Morgunblaðið - 08.09.2018, Síða 30

Morgunblaðið - 08.09.2018, Síða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018 Forseti Íslands hleypti inn dyravörðum í Bessastaði í síðustu viku. Tilefnið var að einn úr þeirra röðum var barinn fólskulega fyrir skemmstu á skemmtistaðnum Suck- ers í Austurstræti. Nafni þess staðar hlýtur fljótlega að verða breytt í Barinn. Dyraverðirnir voru slegnir eftir árásina, þó ekki jafn rækilega og starfsfélagi þeirra, en þeir voru skiljanlega miður sín og þáðu því þetta boð forsetans þó erfitt sé að sjá hvað Guðni kallinn hafi að gera með einhver dyravörslumál önnur en kannski þau sem snúa að vín- kjallaranum á Bessastöðum. En þetta fundarboð hans undirstrikaði náttúrulega hvað hann er nú obbos- lega góð manneskja og svo gasa- lega mikið svona „maður fólksins“ og allt það, og þá er nú tilganginum náð. Grín er ekkert gamanmál Áður en lengra er haldið vil ég láta þess getið að ég er alfarið á móti því að gantast sé með alvar- lega og viðurstyggilega hluti, svo- sem atburð sem þennan sem hér um ræðir, pyntingar, morð, hung- ursneyð, stórslys, femínisma, styrj- aldir, vinstrifasisma, drepsóttir, kynjafræði, náttúruhamfarir, póli- tískan rétttrúnað, engisprettufaraldur, gróðurhúsa- og góða- fólksáhrifin, RÚV, hryðjuverk, íslensku lífeyrissjóðina, íslamsvæðingu Evr- ópu, umhverfis- mengun o.s.fr. Grín getur nefni- lega verið dýrt spaug og spaug er ekkert grín. Unnið baki brotnu Ekki veit ég hvert var tilefni þessarar skelfilegu árásar á skemmtistaðnum Slaughters í Aust- urstræti en maður hlýtur að mega koma með tilgátur án þess að fólk snappi og fari að skalla veggi. Kannski að dyravörðurinn hafi sagt við dólgana: „Give me a hug.“ Þessir útlendingar sem að árás- inni stóðu hafa kannski bara kunn- að eitthvað hrafl í ensku og ís- lensku og haldið að hann væri að meina: „Give me a högg.“ Þeir hafa ekki látið segja sér það tvisvar og hafið buffun þegar í stað. Og þetta hefur komið í bakið á dyraverðinum. En hvað veit ég? Ég var ekki á staðnum. Leiðir til úrbóta Hvað um það. Forsetinn setti ef- laust upp buff í tilefni dagsins og saman skeggræddu þeir félagar ógnir og öryggi í borg óttans og leiðir til úrbóta í þessum mikilvægu málum sem forsetinn ræður ná- kvæmlega engu um. En mér er spurn: Eru einhverjar raunhæfar leiðir til úrbóta? Er eitt- hvað sem getur komið í veg fyrir að dyraverðir séu rotaðir? Er til ein- hverskonar „rotvarnarefni“? Það held ég ekki. Rugbyhjálmur kannski? Nebb. Þá fá þeir bara spark í punginn og það er ekkert mikið þægilegra þó þeir rotist hugsanlega ekki við það. (Það er reyndar sagt að öll hugsun karlmanna fari fram þarna á neðri hæðinni). Rugbyhjálmur og pung- hlíf? Nebb. Þá fá þeir bara base- ballkylfu í vömbina. Rugbyhjálmur, punghlíf og bumbupúði eða jafnvel skothelt vesti? Nebb. Þá fá þeir bara hníf eða kjötsax í lærið. Stál- brynja einsog riddarar notuðu í gamladaga? Nebb. Óþægilegur vinnuklæðnaður innanhúss og ekki beint traustvekjandi fyrir ímynd friðsæls skemmtistaðar. Fleiri slæmar leiðir til úrbóta Rimlabúr? Nebb. Dyraverðir verða að geta athafnað sig innanum fólk og gengið að leiðindapakki og barið það í gólfið og hent því í fal- legum boga útá stétt. Vopnvæða þá? Gefa þeim leyfi til að