefur
ekki sett nein pólitísk skilyrði á
borð við lýðræði eða mannréttindi
fyrir lánveitingunum til Afríkuríkj-
anna.
Á sama tíma og kínversk stjórn-
völd auka áhrif sín í álfunni hefur
stjórn Donalds Trumps Banda-
ríkjaforseta dregið úr þróunar-
aðstoð sinni við Afríkuríki, auk þess
sem hún íhugar að fækka hermönn-
um sínum í löndum á borð við
Níger.
Auka áhrif
sín í Afríku
Kínversk stjórnvöld auka lánveit-
ingar og fjárfestingar í Afríkulöndum
Í skýrslu frá nóvember sl. er fjallað um hversu háð löndin eru útflutningi til Kína
Skýrslan byggist á rannsókn franska fjármála-
þjónustufyrirtækisins Coface
Metið var hversu
viðkvæm Afríku-
lönd eru fyrir
breytingum á
eftirspurn í
Kína
Elds-
neyti
Málmar
Eðal-
steinar,
jarðefni
Útflutningur frá Afríkulöndum sunnan Sahara til Kína
Útflutningur frá Kína til Afríkulanda sunnan Sahara
3,7
1,2
8,1
11,3
21,2Eldsneyti
Jarðefni,
unnir málmar
Hrámálmar,
málmgrýti
Önnur hráefni
Landbúnaðar-
afurðir
1,8
4,6
10,3
22,8
27,8
Landbúnaðar-
afurðir
Efni
Unnin jarðefni,
málmar
Vélbúnaður,
flutningatæki
Iðnaðarvörur
2006 2008 2010 2012 2014 2016
0
20
40
60
80
100
120
Útflutningur Kína
til Afríkulandanna
Útflutningur
Afríkulandanna
til Kína
Helsti útflutningurHversu viðkvæm eru löndin?
Helsti útflutningur, 2016
Viðskipti Kína og Afríkulanda sunnan Sahara
í milljörðum bandaríkjadala
í milljörðum bandaríkjadala
Heimildir: UNComtrade, skýrsla Coface: Kína-Afríka – endist hagkvæmnishjónabandið?
Viðskipti Afríkulanda sunnan Sahara við Kína
Mjög lítið
Lítið
Miðlungs
Mikið
Mjög mikið
Gríðarlega GAMBÍA
MÁRITANÍA
ANGÓLA
VESTUR-KONGÓ
SUÐUR-
SÚDAN
ERÍTREA
GÍNEA
Fjárfestingar Kínverja í álfunni jukust um tæp 150% frá 2011 til 2016
$ milljarðar
Beinar erlendar fjárfestingar í Afríku
Bandaríkin
Bretland
Frakkland
Kína
Suður-Afríka
Ítalía
Singapúr
Indland
Hong Kong
Sviss
2016 2011
57
57
55
54
49
52
40
16
24
23
23
13
17
16
14
16
13
7
13
11
Byggist á nýrri skýrlu UNCTAD
um fjárfestingar í heiminum
AFP
Samstarf Xi Jinping, forseti Kína
(t.h.), með leiðtogum Afríkuríkja.