Morgunblaðið - 08.09.2018, Síða 27

Morgunblaðið - 08.09.2018, Síða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018 Reykjavík Kisa í Hlíðunum sat úti í glugga og skoðaði umhverfið. Ef til vill kaus hún frekar að njóta gluggaveðursins en fara út. Fyrir utan mátti enn sjá blómaskrúð frá sumrinu. Kristinn Magnússon Nú er sumarið liðið og enn sjást engin merki um að danskir sósíaldemókratar ætli að bregðast við um- vöndunum systur- flokksins á Íslandi. Málið er mér skylt því að fyrr í sumar dróst ég inn í ágreining ís- lenskra og danskra krata. Það gerðist þeg- ar ég hætti mér út í umræðu um uppákomur sem urðu í tengslum við hátíðarþingfund í tilefni 100 ára af- mælis fullveldis Íslands. Þingmanni Samfylkingarinnar þótti hann hafa farið illa út úr sam- tali okkar um málið í útvarpsþætti og brást við á fyrirsjáanlegan hátt. Ekki með því að skýra málið betur heldur með skrifum sem snerust eingöngu um persónuníð um mann- inn sem hafði leyft sér að vera ósammála. Slíkt er lýsandi fyrir stjórnmálamenn og flokka sem að- hyllast svokallaðan póstmódernisma í stjórnmálum. Stefnu sem gengur út frá því að allt sé afstætt og stað- reyndir séu ekki til. Fyrir vikið hafna póstmódernistarnir skynsem- ishyggju eða leitinni að hinni rök- réttu niðurstöðu. Sjálfsmyndarstjórnmál Í staðinn kemur það sem ég hef kallað stimpilstjórnmál og hefur nú verið þýtt á íslensku sem sjálfs- myndarstjórnmál (e. identity poli- tics). Slík stjórnmál ganga út á að skilgreina alla fyrst og fremst sem hluta af tilteknum hópum fremur en sem einstaklinga. Réttur manna er svo mismikill eftir því hvaða hópum þeir tilheyra. Slíkum viðskilnaði við raunveru- leikann fylgja óhjá- kvæmilega verulegar takmarkanir á tjáning- arfrelsi og sú hug- mynd að nauðsynlegt sé að þagga niður í þeim sem ekki tilheyra réttum hópi eða jafn- vel útskúfa þá. Eins og í allri öfga- pólitík, sama hvaða nöfnum hún nefnist, myndast svo tilhneig- ing til að þrengja mörk hins leyfilega og leita sífellt nýrra hluta til að fordæma og fleiri fórnarlamba. Hinir áköfustu leggja sig alla fram við að sýna að þeir séu sannir í trúnni, haldi sig innan markanna og vilji helst þrengja þau. Þ.e. séu betri en aðrir. Hofmóðugleikarnir Þetta getur skapað mikla sam- keppni milli póstmódernistanna. Þannig varð t.d. merkileg uppá- koma í sumar þegar forseti danska þingsins kom til landsins sem fulltrúi þings síns og þjóðar til að sýna Íslendingum virðingu í tilefni fullveldishátíðar. Þingmenn Pírata ákváðu á síðustu stundu að snið- ganga fullveldisfundinn til að geta sniðgengið danska þingforsetann. Þeir höfðu að vísu áður samþykkt komu gestsins en sögðu það hafa verið vegna þess að þeir vissu ekki hvaða kona þetta væri. Þegar ein- hver uppgötvaði svo hvaða stimpil hún hefði tók ekki langan tíma að fordæma hinn óþekkta gest. Nú voru góð ráð dýr hjá keppi- nautunum. Hópur þingmanna límdi á sig miða fyrir fundinn þar sem fram kom að þeir væru ekki ras- istar. Þó hafði enginn sakað þá um þann ófögnuð. Viðbrögð nokkurra þingmanna Samfylkingarinnar vöktu þó mesta athygli. Formaður flokksins varði stórum hluta hátíðarræðu sinnar í að skammast yfir kynþáttahyggju á skandinavísku og annar þingmaður mætti (ítrekað) til þess eins að geta látið sjá sig ganga út. Líklega má segja að í þessari um- ferð hofmóðugleikanna endalausu hafi Samfylkingin haft sigur. Þing- menn flokksins fylgdu því svo eftir með skrifum í dönsk blöð til að út- skýra lífið og tilveruna fyrir þar- lendum. Þetta kom mörgum Dönum á óvart enda töldu þeir að Danmörk hefði fengið sjálfstæði frá Íslandi um leið og Ísland varð sjálfstætt frá Danmörku. Ekki hvað þú gerir heldur hver þú ert Það sérkennilegasta við fram- göngu Samfylkingarþingmanna var hins vegar að þeir skyldu sjá ástæðu til að útskúfa forseta danska þingsins vegna þess að viðkomandi hefði talað fyrir