Morgunblaðið - 08.09.2018, Síða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2018
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Viðtökurnar voru mjög fínar en
það eru eins og svo oft skiptar skoð-
anir um uppfærslu óperunnar.
Leikstjórinn fékk mörg bravó en
það var líka púað. Það er góðs viti
því að það er leiðinlegt ef aðstand-
endur sýningar fá einungis kurt-
eislegt klapp í lok sýningar,“ segir
Bjarni Thor Kristinsson bassi eftir
frumsýningu á óperunni Rínargullið
sem er fyrsti hluti af fjórum í Nifl-
ungahringnum eftir Richard Wag-
ner.
Rínargullið var frumsýnt í Kassel
í Þýskalandi 1. september og er
Bjarni fyrsti Íslendingurinn til að
syngja hlutverk Wotan eða Óðins
eins og hann heitir í íslensku goða-
fræðinni. Rínargullið er fyrsta óper-
an af fjórum í Niflungahringnum.
Bjarni mun syngja hlutverk Óðins í
Valkyrjunni í mars 2019 og í Sigurði
Fáfnisbana í september sama ár.
„Það er ekki hlutverk fyrir Óðin í
fjórðu óperunni Ragnarök sem
frumsýnd verður vorið 2020 en ég
syng aftur vorið 2021 þegar Nifl-
ungahringurinn verður fluttur
tvisvar sinnum í heild sinni á tveim-
ur vikum og ég mun þá í fyrsta sinn
fylgjast með þeim örlögum sem
samsöngvarar mínir í Ragnarökum
fá,“ segir Bjarni Thor. Hann segir
að tónlistaráhugamenn hafi miklar
og oft stífar skoðanir á ópernum
Wagners.
Uppfærslan afgoðavædd
„Sagan er sögð í nútímaraunveru-
leika í uppfærslunni í Kassell. Það
er hins vegar engu í sögunni breytt
né sögupersónum hennar en það er
búið að afgoðavæða uppfærsluna,“
segir Bjarni Thor sem ekki var bú-
inn að kynna sér dóma um óperuna.
„Rínargullið er eins og forrétt-
urinn og það er erfitt að gagnrýna
verkið í heild sinni fyrr en allur
matseðillinn hefur verið smakk-
aður,“ segir Bjarni Thor sem syng-
ur hlutverk Óðins.
„Rínargullið er þægilegasti hlut-
inn og sá stysti ekki nema tveir og
hálfur tími. Það eru engir virkilega
erfiðir partar í því. Það reynir
meira á að syngja þetta hlutverk í
aðalmáltíðinni, Valkyrjunni og Sig-
urði Fáfnisbana sem eru miklu erf-
iðari og taka hvor um sig meira en 4
klukkustundir í flutningi. Þeim sem
hafa gaman af óperum Wagners
finnst sumum hverjum óperurnar
allt of stuttar,“ segir Bjarni Thor
sem lærir og undirbýr sig fyrir
næstu hlutverk auk þess að syngja í
Rínargullinu en hann syngur ekki í
vel útilátna eftirréttinum, Ragna-
rökum.
„Niflungahringurinn á hug minn
allan og er kjarninn í verkefnunum
næstu árin. Það er mjög góð tilfinn-
ing fyrir okkur sem erum í lausa-
mennsku að hafa föst verkefni og
sjá dagatalið fyllast,“ segir Bjarni
Thor sem er með nokkur önnur
verkefni í gangi. „Ég er mjög
ánægður með það sem komið er í
Niflungahringnum og prísa mig
sælan að fá að vinna undir frábærri
leikstjórn Markus Dietz og hljóm-
sveitarstjórn Francesco Angelico
því þetta er langtímasamstarf og
gott þegar allir aðilar eru sam-
stiga.“
Sumir fögnuðu, aðrir púuðu
Bjarni Thor syngur hlutverk Óðins í Niflungahringnum Rínargullið for-
rétturinn og auðveldasti parturinn Aðalrétturinn rúmir fjórir tímar hvor hluti
Ljósmyndir/N. Klinger
Niflungahringurinn Bjarni Thor Kristinsson, klæddur jakkafötum, syngur í nútímauppfærslu á Rínargullinu í
óperunni í Kassel. Ekki voru allir sáttir við afgoðavæddu uppfærsluna og var bæði púað og fagnað í lokin.
Átök Bjarni Thor í hlutverki Óðins sem tekst á við Frigg sem leikin er og
sungin af Ulrike Schneider í fyrsta hluta Niflungahrings Richards Wagners.
