Morgunblaðið - 08.09.2018, Qupperneq 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018
Reykjavík Kisa í Hlíðunum sat úti í glugga og skoðaði umhverfið. Ef til vill kaus hún frekar að njóta gluggaveðursins en fara út. Fyrir utan mátti enn sjá blómaskrúð frá sumrinu.
Kristinn Magnússon
Nú er sumarið liðið
og enn sjást engin
merki um að danskir
sósíaldemókratar ætli
að bregðast við um-
vöndunum systur-
flokksins á Íslandi.
Málið er mér skylt því
að fyrr í sumar dróst
ég inn í ágreining ís-
lenskra og danskra
krata. Það gerðist þeg-
ar ég hætti mér út í umræðu um
uppákomur sem urðu í tengslum við
hátíðarþingfund í tilefni 100 ára af-
mælis fullveldis Íslands.
Þingmanni Samfylkingarinnar
þótti hann hafa farið illa út úr sam-
tali okkar um málið í útvarpsþætti
og brást við á fyrirsjáanlegan hátt.
Ekki með því að skýra málið betur
heldur með skrifum sem snerust
eingöngu um persónuníð um mann-
inn sem hafði leyft sér að vera
ósammála. Slíkt er lýsandi fyrir
stjórnmálamenn og flokka sem að-
hyllast svokallaðan póstmódernisma
í stjórnmálum. Stefnu sem gengur
út frá því að allt sé afstætt og stað-
reyndir séu ekki til. Fyrir vikið
hafna póstmódernistarnir skynsem-
ishyggju eða leitinni að hinni rök-
réttu niðurstöðu.
Sjálfsmyndarstjórnmál
Í staðinn kemur það sem ég hef
kallað stimpilstjórnmál og hefur nú
verið þýtt á íslensku sem sjálfs-
myndarstjórnmál (e. identity poli-
tics). Slík stjórnmál ganga út á að
skilgreina alla fyrst og fremst sem
hluta af tilteknum hópum fremur en
sem einstaklinga. Réttur manna er
svo mismikill eftir því hvaða hópum
þeir tilheyra.
Slíkum viðskilnaði við raunveru-
leikann fylgja óhjá-
kvæmilega verulegar
takmarkanir á tjáning-
arfrelsi og sú hug-
mynd að nauðsynlegt
sé að þagga niður í
þeim sem ekki tilheyra
réttum hópi eða jafn-
vel útskúfa þá.
Eins og í allri öfga-
pólitík, sama hvaða
nöfnum hún nefnist,
myndast svo tilhneig-
ing til að þrengja mörk
hins leyfilega og leita
sífellt nýrra hluta til
að fordæma og fleiri fórnarlamba.
Hinir áköfustu leggja sig alla fram
við að sýna að þeir séu sannir í
trúnni, haldi sig innan markanna og
vilji helst þrengja þau. Þ.e. séu
betri en aðrir.
Hofmóðugleikarnir
Þetta getur skapað mikla sam-
keppni milli póstmódernistanna.
Þannig varð t.d. merkileg uppá-
koma í sumar þegar forseti danska
þingsins kom til landsins sem
fulltrúi þings síns og þjóðar til að
sýna Íslendingum virðingu í tilefni
fullveldishátíðar. Þingmenn Pírata
ákváðu á síðustu stundu að snið-
ganga fullveldisfundinn til að geta
sniðgengið danska þingforsetann.
Þeir höfðu að vísu áður samþykkt
komu gestsins en sögðu það hafa
verið vegna þess að þeir vissu ekki
hvaða kona þetta væri. Þegar ein-
hver uppgötvaði svo hvaða stimpil
hún hefði tók ekki langan tíma að
fordæma hinn óþekkta gest.
Nú voru góð ráð dýr hjá keppi-
nautunum. Hópur þingmanna límdi
á sig miða fyrir fundinn þar sem
fram kom að þeir væru ekki ras-
istar. Þó hafði enginn sakað þá um
þann ófögnuð.
Viðbrögð nokkurra þingmanna
Samfylkingarinnar vöktu þó mesta
athygli. Formaður flokksins varði
stórum hluta hátíðarræðu sinnar í
að skammast yfir kynþáttahyggju á
skandinavísku og annar þingmaður
mætti (ítrekað) til þess eins að geta
látið sjá sig ganga út.
Líklega má segja að í þessari um-
ferð hofmóðugleikanna endalausu
hafi Samfylkingin haft sigur. Þing-
menn flokksins fylgdu því svo eftir
með skrifum í dönsk blöð til að út-
skýra lífið og tilveruna fyrir þar-
lendum. Þetta kom mörgum Dönum
á óvart enda töldu þeir að Danmörk
hefði fengið sjálfstæði frá Íslandi
um leið og Ísland varð sjálfstætt frá
Danmörku.
