Morgunblaðið - 08.09.2018, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 08.09.2018, Qupperneq 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018 sitja í nokkur skipti með henni og börnunum hjá honum. Ég bið góðan Guð að vaka yfir Guðrúnu, Georg Pétri, Sillu Þóru og Önnu, tengda- börnunum og afabörnunum og veita þeim styrk á þessum erf- iða tíma. Vertu sæll elsku vinur, þín er sárt saknað. Haukur Ragnar og Rannveig. Kristján Aðalsteinsson, eða Krissi eins og við fjölskyldan kölluðum hann alltaf, hefur ver- ið hluti af tilveru okkar systk- inanna alla tíð. Hann var æsku- vinur föður okkar og á milli þeirra var mikil og sönn vin- átta. Í okkar barnæsku tíðk- aðist það að droppa inn hjá fólki í tíma og ótíma. Þau fjöl- skyldan komu oft á okkar heim- ili og þau voru líka ófá skiptin sem við fengum okkur bíltúr út á Nes. Oft var þetta kvöldkaffi og stundum áttum við krakk- arnir hugmyndina um að rúlla til þeirra. Alltaf var okkur tekið fagn- andi eins og höfðingjar væru á ferð. Hlýjan og gestrisnin var engu lík hjá þeim hjónum og börnum þeirra, Georg Pétri, Sillu Þóru og Önnu. Listakokk- urinn Guðrún töfraði fram dýr- indis kökur og kræsingar og svo var spjallað og hlegið langt fram á kvöld. Þrátt fyrir yfirvegun og hóg- værð hafði Krissi sterka nær- veru, hljómmikla rödd og ein- kennandi hlátur. Krissi var orðvar, víðlesinn og öfgalaus skynsemismaður. Hann var fjölskyldumaður, stoltur af sínu fólki og mátti líka vera það. Hann sýndi líka okkur börnum vina sinna áhuga og hvatningu. Þau hjónin voru svo samrýnd að það er varla hægt að nefna annað þeirra án þess að nefna hitt, þau voru bara Krissi og Guðrún. Þau dönsuðu saman, gengu á fjöll og ferðuðust og sinntu stækkandi fjölskyldu sinni og vinum með hlýju og ástúð eins og þeim einum var lagið. Stutt er síðan Krissi leiddi Önnu yngri dóttur sína inn kirkjugólfið. Hann var svo stoltur og glæsilegur að sá sem ekki vissi betur hefði aldrei getað ímyndað sér hvaða bar- áttu hann háði. Reisn, virðing, traust, rósemd og hlýja allt til endaloka. Nú þegar vinur okkar Krissi kveður þá reikar hugurinn aft- ur í tímann og við áttum okkur enn betur á því hvað við erum ótrúlega lánsöm að hafa átt Krissa, Guðrúnu og börnin að. Þau auðguðu líf okkar með nærveru sinni og vinskapur þeirra hjóna við foreldra okkar er okkur góð fyrirmynd um heilbrigða og sanna vináttu. Þá vináttu munum við sem eftir stöndum rækta og varðveita. Elsku Guðrún, Georg Pétur, Silla Þóra, Anna og fjölskyldur, missir ykkar er mikill og sár. Við biðjum góðan Guð að vernda ykkur og styrkja. Minn- ingin um yndislegan mann kemur til með að lifa með okk- ur öllum um ókomna tíð. Hvíl í friði elsku vinur. Guðný Kristín Hauksdóttir (Dassa), Haukur Þór Hauksson og Hafsteinn Þór Hauksson. Elsku afi okkar er dáinn. Okkur langar að skrifa nokkur kveðjuorð til þín. Þú varst ynd- islegur og ávallt gott að vera í kringum þig. Eftir situr fullt af góðum minningum sem við átt- um með þér, elsku afi. Videóleigan ykkar ömmu í svefnherberginu, þar sem úr- valið fyrir okkur krakkana var mikið. Oft vorum við allir krakkarnir uppi í rúmi, undir sæng í hjónaherberginu ykkar að horfa á mynd og nóg að kalla bara „afi“ ef það átti að skipta um spólu eða hækka – þá varstu fljótur að koma. Svo þegar við áttum að fara út að leika var um mörg leik- tæki að velja úti í garði. Ekki má gleyma krakkamótorhjólinu sem var keypt sérstaklega fyrir okkur barnabörnin. Það var sko ekkert smá gaman að leika sér á því og oft farinn einn hringur í viðbót. Uppi