Ragnheiður Káradóttir opnar
einkasýninguna Utan svæðis í gall-
eríinu Harbinger, Freyjugötu 1 í
Reykjavík, í dag kl. 17. Ragnheiður
býr og starfar í Brooklyn í New
York og útskrifaðist með BA-gráðu
í myndlist frá Listaháskóla Íslands
árið 2010 og lauk meistaranámi í
myndlist frá School of Visual Arts í
New York sex árum síðar. Hún hef-
ur tekið þátt í fjölda sýninga, bæði
á Íslandi og erlendis, og er helm-
ingur listatvíeykisins Lounge Corp.
sem miðar að því að sýna myndlist í
óhefðbundnum rýmum, samkvæmt
tilkynningu.
Ragnheiður sýnir innsetningu í
Harbinger sem er framhald af því
sem hún hefur verið að gera og
þróa síðustu ár, „samtal milli
óræðra og skrýtilegra skúlptúra
sem bjóða áhorfandanum að mynda
sínar eigin tengingar og skilning“,
eins og segir í tilkynningu.
Sýningarstjórar eru Halla Krist-
ín Hannesdóttir og Steinunn Önnu-
dóttir.
Samtal óræðra og skrýtilegra skúlptúra
Samtal Listakonan Ragnheiður Kára-
dóttir með forvitnilegan hlut á höfði.
Hallveig Rúnarsdóttir, Jón Svavar Jósefsson og Hrönn
Þráinsdóttir koma saman á söngtónleikum fyrir börn á
öllum aldri í Salnum í Kópavogi í dag kl. 13.
Hallveig og Jón munu syngja um skrímsli, heilbrigð
hjón, Harald kjúkling, tengdamæður, karl og kerlingu,
sauði og kisur, eins og segir á vef Salarins og að svo sé
aldrei að vita nema Papageno og Papagena úr Töfra-
flautu Mozarts mæti á staðinn og heilli tónleikagesti eins
og þeim sé einum lagið. Hrönn leikur á píanó og saman
mynda þau Hallveig og Jón TríóPa.
Kjúklingur og annað fiðurfé með TríóPa
Hrönn Þráinsdóttir
ICQC 2018-20
Ljósmyndakeppni
Bílablaðs Morgunblaðsins
Kosning og nánari upplýsingar á
Facebook.com/bilafrettir
Leiðbeiningar fyrir ljósmyndara:
• Ljósmyndir skal senda í tölvupósti á bill@mbl.is
• Frestur til að skila inn myndum í keppni september er til kl. 23:59 þriðjudaginn 11. sept.
• Myndina skal senda sem viðhengi, á jpg-sniði og skal myndin vera í hámarksupplausn
• Fullt nafn rétthafa myndarinnar og símanúmer skal fylgja með auk lýsingar á myndefninu
• Keppt verður í fjórum lotum, næstu þrjá mánuði og fyrir þrjár bestu myndir hvers mánaðar eru
veittar gjafakörfur með Meguiar bón- og bílaþvottavörum frá Málningarvörum
• Hver þátttakandi getur aðeins sent inn eina mynd í hverjum mánuði
• Sérstök dómnefnd velur síðan bestu ljósmyndina í desember
Fyrsti vinningur er ferð
fyrir tvo á bílasýning-
una í Genf í mars.
Í boði Toyota á Íslandi
www.mbl.is/bill
Leifar nefnist ljósmyndasýning
Katrinu Jane Perry sem opnuð
verður í Ramskram, Njálsgötu 49, í
dag kl. 17. „Þau vistfræðilegu ör
sem sýna áhrif manns og iðnaðar á
Langjökli samhliða Þórisjökli setja
spurningarmerki við upplifun ein-
staklingsins í náttúrunni og sjón-
hverfingar æsifréttamiðla. Hver er
munurinn á því virði sem metið er
út frá athöfnum mannsins í nátt-
úrunni og þeim sannleika sem finna
má í leifum þeirra?“ segir m.a. um
verk Perry sem er bandarísk og er í
MA-námi í myndlist við Listahá-
skóla Íslands.
Leifar í Ramskram
Á jökli Ein ljósmynda Perry.
Kristinn G. Jó-
hannsson opnar
myndlistarsýn-
inguna Að lokum
í sýningarsal fé-
lagsins Íslensk
grafík í Hafn-
arhúsi, hafnar-
megin, í dag kl.
14. „Sýningarfer-
illinn hófst 1954
og lýkur nú 64
árum síðar,“ skrifar Kristinn á Fa-
cebook um sýninguna en á henni
sýnir hann bæði grafíkverk og mál-
verk. Kristinn stundaði nám í
myndlist á Akureyri, í Reykjavík og
í Edinburgh College of Art og hélt
fyrstu einkasýningu sína á Akur-
eyri árið 1954. Síðan þá hefur hann
verið virkur í sýningahaldi.
Að lokum í sal Ís-
lenskrar grafíkur
Kristinn G.
Jóhannsson