Ekki hvað þú gerir
heldur hver þú ert
Það sérkennilegasta við fram-
göngu Samfylkingarþingmanna var
hins vegar að þeir skyldu sjá
ástæðu til að útskúfa forseta danska
þingsins vegna þess að viðkomandi
hefði talað fyrir tiltekinni stefnu í
innflytjendamálum á sama tíma og
danskir sósíaldemókratar (DS) hafa
tekið upp stefnu sem gefur stefnu
þingforsetans ekkert eftir.
Danskir jafnaðarmenn, undir for-
ystu Mette Fredriksen, hafa leitast
við að færa sig frá póstmódernism-
anum sem leikið hefur margan
krataflokkinn grátt. Á sviði innflytj-
endamála fóru flokksmenn að velta
fyrir sér hverjar væru staðreyndir
málsins og hvernig væri raunveru-
lega hægt að gera mest gagn. Það
átti alla vega að vera markmiðið
hvað sem mönnum kann að þykja
um stefnuna.
Áhugaverð þróun
Peter Nedergaard, stjórn-
málafræðiprófessor við Kaup-
mannahafnarháskóla, segir stefnu-
breytinguna afar merkilega og
verðskulda alþjóðaathygli. Hann
telur ástæður hennar margþættar.
Í fyrsta lagi grundvallist hún á því
að DS líti á sig sem helstu varð-
menn velferðarríkisins og að eins og
ýmsir fræðimenn hafi bent á sé
grundvallar þversögn í opinni inn-
flytjendastefnu og rekstri velferð-
arsamfélags. Forysta DS sé nú al-
farið þeirrar skoðunar að
velferðarríki hafi ekki efni á öðru en
strangri innflytjendastefnu.
Í öðru lagi telur Nedergaard að
afstöðubreytingin eigi sér sögulegar
skýringar. Mattias Tesfaye, ein af
forystumönnum DS í danska
þinginu, gaf nýverið út bók um sögu
innflytjendamála í flokknum. Tesfa-
ye er múrari af eþíópískum ættum.
Í bókinni „Welcome Mustafa“ skýr-
ir hann að sögulega séð hafi grasrót
DS verið fylgjandi strangri innflytj-
endalöggjöf en að um 1980 hafi
flokksforystan farið að fylgja stefnu
sem mótuð var af hópi vinstrisinn-
aðra háskólamanna fremur en vilja
almennra flokksmanna. Það ástand
hafi illu heilli varað í hátt í 40 ár og
á þeim tíma hafi verið þaggað niður
í forystufólki í flokknum úr verka-
lýðsarminum í umræðu um stefn-
una. Að mati Nedergaards er nið-
urstaða bókarinnar sú að mjög opin
stefna í innflytjendamálum og sönn
jafnaðarmennska séu eins og eldur
og vatn.
Loks telur prófessorinn að löng-
un flokksins til að lifa af hafi haft
sín áhrif. Fyrir vikið sé stuðningur
við opna (d. liberal) innflytjenda-
stefnu horfinn í DS og finnist nú að-
eins í flokkunum vinstra megin við
hann.
Staðan nú
Í ljósi uppákomunnar á Íslandi
hefur verið áhugavert að fylgjast
með dönskum stjórnmálum að und-
anförnu. DS hefur nú slitið sam-
starfi við Radikale venstre vegna
ágreinings í innflytjendamálum.
Það er eftir því tekið hversu gott
samband er milli forystumanna
Danska þjóðarflokksins (sem ver
minnihlutastjórn mið- og hægri-
flokka) og Sósíaldemókrata (sem
eru í stjórnarandstöðu) og formaður
DS segist til í að mynda ríkisstjórn
með stuðningi DÞ. Það er breyting
frá því sem áður var þegar leiðtogar
DS reyndu að einangra DÞ og snið-
ganga þá (þótt þeir hafi ekki gengið
út undir ræðum þeirra).
Í Svíþjóð hefur svipuð aðferð ver-
ið reynd gagnvart Svíþjóðar-
demókrötum. Í stað þess að takast
á við flokkinn og setja fram betri
rök og stefnu reyndu menn snið-
gönguaðferðina (án þess þó að
ganga út). Á morgun verða kosn-
ingar í Svíþjóð. Þá mun flokkur
sænskra sósíaldemókrata fá verstu
útreið sína í 110 ár eða frá því að
flokkurinn var að mótast í byrjun
20. aldar. Svíþjóðardemókratar
munu hins vegar vinna sigur sem
hefði verið talinn óhugsandi fyrir
nokkrum árum.
Það er mikilvægt að stjórnmál
fari aftur að snúast um staðreyndir
og lausnir. Það er besta leiðin til að
bæta samfélögin og besta leiðin til
að hjálpa fólki í neyð. Sjálfsmynd-
arstjórnmál snúast ekki um neitt
nema sjálfsmynd þeirra sem þau
stunda.
Eftir Sigmund
Davíð
Gunnlaugsson
» Það er mikilvægt að
stjórnmál fari aftur
að snúast um stað-
reyndir og lausnir …
Sjálfsmyndarstjórnmál
snúast ekki um neitt
nema sjálfsmynd þeirra
sem þau stunda.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Höfundur er formaður Miðflokksins.
Ólíkt hafast kratar að