í bústað var fullorðna fólkið að slá og gera fínt og vorum við krakkarnir þá að leika okkur niðri við lækinn og oft grillaðir þú pylsur handa okkur öllum og stundum kveiktir þú í eldstæðinu fyrir okkur til að horfa á í lautinni við bústaðinn. Þú spurðir okkur alltaf hvað við værum að læra og vildir oft fá að sjá heimanámið hjá okk- ur. Sýndir okkur mikinn áhuga og einnig því hvað við værum að læra. Öll áramótin okkar áttum við með ykkur ömmu. Það var allt- af mikil tilhlökkun að fara út á Nes og sjá allar áramóta- sprengjurnar hans afa. Þú varst alveg í essinu þínu í sprengjulátunum. Það var svo gaman. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Elsku afi, nú ertu hættur að vera veikur, ekki lengur kval- inn og kominn á stað þar sem við trúum að englarnir passi þig. Minningu um góðan afa geymum við alltaf í hjarta okk- ar. Guð geymi þig elsku afi. Þinn nafni, Kristján Jarl Georgsson og Agatha Georgsdóttir. Ég kynntist heiðursmannin- um Kristjáni Aðalsteinssyni vel þegar við unnum báðir hjá Máli og menningu á uppgangstímum hjá því góða félagi. Hann var í miklum metum hjá samstarfs- fólki sínu alla tíð, enda einstakt prúðmenni og skemmtilegur fé- lagi, hjálpsamur og greiðvikinn svo af bar. Leiðir hans sem fjármálastjóra lágu um alla kima fyrirtækisins og hvar- vetna var hann aufúsugestur. Samstarf okkar Kristjáns var sérlega náið á árunum 1995- 2000 þegar ég gegndi starfi framkvæmdastjóra fyrirtækis- ins, og satt að segja hefði ég aldrei sloppið skammlaust frá því starfi ef ég hefði ekki getað reitt mig á Kristján og kunn- áttu hans. Hann var með eindæmum vinnusamur og hollur fyrirtæk- inu. Kristján naut trausts hvar- vetna, innan sem utan fyrir- tækisins, og það kom sér ævinlega vel. Kristján hafði sérlega létta lund og hlýlegt viðmót. Hann naut sín á gleðistundum, sem voru ófáar á þessum árum. Þegar gáskinn var við völd gat hann hlegið þannig að tárin runnu niður kinnarnar. En hann var jafnframt viðkvæmur og auðsærður. Hann sætti sig illa við framkomu sem fól í sér yfirgang eða hranaskap, enda svo fjarri honum. Rangindi eða óheiðarleika leið hann heldur ekki. Á árshátíðum og öðrum stundum þegar stiginn var dans var segin saga að sam- starfskonur Kristjáns nánast stóðu í biðröð eftir að fá að svífa um gólfið um stund í örm- um hins þjálfaða dansara. Á meðan héldum við hinir okkur til hlés, enda þoldum við illa samanburðinn. Hann skilaði þeim svo einni af annarri, rjóðum og sælum, í sæti sitt. Fegursta dansinn steig Kristján samt við hana Guð- rúnu sína, jafnt á dansgólfinu sem í lífinu sjálfu. Þau voru samstillt og taktviss í lífinu, samband þeirra sérlega fallegt eins og það blasti við mér. Guðrúnu, börnum þeirra Kristjáns og ástvinum öllum færi ég innilegar samúðar- kveðjur. Þau geta treyst því að minningin um öðlinginn Krist- ján Aðalsteinsson lifir lengi meðal okkar sem áttum samleið með honum í lífinu. Blessuð sé minning hans. Sigurður Svavarsson. Kristján Aðalsteinsson, einn af mínum traustustu starfs- mönnum, kom að máli við okk- ur hjónin 1. desember og vildi segja starfi sínu lausu með sex mánaða fyrirvara. Hann hafði glímt við veikindi, en nú var stund milli stríða og hugðist hann nota tíma sinn til að byggja sig upp, ferðast og njóta lífsins. Þetta var tilfinninga- þrungin stund og tár á hvarmi. Kristján hafði verið mér sem klettur í hafi í hinum harða heimi viðskiptanna. Hann var alltaf til staðar og ég gat alltaf hringt í hann, hvort sem var á nóttu eða degi. Hann tók stöðumat og var rökfastur. Hann starfaði hjá