Morgunblaðið - 08.09.2018, Side 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018
Haukur Ingi Guðnason, sem fagnar 40 ára afmæli sínu í dag, ereinn af mörgum fótboltamönnum þar sem meiðsli komu í vegfyrir glæstan feril. Haukur Ingi var aðeins 19 ára gamall þegar
hann komst á samning hjá Liverpool, þar sem hann dvaldi í þrjú og hálft
ár. Meiðsli bundu enda á atvinnumannsdrauma hans, en þá hafði hann
leikið ellefu landsleiki fyrir Íslands hönd.
„Í kjölfar meiðslanna fór ég fyrst og fremst að huga að sálfræðinám-
inu en spilaði þó fótbolta áfram hér heima með Fylki og Keflavík og síð-
ast Grindavík en þá var nokkuð
ljóst að líkaminn þoldi í mesta
lagi um 60 mínútur í hverjum
leik en ég hélt samt áfram að
æfa og spila meðan ég hafði
gaman af því.“
Eftir að Haukur Ingi hætti
að spila hefur hann verið við-
riðinn fótboltann og sinnt þjálf-
un og fleiru. Núna snýst vinnan
hans um íþrótta- og frammi-
stöðusálfræði þar sem hann
hefur mest verið að vinna bæði
með einstaklingum og liðum og
þá ekki bara í fótboltanum
heldur einnig öðrum íþrótta-
greinum. Svo hefur hann verið
stundakennari í Háskóla Ís-
lands síðastliðin tíu ár en hans
aðalvinna er hjá Gallup þar
sem hann er viðskiptastjóri.
„Núna er ég í mánudags-
bolta með gömlum KR-ingum
sem er mjög skemmtilegur félagsskapur og svo hef ég almennan áhuga
á íþróttum og fylgist sérstaklega vel með íslensku íþróttafólki sem er að
spjara sig víðsvegar um heiminn. Ég hef mjög gaman af því að lesa
bækur og safna fyrstu útgáfum af alls konar bókum, ljóðabókum og
skáldsögum. Ég hef haldið mikið upp á Steingrím Thorsteinsson og Pál
Ólafsson, á nokkrar ljóðabækur eftir þá sem og bækur sem Steingrímur
hefur þýtt. Svo eru fleiri áhugamál þetta týpíska, ferðast og skoða
heiminn.“
Eiginkona Hauks Inga er Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, aðstoðar-
dagskrárstjóri á RÚV, og börn þeirra eru Eldey Erla átta ára og Jökull
sem varð fimm ára í fyrradag.
„Mér er eiginlega boðið í afmælið mitt í dag. Við Ragnhildur Stein-
unn giftum okkur á Ítalíu í sumar og það var svo skemmtilegt að vinir
okkar úr ýmsum áttum mynduðu vinahóp sem ætlar að hittast í dag og
bjóða til veislu. Okkur er boðið og það hittist þannig á að það er á af-
mælisdegi mínum, en ég er ekki vanur því að halda upp á afmælið.“
Úr brúðkaupinu Haukur Ingi.
Knattspyrnukappi
og bókaunnandi
Haukur Guðnason er fertugur í dag
Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir
Ó
lína Kjerúlf Þorvarðar-
dóttir fæddist í Reykja-
vík 8.9. 1958 og ólst þar
upp til 14 ára aldurs er
hún flutti með for-
eldrum sínum til Ísafjarðar: „Ég ólst
upp í Hlíðunum, við Miklubrautina,
gegnt Klambratúninu, lék mér á
túninu og í Öskjuhlíðinni, æfði hand-
bolta með Val og var í Hlíðaskóla.
Kennari minn var Ármann Kr. Ein-
arsson, sá ljúflingur og vinsæli
barnabókahöfundur. Ég las bæk-
urnar hans upp til agna. Ég fékk
heilahimnubólgu sjö ára og lá um
skeið þungt haldin á sjúkrahúsi. Þeg-
ar ég útskrifaðist þaðan kom
Ármann í eigin persónu að sækja
mig og fylgdi mér síðan í skólann.
Pabbi hafði hesta hjá Fáki inni við
Elliðaár og þangað tók maður strætó
til að gefa hestunum.“
Á Ísafirði lauk Ólína stúdentsprófi
1979. Sama ár réð hún sig kennara
við Gagnfræðaskólann á Húsavík í
einn vetur, hóf síðan háskólanám í
Reykjavík 1980 og bjó þar til ársins
2001, að undanskilinni eins árs dvöl í
Danmörku 1996-97. Hún flutti til
Ísafjarðar 2001 og bjó þar til 2017 er
hún flutti aftur til Reykjavíkur.
Ólína lauk BA-prófi í íslenskum
bókmenntum og heimspeki 1985,
cand.mag.-prófi í íslenskum bók-
menntum og þjóðfræðum 1992 og
lauk dr.phil.-prófi í þjóðfræði við
heimspekideild HÍ árið 2000.
Ólína var blaðamaður við NT
1984-85, fréttamaður við Ríkis-
útvarpið-Sjónvarp 1986-89, dag-
skrárgerðarmaður við ríkisútvarpið
1989-90, borgarfulltrúi og borgar-
ráðsmaður í Reykjavík 1990-94, for-
stöðumaður þjóðháttadeildar og
upplýsingafulltrúi Þjóðminjasafns
Íslands 1999-2001, stundakennari í
þjóðfræði við HÍ 1991-2000, fræði-
maður í Reykjavíkurakademíunni
1997-2001, skólameistari Mennta-
skólans á Ísafirði 2001-2006, alþing-
ismaður 2009-2013 og aftur 2015-
2016. Hún hefur jafnframt stundað
ritstörf og bókmenntagagnrýni um
árabil.
Ólína sat í Stúdentaráði HÍ og í
Ólína K. Þorvarðardóttir þjóðfræðingur – 60 ára
Ömmustrákur Ólína með sonarsyni, Jökli Erni Þorvarðarsyni, við hinn fræga mýrarknattspyrnuvöll á Ísafirði.
Ærleg og ákveðin
atorku- og fræðikona
Hjónin Ólína og Sigurður ganga úr
Veiðileysufirði yfir í Flöguvík.
Reykjavík Einar Glói
Steinþórsson fæddist
28. desember 2017 kl.
02.42. Hann vó 3.350
g og var 50,5 cm lang-
ur. Foreldrar hans eru
Glódís Guðgeirs-
dóttir og Steinþór
Helgi Arnsteinsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is