Morgunblaðið - 13.09.2018, Side 35
FRÉTTIR 35Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018
ROYAL
Íslensk framleiðsla
Tryggir öruggan bakstur
Aukaársfundur 2018
Aukaársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður haldinn
föstudaginn 28. september 2018 kl. 14 að Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Brottfall laga nr. 12/1999 um Lífeyrissjóð bænda.
2. Tillögur að breyttum samþykktum.
Tillögur samþykktabreytinga sem ekki leiða af lögum liggja frammi á skrifstofu
sjóðsins.
Allir sjóðfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyrisþegar, eiga rétt til fundarsetu.
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
Sími 563 1300 - lsb@lsb.is - www.lsb.is
Skoðið miðjublaðið og
gerið góð kaup í Bónus
g
Mánudaga - Fimmtudaga
10:00 - 19:00
Föstudaga - Laugardaga
10:00 - 19:30
Sunnudaga
11:00 - 18:00
Sm ratorg
aðeins í Bónus Sm ra or
á i
Lengri opnunartími
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það lítur býsna vel út með upp-
skeru. Sumir akrar líta vel út en
aðrir eru misjafnir. Það fer aðeins
eftir því hvar þeir eru. Við lentum í
frosti fyrir mánaðamót og þá stopp-
aði allur vöxtur, líka það sem ekki
var komið nógu langt,“ segir Her-
mann Ingi Gunnarsson, bóndi í
Klauf í Eyjafirði, sem hóf korn-
þreskingu í gær. Fleiri bændur
voru að hefja uppskerustörf.
Hermann segir að ágætlega hafi
viðrað fyrir korn í sumar, sér-
staklega í júní og júlí en ágúst hafi
verið mun síðri. „Ef ágúst hefði ver-
ið jafngóður og hinir mánuðirnir
hefðum við byrjað að þreskja í
ágúst,“ segir Hermann. Hann hefur
venjulega byrjað í upphafi sept-
ember.
Hann er með ræktun í Klauf, á
Litla-Hamri og Borgarhóli. Ræktar
bygg á um 20 hekturum og einnig
nokkuð af hveiti og rúgi sem hann
sáði fyrir síðasta sumar svo og bjór-
bygg. Hermann segir að bjórbyggið
sé tilraun sem unnin er í samvinnu
við bruggsmiðjuna Segul á Siglu-
firði. Ætlunin er að athuga hvort
hægt er að brugga úr því. Afar vel
lítur út með hveitið og rúginn. Hann
ætlar að leyfa því að þorna vel og
þreskja það síðast.
Aðstæður gætu breyst
Annars er byggið þurrkað og not-
að í kjarnfóðurblöndur fyrir kýrnar
í Klauf.
Kornrækt hefur dregist saman í
Eyjafirði eins og um allt land. Her-
mann Ingi segir það miður. Hann
telur líkur á að það geti breyst aftur
ef gengi krónunnar fer að falla og
verð á innfluttu kjarnfóðri að
hækka þess vegna og vegna upp-
skerubrests í Evrópu. Þá geti verið
að fleiri fari að reyna að sá. „Það
vantar meiri stöðugleika í þetta til
þess að hægt sé að halda úti öfl-
ugum vélakosti,“ segir Hermann
Ingi.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Eyjafjörður Snorri Már Snorrason þreskir korn á akri niðri á flatanum við Litla-Hamar í Eyjafjarðarsveit.
Vel lítur út með kornupp-
skeru hjá eyfirskum bændum
Kornþresking hófst af fullum krafti í Eyjafirði í gær
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Uppskera Kornið á ökrum eyfirskra kornbænda lítur vel út. Ástandið er þó
misjafnt á milli akra og frostið setti strik í reikninginn.
Atvinna