Optical Studio sem fjármála- stjóri í rúm 15 ár. Hann var okkur öllum stafsmönnum sem umhyggjusamur faðir, sem bar hag allra fyrir brjósti. Fyrir mér var hann snillingur með tölur og útreikninga. Honum lét létt að sjá niðurstöður og spá um afkomu, líkt og hann hefði einhverjar aðferðir eða lausnir sem ekki væri til form- úla fyrir. Kristján var hvers manns hugljúfi. Alltaf heilsaði hann með brosi og sýndi áhuga á því sem var að gerast í lífi og umhverfi annarra. Hann var aðlaðandi persóna sem var gott að eiga spjall við hvort sem var um viðskipti, gleraugnatísku eða önnur praktísk mál. Hann sagði alltaf sína skoðun á hlutunum á mál- efnalegan hátt, en lauk svo máli sínu á þann veg að hans nef næði nú ekki langt í þessum efnum og því varhugavert að fara að hans tilmælum. Þarna var honum rétt lýst. Lítillátur en samt svo traustur og klár. Já, klettur í mínu viðskiptalífi. Þegar hinir ágætu starfsmenn frá skattinum komu eitt sinn í kurteisisheimsókn á skrifstofu fyrirtækisins og vildu fá að kíkja í bækurnar, mætti þeim hinn alúðlegi Kristján Aðal- steinsson sem af nokkru stolti sýndi þeim ekki bara í bæk- urnar, heldur margt annað sem tengdist rekstrinum. Svo vel fór á með þeim að dvöl þeirra varð miklu lengri en til stóð. Þeir fengu þarna ágæta kennslustund í því hvernig best væri að gera hlutina, enda reyndist Kristján hafa kennt öðrum þeirra í viðskiptadeild HÍ á árum áður. Kristján rækti starf sitt af mikilli nákvæmni. Hann var stakur reglumaður, ekki bara í starfi sínu, heldur í lífinu öllu. Hann unni náttúru landsins og naut hennar á góðum dögum í gönguferðum með Guðrúnu, konu sinni. Þau voru miklir félagar sem ekki aðeins gengu í takt í lífinu, heldur lögðu einnig stund á dans sem var eitt af þeirra sameiginlegu áhugamálum, enda voru þau virkir meðlimir í danshópi sem hittist reglulega. Samskipti starfsmanna minna við Kristján urðu að vináttu þeirra á milli. Hann kom fram við alla af einlægni og virðingu. Samviskusemi var honum í blóð borin, en hann hafði aldrei mörg orð um sjálfan sig, allra síst um heilsu sína. Við sam- starfsmenn hans söknum góðs drengs sem ávallt sýndi af sér prúðmennsku og alúð. Við biðj- um Guð að blessa minningu hans og vottum Guðrúnu, eig- inkonu hans og fjölskyldu þeirra okkar dýpstu samúð. Kjartan Kristjánsson. Það er skammt stórra högga á milli, rúmt ár liðið frá því Guðmundur Þórhallsson móð- urbróðir hans lést, en þeir voru saman stjórnendur bókbands- vinnustofunnar Bókfells í mörg ár. Mér fannst Kristján alltaf vera svo ungur enda fæddist hann ári eftir að ég byrjaði að læra bókband hjá föður hans, Aðalsteini Sigurðssyni bók- bandsmeistara. Ég fylgdist því með honum allt frá barnæsku. Það var gaman að fá að taka þátt í uppbyggingu Bókfells með föður hans á þessum árum. Bókfell varð strax með stærstu og best reknu fyrirtækjunum í bókbandsgreininni og eitt af fáum sem ekki byggðu á eigin prentsmiðju. Þetta var fjölmennur vinnu- staður, oft um 30 manns og meiri hlutinn konur. Bókfell skar sig úr um marga hluti, t.d. var hætt fyrr á daginn en ann- ars staðar í stað þess að mat- artíminn væri styttur og var það mjög vinsælt meðal starfs- fólksins. Eins voru á fyrstu ár- unum alltaf spiluð falleg lög í grammófónkerfi fyrirtækisins eftir hádegið sem heyrðist í öll- um vinnusölunum. Þetta var al- ger nýjung og þótti framúr- stefnulegt. Svo féll Aðalsteinn frá ekki nema 59 ára og Kristján, sem ekki var nema rétt rúmlega tví- tugur, tók þá við fyrirtækinu mjög fljótlega, en hann var þá í skóla og lauk við