Morgunblaðið - 08.09.2018, Side 47

Morgunblaðið - 08.09.2018, Side 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018 Sýning Theresu Himmer, Levania, verður opnuð í Hverfisgalleríi að Hverfisgötu 4 í dag, laugardag, klukkan 16. Þetta er fyrsta einka- sýning hennar í galleríinu en hún hefur komið að ýmsum sýningum hér á landi á und- anförnum árum auk þess að setja upp áberandi úti- listaverk. Theresa fædd- ist í Árósum árið 1976. Hún lauk MFA-gráðu við myndlistarskóla í New York og var þá í eitt ár á sérstakri námsbraut við Whitney-listasafnið. Áður hafði Theresa tekið meistaragráðu í arki- tektúr við Arkitektaskólann í Árós- um. Himmer bjó á Íslandi um langt skeið, á árunum 2005 til 2017. Loftkenndar ímyndir Sýningin Theresu, Levania, er fyrsta birtingarmynd lengra verk- efnis sem á rætur í skáldsögunni Somnium (Draumnum) eftir Jo- hannes Kepler frá árinu 1608. Í Somnium birtir Kepler ná- kvæma lýsingu á því hvernig alheim- urinn (og jörðin) gætu litið út séð frá tunglinu og því er sagan talin grund- vallarverk í tunglfræðum. Um leið er hún ein fyrsta vísindaskáldsagan. Aðalpersóna sögunnar er Dura- cotus, íslenskur drengur. Röð ým- issa atvika lýkur með því að Duraco- tus kemur til Danmerkur og nemur þar himinfræði undir handleiðslu hins fræga stjörnufræðings Tycho Brahe. Við heimkomuna til Íslands dýpkar hann svo þekkingu sína á stjörnunum enn frekar undir leið- sögn móður sinnar, fjölkunnugrar konu sem særir fram blíðlyndan anda utan úr geimnum sem lýsir í smáatriðum fyrir þeim alheimseyj- unni Levaniu. Sú frásögn er í raun lýsing Keplers á tunglinu og geimn- um, eins og séð frá tunglinu sjálfu. Á sýningu Theresu Himmer sam- einar verkið „Speglað ljós“ hin tvö aðskildu listaverk „Dormant Echo- es“ og „Infinite Transmission“. Hið fyrrnefnda er röð óljósra og loft- kenndra ímynda úr sjálflýsandi lit- arkornum sem festar eru milli gagn- særra akrýlplatna og minna á það sem sést í gegnum linsu smásjár. Hitt er innrömmuð samsetning, mynduð úr þríhyrningum sem spegl- ast og snúast vélrænt. Þríhyrning- arnir varpa í eilífri hringrás mjúkri birtu á helming myndanna í „Dorm- ant Echoes“ og vekja litina þannig til lífs. Umhverfisbirtan í galleríinu virkjar hinn helming verksins. Tunglverk Eitt verkið á sýningu Theresu Himmer, Galilean Moons 3, 2018. Vinnur sýninguna út frá skáldsögu Keplers Theresa Himmer annarra og samið tónlist fyrir kvikmyndir. Fyrstu skrefin við gerð hljómplötunnar voru tekin árið 2012 þegar Fanney setti sam- an hljómsveitina Kjass. Í hljóm- sveitinni voru Anna Gréta Sigurð- ardóttir (píanó), Mikael Máni Ásmundsson (gítar), Birgir Steinn Theodorsson (kontrabassi) og Ósk- ar Kjartansson (trommur). Verk- efnið hefur svo þróast og er orðið listamannsnafn Fanneyjar. Upp- tökur fyrir hljómplötuna fóru fram í tveimur hlutum, fyrst árið 2012 með hljómsveitinni og síðan 2017, en í það skipti eingöngu með Önnu Grétu og sjálfum Tóm- asi R. Einarssyni. Platan verður gefin út raf- rænt en einnig sem vínylplata. Þess má geta að útgáfutónleikar munu fara fram í Fríkirkjunni hinn 13. september. » Þagnir eru t.a.m.notaðar á áhrifarík- an hátt, gítarstrokurnar koma eftir tveggja sek- úndna bið, píanósláttur varlegur og mjúkur Söngkona Kjass er listamannsnafn Fanneyjar Kristjáns Snjólaugardóttur. ir hans Hrafnhildur Marta sem átti sitt tónlistarlega uppeldi í tónlistar- skóla Akureyrar og með Sinfón- íuhljómsveit Norðurlands mun leika Sellókonsert nr. 2 eftir Dovrák. Auk þess verða Scheherazade eftir Korsakov og nýtt verk eftir Atla Örvarsson flutt. Tónlistarstarf Eista heiðrað Í október verður tónlistarstarf Eistlendinga heiðrað með hátíð- artónleikum í tilefni af 100 ára lýð- veldi Eistlands. „Stór hópur Eistlendinga hefur búið á Norðurlandi og starfað með okkur um árabil. Við flytjum verk fyrir kammerkór og strengjasveit eftir Arvo Pärt, Tõnu Kõrvits og Risto Laur, tónskáld, rithöfund og píanista sem búið hefur á Íslandi um árabil,“ segir Þorvaldur og bætir við að Menningarfélag Akureyrar leggi nú mikla áherslu á samvinnu allra sviða sem heyra undir