tiltekinni stefnu í innflytjendamálum á sama tíma og danskir sósíaldemókratar (DS) hafa tekið upp stefnu sem gefur stefnu þingforsetans ekkert eftir. Danskir jafnaðarmenn, undir for- ystu Mette Fredriksen, hafa leitast við að færa sig frá póstmódernism- anum sem leikið hefur margan krataflokkinn grátt. Á sviði innflytj- endamála fóru flokksmenn að velta fyrir sér hverjar væru staðreyndir málsins og hvernig væri raunveru- lega hægt að gera mest gagn. Það átti alla vega að vera markmiðið hvað sem mönnum kann að þykja um stefnuna. Áhugaverð þróun Peter Nedergaard, stjórn- málafræðiprófessor við Kaup- mannahafnarháskóla, segir stefnu- breytinguna afar merkilega og verðskulda alþjóðaathygli. Hann telur ástæður hennar margþættar. Í fyrsta lagi grundvallist hún á því að DS líti á sig sem helstu varð- menn velferðarríkisins og að eins og ýmsir fræðimenn hafi bent á sé grundvallar þversögn í opinni inn- flytjendastefnu og rekstri velferð- arsamfélags. Forysta DS sé nú al- farið þeirrar skoðunar að velferðarríki hafi ekki efni á öðru en strangri innflytjendastefnu. Í öðru lagi telur Nedergaard að afstöðubreytingin eigi sér sögulegar skýringar. Mattias Tesfaye, ein af forystumönnum DS í danska þinginu, gaf nýverið út bók um sögu innflytjendamála í flokknum. Tesfa- ye er múrari af eþíópískum ættum. Í bókinni „Welcome Mustafa“ skýr- ir hann að sögulega séð hafi grasrót DS verið fylgjandi strangri innflytj- endalöggjöf en að um 1980 hafi flokksforystan farið að fylgja stefnu sem mótuð var af hópi vinstrisinn- aðra háskólamanna fremur en vilja almennra flokksmanna. Það ástand hafi illu heilli varað í hátt í 40 ár og á þeim tíma hafi verið þaggað niður í forystufólki í flokknum úr verka- lýðsarminum í umræðu um stefn- una. Að mati Nedergaards er nið- urstaða bókarinnar sú að mjög opin stefna í innflytjendamálum og sönn jafnaðarmennska séu eins og eldur og vatn. Loks telur prófessorinn að löng- un flokksins til að lifa af hafi haft sín áhrif. Fyrir vikið sé stuðningur við opna (d. liberal) innflytjenda- stefnu horfinn í DS og finnist nú að- eins í flokkunum vinstra megin við hann. Staðan nú Í ljósi uppákomunnar á Íslandi hefur verið áhugavert að fylgjast með dönskum stjórnmálum að und- anförnu. DS hefur nú slitið sam- starfi við Radikale venstre vegna ágreinings í innflytjendamálum. Það er eftir því tekið hversu gott samband er milli forystumanna Danska þjóðarflokksins (sem ver minnihlutastjórn mið- og hægri- flokka) og Sósíaldemókrata (sem eru í stjórnarandstöðu) og formaður DS segist til í að mynda ríkisstjórn með stuðningi DÞ. Það er breyting frá því sem áður var þegar leiðtogar DS reyndu að einangra DÞ og snið- ganga þá (þótt þeir hafi ekki gengið út undir ræðum þeirra). Í Svíþjóð hefur svipuð aðferð ver- ið reynd gagnvart Svíþjóðar- demókrötum. Í stað þess að takast á við flokkinn og setja fram betri rök og stefnu reyndu menn snið- gönguaðferðina (án þess þó að ganga út). Á morgun verða kosn- ingar í Svíþjóð. Þá mun flokkur sænskra sósíaldemókrata fá verstu útreið sína í 110 ár eða frá því að flokkurinn var að mótast í byrjun 20. aldar. Svíþjóðardemókratar munu hins vegar vinna sigur sem hefði verið talinn óhugsandi fyrir nokkrum árum. Það er mikilvægt að stjórnmál fari aftur að snúast um staðreyndir og lausnir. Það er besta leiðin til að bæta samfélögin og besta leiðin til að hjálpa fólki í neyð. Sjálfsmynd- arstjórnmál snúast ekki um neitt nema sjálfsmynd þeirra sem þau stunda. Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson » Það er mikilvægt að stjórnmál fari aftur að snúast um stað- reyndir og lausnir … Sjálfsmyndarstjórnmál snúast ekki um neitt nema sjálfsmynd þeirra sem þau stunda. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er formaður Miðflokksins. Ólíkt hafast kratar að

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.