sitt nám í við- skiptafræði áður. Á árunum sem á eftir fóru var oft hart barist á milli fyr- irtækja og á vinnumarkaðnum og það kom í hlut Kristjáns að stýra skútunni í þeim bardaga. Á þessum árum flutti Bókfell í Kópavoginn á Skemmuveg 4 í 1.000 fm húsnæði og var nú fyrirtækið á hátindi sínum. Kristján reyndist okkur öll- um vel. Hann var mjög ljúfur og góður að dagfari og alltaf svo kurteis að af bar og þess vegna gat maður eiginlega aldrei reiðst við hann þó maður væri ekki á sama máli. Ég vil að lokum þakka honum fyrir þessi góðu samskipti og sér- staklega í síðasta sinn sem ég hitti hann í erfidrykkju Guð- mundar Þórhallssonar fyrir rúmu ári síðan. Ég samhryggist öllum vinum hans og vandamönnum og við Ragna sendum þeim öllum inni- legar samúðarkveðjur. Svanur Jóhannesson. Minn góði vinur og nemandi til áratuga, Kristján Aðal- steinsson, er látinn eftir erfiða baráttu við hinn illvíga vágest, krabbameinið. Það er ein af stóru ráðgátum lífsins af hverju menn á besta aldri eru kallaðir burt þegar framundan ættu að vera ljúf og notaleg efri ár. Kristján var sérlega vænn og góður maður og það var engin ástæða til þess að hann þyrfti að fara svo snögglega og með svo sárs- aukafullum hætti. Allt við Kristján var rólegt, ljúft og notalegt. Fyrir mér var hann fyrirmynd. Brosmildur maður sem átti það áhugamál að dansa við Guðrúnu eigin- konu sína. Þau dönsuðu ekki bara stundum og einhvern veg- inn. Nei, þau stunduðu dansinn af kappi. Alltaf mætt í dans- tíma öll þriðjudagskvöld, allan veturinn, árum saman auk þess að stunda böll, taka þátt í dans- sýningum og meira að segja danskeppnum. Þau sýndu dansinum einlæg- an áhuga, metnað til að gera vel, húmor fyrir öllum feilspor- um og um leið ásetning til að læra af öllum mistökum og gera betur. Kristján var ávallt glæsileg- ur, snyrtilega til fara og sýndi öllum á dansgólfinu kurteisi og nærgætni. Kristján og Guðrún dönsuðu sérstaklega fallega saman og Kristján var þessi ljúfi herramaður sem góður dansari á einmitt að vera. Þol- inmóður og brosmildur. Með því að horfa á Kristján dansa við Guðrúnu sína og með því að svara spurningum hans um dansinn og leiðbeina honum á dansgólfinu mátti vel sjá hvaða mann hann hafði að geyma því dansinn fær fólk til að sýna sinn innri mann. Til- finningar fá að flæða fram í vel útfærðum dansi og dansarinn gleymir stund og stað þegar hreyfing líkamans og hljómfall tónlistarinnar renna saman í eitt. Þegar Kristján heyrði falleg- an vals eða flottan foxtrot stóð hann teinréttur og tók Guðrúnu í fangið. Svo lokaði hann aug- unum, dró djúpt andann, taldi taktinn og sveif svo af stað með glæsibrag. Hann hafði gaman af öllum dönsunum og spor- unum sem ég kenndi honum í gegnum árin en mér finnst eins og enskur vals og slow foxtrot hafi verið í uppáhaldi. Flestir sem hafa farið á dansnámskeið hafa lært valsinn en slow foxtr- ot er dans sem fæstir læra eða ná mikilli færni í, sérstaklega ef allt dansnámið fer fram á fullorðins árum. Kristján og Guðrún voru þess vegna í nokkrum sérflokki og náðu góðum tökum á þessum fallega dansi sem endurspeglar vel að þau voru einmitt hjón í sér- flokki. Samstíga og samheldin bjuggu þau í fallegu húsi á Sel- tjarnarnesi með verðlaunagarð allt í kring. Við vorum einmitt líka nágrannar og oft í gegnum árin naut ég þess að fá far heim í hreinum og fallegum bílunum þeirra. Þá sat Kristján undir stýri og ók vestur eftir með sömu ró og yfirvegun og hann hafði dansað með fyrr um kvöldið. Ég mun sakna Kristjáns mikið í danstímunum sem og