Menningar- félag Akureyrar en það eru Sinfón- íuhljómsveit Norðurlands, Leik- félag Akureyrar og Menningarhúsið Hof. „Þetta samstarf skilar sér nú sem aldrei fyrr. Þar má nefna samstarfs- verkefni með Leikfélagi Akureyrar og Hofs í fjölskylduskemmtuninni Krunk, krunk & dirrindí sem er fuglakabarett þar sem helstu far- fuglar, spéfuglar og spáfuglar segja frá ferðalögum sínum á gam- ansaman hátt,“ segir Þorvaldur. „Aðalviðburður Menningarfélags Akureyrar verður án efa Kabarett sem skartar ekki minni stjörnum en Andreu Gylfadóttur, Karli Ágústi Úlfssyni og Ólöfu Jöru Skagfjörð undir leikstjórn Mörtu Nordal og dansstjórn hins heimsþekkta Lee Proud,“ segir Þorvaldur og bætir við að 1. desember verði fullveldis- kantatan, Út úr kofanum eftir Mich- ael Jón Clarke við texta Sigurðar Ingólfssonar, flutt. „Michael Jón er stjórnandi tón- leikanna og við, Hymnodia og nem- endur tónlistarskólanna á Norður- landi styðjum við flutninginn. Eftir áramót frumflytjum við barna- og fjölskyldusöngleikinn Gallsteinar afa Gissa eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur,“ segir Þorvaldur en söngleiknum er lýst sem yfirnátt- úrulegum með fáránlegri atburða- rás sem geti gerst í öðru hverju húsi á Akureyri. Markaðsetning á SinfoniaNord „Með því að taka þátt í ýmiskonar þjónustuverkefnum sem skapa SN tekjur getum við sett þær tekjur aftur inn í starfsemina til að halda fleiri klassíska og alls konar tón- leika. Þá er ákveðnu markmiði náð og þó? Menningarstofnun eins og Menningarfélag Akureyrar og Sin- fóníuhljómsveit Norðurlands ættu ekki að þurfa að sækja sér verkefni til að lifa af að mínu mati. Ég vinn nú að því að markaðssetja Sinfon- iaNord-verkefnið til þess að Sinfón- íuhljómsveit Norðurlands geti skap- að ný tækifæri fyrir alla atvinnu- tónlistarmenn á Íslandi,“ segir Þorvaldur og bætir við að baráttan þessa dagana sé að fá aukið fé til menningarstarfseminnar. „Með sanngjörnum fjárveitingum væri hægt að fastráða fastan kjarna tónlistarmanna sem sérhæfðu sig í þessum nýstárlega og nútímalega atvinnuvegi. Fleiri tónlistarmenn gætu þá haft atvinnu af tónlist og búið í Eyjafirði. Unga fólkið gæti komið til baka að loknu tónlist- arnámi og haft atvinnu af listfengi sínu,“ segir Þorvaldur og bætir við að mikill velvilji og gróska sé í kringum tónlistarstarf á Akureyri. Metnaður Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og SinfoniaNord eru dugleg að finna ný verkefni til þess að geta haldið úti kröftugu starfi atvinnutónlistarmanna allt árið í Eyjafirði. Hér nýtur hljómsveitin Dimma góðs af. Ljósmynd/Auðunn Níelsson Sókn Upptökuver SinfoniaNord í Hofi á Akureyri er vel útbúið. Þar fara fram upptökur á tónlist fyrir íslenskar og erlendar kvikmyndir og þætti. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Lau 8/9 kl. 20:00 54. s Lau 15/9 kl. 20:00 56. s Fös 21/9 kl. 20:00 58. s Fös 14/9 kl. 20:00 55. s Fim 20/9 kl. 20:00 57. s Lau 29/9 kl. 20:00 59. s Besta partýið hættir aldrei! Elly (Stóra sviðið) Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Fim 4/10 kl. 20:00 152. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Mið 26/9 kl. 20:00 148. s Lau 6/10 kl. 20:00 153. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Fim 27/9 kl. 20:00 149. s Sun 7/10 kl. 20:00 154. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s Fös 28/9 kl. 20:00 150. s Lau 13/10 kl. 20:00 155. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Sun 30/9 kl. 20:00 151. s Síðasta uppklappið. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Fös 14/9 kl. 20:00 Frums. Fös 21/9 kl. 20:00 3. s Sun 23/9 kl. 20:00 5. s Sun 16/9 kl. 20:00 2. s Lau 22/9 kl. 20:00 4. s Fim 27/9 kl. 20:00 6. s Gleðileikur um depurð. Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið) Fös 21/9 kl. 20:00 Frums. Fim 27/9 kl. 20:00 4. s Fös 5/10 kl. 20:00 7. s Lau 22/9 kl. 20:00 2. s Fös 28/9 kl. 20:00 5. s Lau 6/10 kl. 20:00 8. s Sun 23/9 kl. 20:00 3. s Lau 29/9 kl. 20:00 6. s Sun 7/10 kl. 20:00 9. s Velkomin heim, Nóra! Þarftu að láta gera við? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.