bera rafbyssu? Piparúða? Hnúa- járn? Klaufhamar? Rambóhníf? Öxi? Skógarsveðju? Keðjusög? Skammbyssu? Afsagaða hagla- byssu? Hríðskotariffil? Hand- sprengju? Basúku? Eldvörpu? Dínamítstúpu? Sjálfsmorðs- sprengjubelti? Er vopnvæðing dyravarða svarið? Það er spurning. Held ekki. Hætta á misnotkun og ofnotkun. Reyndar nota menn bara sjálfs- morðsbelti einu sinni eftir því sem næst verður komist, en það er sama. Held að þetta væri ekki vel séð. Sjálfsmorðssprengjubelti gæti samt bjargað mannslífum, eða haft fráfælingaráhrif skulum við segja, tildæmis ef einhver útþaninn óárennilegur steraköggull væri að fiska eftir fæting eða ef einhver óviðráðanleg óviðræðuhæf slímug ósnertanleg rauðþrútin froðufell- andi öfgavinstritröllskessa væri að pynta gesti með háværu kynja- fræðinonsensi, og ég tala ekki um ef það þyrfti að rýma staðinn í snarhasti, svosem útaf aldurs- takmarkanalögreglu sem væri að fara að mæta á svæðið með dóp- hund og alle græjer. Dyravörðurinn gæti þá flassað með sprengjubelti um sig miðjan og hrópað hástöfum með fjarstýringu í hendinni: Allah akbar! Allah ölbar! Allah prumpb- ar! Liðið myndi svoleiðis gleypa jón- urnar og kókaínpokana í einum svelg og hverfa útí buskann einsog fingrum væri smellt. Kannski að sjálfsmorðs- sprengjubelti sé lífsbjörgin? Tilhvers að funda með forset- anum af öllum mönnum? Vegna þess að forsetinn bauð þeim í heimsókn. Ekki flóknara en það. Afhverju bauð hann þeim í heimsókn? Af sömu ástæðu og hann fer í smábarnaafmæli útí bæ til fólks sem hann þekkir ekki neitt – af sömu ástæðu og hann hangir í biðröðum á pizzustöðum – og synd- ir í vinnuna – og horfir á fótbolta- stórleiki í 12 tommu svarthvítu túpusjónvarpi í einhverju mígleku illa þefjandi afdalafjósi útá landi, norpandi í sundurtættri hettuúlpu einsog fuglahræða, bryðjandi gadd- freðnar pulsur og útmíginn hákarl með sveitavargnum og þorpsfíflinu. Semsé: Vegna þess að hann vill verða alþýðlegasti forseti ever og til þess að svo geti orðið þá þarf hann að grípa hvert einasta tækifæri sem gefst til að skerpa þá imynd sína, meiraðsegja að boða til fundar með útkösturum um mál sem eru víðs- fjarri því að vera á hans könnu. Yfirdrifinn alþýðleiki Um jólin má búast við að forset- inn fari að sjálfboðaliðast á póst- húsum við að sleikja frímerki fyrir fólk sem er að senda jólakort, nú eða að safna saman kerrum í Bónus eða að þrífa framrúðuna fyrir öku- menn á rauðu ljósi eða að leysa af í dyravörslunni á skemmtistöðum borgarinnar eða að hnýta bamb- uskörfur á Kleppi eða eitthvað svo- leiðis. Það er svosem alveg gott og blessað en fyrr má nú rota en dauð- rota, svo maður noti nú viðeigandi orðfæri. Ef fram fer sem horfir mun hann vinna gullið á Alþýðleik- unum og slá landsmet Pírata í po- púlisma. Forseti þjóðarinnar eða forseti stjórnvalda? Guðni er hlýðinn og góður og vill gera öllum til hæfis, bæði alþýð- unni, sem hann er í vinnu fyrir, og stjórnvöldum, sem skipa honum fyrir, jafnvel þó þau hafi ekki boð- vald yfir forsetanum. Hann vill vera vakinn og sofinn yfir velferð allra landsmanna – ekki bara elítunnar og utanríkisráðherra sem hann hlýðir í einu og öllu og lætur meir- aðsegja skipa sér að mæta ekki á HM í Rússlandi – heldur líka okkar starfsmanna á plani. En