ökuferðanna heim. Það var mér sönn ánægja að vera Kristjáni Aðalsteinssyni samferða og ég sendi Guðrúnu og fjölskyldunni mínar dýpstu samúðarkveðjur. Jóhann Örn Ólafsson. Mikill vandi steðjaði að íslensk- um bændum í byrj- un 9. áratugar síð- ustu aldar vegna offramleiðslu á mjólk og kindakjöti. Aðgerðir stjórnvalda til að draga úr framleiðslu höfðu ekki borið ár- angur og óeining var meðal bænda og á hinu pólitíska sviði um það hvernig á málum skyldi tekið. Það var í þessari stöðu sem Ingi Tryggvason tók við for- mennsku í Stéttarsambandi bænda haustið l981. Mikið reyndi á forustu hans í þeim ólgusjó sem fram undan var. Kom sér nú vel reynsla hans úr áralöngu starfi innan fé- lagskerfis landbúnaðarins og úr pólitísku starfi, m.a. sem al- þingismaður. Í maí 1983 tók við völdum ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Ljóst var að ekki yrði lengur slegið á frest að taka af festu á offramleiðslu á mjólk og kinda- kjöti. Eitt af fyrstu verkum Jóns Helgasonar á stóli land- búnaðarráðherra var að setja á laggirnar nefnd sem skipuð var Ingi Tryggvason ✝ Ingi Tryggva-son fæddist 14. febrúar 1921. Hann lést 22. ágúst 2018. Útförin fór fram 1. september 2018. tveimur þingmönn- um úr hvorum stjórnarflokki und- ir forustu Bjarna Guðmundssonar, aðstoðarmanns ráðherra. Hlutverk nefndarinnar var að endurskoða lög- in um Framleiðslu- ráð landbúnaðar- ins með það fyrir augum að koma upp stjórntækjum sem dygðu til að hafa hemil á framleiðslu mjólkur og kindakjöts. Um var að ræða pólitíska stefnumörkun og þótti því ekki ráðlegt að blanda forustu bænda of mikið í málið. Þessi nefndarskipan olli væg- ast sagt uppnámi í félagskerfi landbúnaðarins. Aldrei fyrr hafði svo freklega verið gengið framhjá forustu bænda í jafn mikilvægu máli. Til að lægja öldurnar skipaði landbúnaðarráðherra aðra nefnd sem eingöngu var skipuð bændum undir forystu ráðu- neytisstjóra landbúnaðarráðu- neytisins til þess að gera til- lögur um skipulagningu landbúnaðarframleiðslunnar. Þrátt fyrir skipun þessarar síð- ari nefndar hélt þingmanna- nefndin áfram störfum án þess að mikið bæri á. Það er til marks um hyggindi Inga Tryggvasonar að hann kaus að taka ekki beinan þátt í þessum þreifingum, vissi sem var að hans biði það erfiða verkefni að sætta ólík sjónar- mið meðal bænda þegar kæmi að umfjöllun um tillögur nefnd- arinnar á vettvangi Stéttarsam- bandsins. Hinn 17. apríl 1985 var boð- aður aukafulltrúafundur í Stétt- arsambandi bænda þar sem kynnt var frumvarp sem þing- mannanefndin hafði samið um breytingar á lögunum um Framleiðsluráð landbúnaðarins. Ný ákvæði voru sett um skil á afurðaverði til bænda sem þýddu að nánast yrði um stað- greiðslu að ræða, dregið yrði úr útflutningsbótum í áföngum og tekin upp ákvæði um samninga milli ríkisins og bænda um magn afurða sem ríkið ábyrgð- ist fullt verð fyrir. Fullyrða má að með samn- ingum þessum og ýmsum að- gerðum þeim tengdum hafi ver- ið stigið risaskref í átt til framtíðar í íslenskum landbún- aði, frá ringulreið til skipulegr- ar uppbyggingar framleiðslu og markaða. Ingi Tryggvason mat það svo að rétt væri í þessu ferli að við- hafa hóflega „stjórnarandstöðu“ þó þannig að sjálfræði Stétta- sambandsins laskaðist ekki. Fyrir forystu Stéttasam- bandsins, ekki síst formanninn, voru þessi mál mjög viðkvæm og vandasöm og þurfti bæði kjark og lagni til þess að vinna þeim framgang. Um það get ég mjög vel vitnað sem starfsmað- ur samtakanna á þessum tíma. Hákon Sigurgrímsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.