málið er að menn í hans stöðu geta ekki haft tvo herra. Ólafur Ragnar Grímsson gerði sér grein fyrir því. Guðni þyrfti að fara að gera það upp við sig hvort hann ætli að vera forseti þjóðarinnar eða forseti stjórnvalda. Það ætti nú ekki að vera erfitt val fyrir svo al- þýðlegan mann. Það mun koma í ljós þegar á reynir hvoru megin hryggjar hann raunverulega liggur, til að mynda ef hann fær til undirritunar land- ráðalög sem skerða fullveldi lands- ins og má í því sambandi nefna orkumálastefnu ESB sem um þess- ar mundir er verið að reyna að lauma í gegnum þingið. Með hverjum mun alþýðlegi for- setinn standa þegar til kastanna kemur, stjórnvöldum eða þjóðinni? Eru aðrir og fýsilegri ókostir í stöðunni? Hefðu dyraverðirnir ekki alveg eins getað rætt þessi ofbeldismál við biskupinn? Hann ætti að vera orðinn ansi sjóaður í þessum mála- flokki með alla þessa harðduglegu kófsveittu presta innan vébanda kirkjunnar. Og sjálfur þekkir hann málin á eigin skinni ef eitthvað er að marka málsháttinn: Enginn verður óbarinn biskup. En hefði ekki legið beinast við að funda með lögregluyfirvöldum eða borgarstjóranum og hans undir- sátum? Borgarstjórinn hefði reynd- ar ekki svarað beiðni um viðtal þar sem hann er á fullri ferð við að hægja á umferð, þétta byggð, þrengja götur, þrengja að fólki, auka mengun, auka skuldir, auka leiðindin, stytta líf borgarbúa með auknum umferðartöfum, ulla á minnihlutann og gefa skynsemi langt nef í öllum málum. Lögreglan alveg uppfyrir haus í stóru málunum Og lögreglan er að sjálfsögðu upptekin með upptökutæki og headphone við að reyna að finna „hatursorðræðu“ (rangar skoðanir) á Útvarpi Sögu þar sem orðið á að vera frjálst, og finna leiðir til að draga hinn stórhættulega raðspjall- þáttastjórnanda og fjölda-orðingja Pétur Gunnlaugsson aftur fyrir dómstóla fyrir að hlusta á fólk tjá sig í opnum innhringitíma stöðv- arinnar. Þannig að kannski var ekkert annað í boði en að þiggja ímyndar- boð forsetans. Svona að endingu vil ég láta í ljós þá einlægu von mína að dyra- vörðurinn nái fullum bata og að of- beldishrottarnir náist og hljóti makleg málagjöld. Kannski verða þeir ekki jafn borubrattir þegar þeir þurfa að fara að beygja sig eft- ir sápunni í sturtuklefa dýfliss- unnar. Dyraverðir slegnir Eftir Sverri Stormsker »Eru einhverjar raun- hæfar leiðir til úr- bóta? Er eitthvað sem getur komið í veg fyrir að dyraverðir séu rot- aðir? Er til einhvers- konar „rotvarnarefni“? Sverrir Stormsker Höfundur er tónlistarmaður og rithöfundur. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfu- daga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir ör- yggi í samskiptum milli starfs- fólks Morgunblaðsins og höf- unda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Verð frá 102.508 Nýjr meistarar eru mættir Vitamix blandarar eiga sér engan jafningja. Mylja nánast hvað sem er. Búa til heita súpu og ís. Hraðastillir, prógrömm og pulserofi sjá til þess að blandan verði ávallt fullkomin og fersk! Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is Ascent serían frá Vitamix Menning ogmatur Fjölbreytt viðburðadagskrá Opið alla daga vikunnar. Viðburðardagatal á norraenahusid.is AALTOBistro

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.