Morgunblaðið - 13.09.2018, Qupperneq 69
MENNING 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Komandi starfsár einkennist af
frumsköpun í bæði dansi og tónlist,“
segir Erna Ómarsdóttir, listdans-
stjóri Íslenska dansflokksins (Íd), og
bendir til samanburðar á að undan-
farin tvö ár hafi samtal milli dansins
og myndlistar verið í brennidepli.
„Heilt yfir legg ég áherslu á frum-
sköpun og tilraunamennsku. Ég er
oftast með margar hugmyndir að
verkefnum í gangi, en tíminn til
framkvæmda og útfærslu þarf að
vera sá rétti,“ segir Erna og bendir á
að ramminn markist af tíma jafnt
sem fjárhag. „Ég fylgi ávallt inn-
sæinu. Sumar hugmyndir þarf helst
að framkvæma strax meðan aðrar
þurfa tíma til að þróast og meltast.“
Nýverið bárust fréttir af því að Íd
hefði haldið lokaðar áheyrnarprufur
fyrir dansara fyrst í París og síðan
Reykjavík þar sem alls 400 manns
sóttu um fjórar lausar stöður. „Þetta
var lærdómsríkt og áhugavert ráðn-
ingarferli,“ segir Erna og viður-
kennir að erfitt hafi verið að velja úr
svo stórum hæfileikahópi danslista-
manna en að fjöldi umsókna hafi þó
komið sér ánægjulega á óvart. „Ekki
síst í ljósi þess að við auglýstum
áheyrnarprufurnar ekki mikið. Einn-
ig var ánægjulegt hversu margir um-
sækjenda höfðu séð bæði Black Mar-
row og Sacrifice á hátíðum erlendis,“
segir Erna, en aðeins 5% umsækj-
enda voru frá Íslandi.
Gefandi að vinna með börnum
Starfsárið hefst formlega á sunnu-
dag þegar barnadanssýningin Óður
og Flexa: Rafmagnað ævintýri snýr
aftur á Stóra svið Borgarleikhússins.
„Við sýndum fjórar sýningar á
Listahátíð í Reykjavík í vor fyrir
troðfullu húsi og því gaman að geta
tekið sýninguna aftur upp,“ segir
Erna og tekur fram að sér finnist já-
kvætt að geta boðið ungum áhorf-
endum að kynnast dansinum. „Við
höfum á síðustu árum reglulega verið
með barna- og ungmennaverkefni og
langar til að geta gert meira af því,
enda er þetta ekki síst ótrúlega gef-
andi fyrir okkur,“ segir Erna og
nefnir í því samhengi The Great
Gathering eftir Ásrúnu Magnús-
dóttur og Alexander Roberts í sam-
vinnu við dansara Íd sem unnið var
með hópi ungmenna á aldrinum átta
til 16 ára og sýnt fyrst í Hörpu á
Norður & niður og síðan á Eiðistorgi
á Listahátíð í Reykjavík.
Í hlutverkum Óðs og Flexu eru
Hannes Þór Egilsson og Þyri Huld
Árnadóttir, en með hlutverk raf-
magnaða gestsins fer Ernesto
Camilo Aldazabal Valdes. „Þetta er
mjög falleg sýning eftir þau Hannes
Þór og Þyri Huld í leikstjórn Péturs
Ármannssonar með frábærri leik-
mynd og búningum Sigríðar Sunnu
Reynisdóttur og ljósahönnun Kjart-
ans Darra Kristjánssonar,“ segir
Erna og tekur fram að gaman sé að
geta boðið skólabörnum á sýningar.
„Einnig langar okkur að verða sýni-
legri á landsbyggðinni með farand-
sýningar,“ segir Erna.
Undirliggjandi kvenorka
Fyrsta frumsýning starfsársins
nefnist Dísablót og verður 17. nóv-
ember á Nýja sviði Borgarleikhúss-
ins, en sýningin er hluti af sviðs-
listahátíðinni Spectacular. Þar verða
frumsýnd Verk nr. 1 eftir Steinunni
Ketilsdóttur við tónlist Áskels Harð-
arsonar og Pottþétt myrkur eftir
Ernu Ómarsdóttur og Valdimar
Jóhannsson við tónlist Sigur Rósar
og Valdimars Jóhannssonar.
„Verk okkar Valda sem þróaðist
yfir í röð verka hefur verið í vinnslu
og sýnt í ólíkum, hráum rýmum frá
því við unnum fyrst að því fyrir Norð-
ur & niður í fyrra,“ segir Erna og
bætir kímin við: „Þegar Sigur Rós
bauð okkur til samstarfs þá kom ekki
annað til greina en að segja já.“
Myrkraverkaserían hófst sem fyrr
segir á Norður & niður um áramótin
þar sem frumgerðin var sýnd í
Hörpu, vídeóverk var svo sýnt á
Vetrarhátíð á tveimur risatönkum við
hliðina á Marshallhúsinu og í vor var
þriðja útfærslan unnin inn í rými
Hafnarhússins fyrir Listahátíð í
Reykjavík. „Það hefur verið gaman
að þróa verkið yfir lengri tíma fyrir
ólík rými og á ólíkum árstímum, sem
aftur hefur haft bein áhrif á útkom-
una,“ segir Erna sem hlakkar til að
vinna lokaverkið inn í leikhúsrými í
fyrsta skipti með sinni umgjörð í
formi lýsingar, hljóðvinnu og sviðs-
myndar.
Spurð hvernig verk þeirra Stein-
unnar kallist á svarar Erna: „Sem
höfundar erum við, að ég held, frekar
ólíkar en það eru samt einhverjir
sameiginlegir snertifletir. Verk okk-
ar búa til dæmis yfir ákveðinni undir-
liggjandi kvenorku og þaðan kom
samheiti sýningarkvöldsins.
Steinunn hefur á síðustu árum
haldið vinnusmiðjur úti um alla Evr-
ópu með dönsurum, danshöfundum
og fræðimönnum undir yfirskriftinni
„expressions“. Þar hefur hún verið að
vinna með virði og vald væntinga í
dansi, skoða hvernig dansverk verð-
ur til, hvaða væntingar áhorfendur
hafa og hvers þeir vænta ekki og svo
framvegis,“ segir Erna og bendir á
að Verk nr. 1 sé hugsað sem fyrsta
verkið í röð verka.
„Við Steinunn eigum það sameig-
inlegt að halda áfram að vinna með
sama efni eða rannsóknarspurningu í
röð verka og leyfum hlutunum að
þróast úr einu verkefni yfir í annað.
Stundum verður maður það ástfang-
inn af einhverri hugmynd að mann
langar til að halda áfram að þróa
hana yfir lengi tíma og fara í marga
hringi með hana í nokkrum ólíkum
verkum. Ég lít ekki svo á að maður
þurfi alltaf að byrja á einhverju glæ-
nýju, enda erum við mótuð af fortíð
okkar og fyrri sýningum sem geta átt
sér framhaldslíf með nýju fólki í nýju
samhengi. Mér finnst gaman að nálg-
ast vinnuna svona og Steinunn er í
svipuðum pælingum þó útfærslan sé
önnur. Þetta er í raun endalaus rann-
sóknarvinna sem klárast aldrei, þó
maður geti hvílt efnið um tíma.“
Allir hafa sína sögu að segja
Dagana 12.-16. desember verður
danslistahátíðin Ice Hot haldin í
Reykjavík. Opnunarsýning hátíð-
arinnar verður Fórn á Stóra sviði
Borgarleikhússins sem Íd frumsýndi
fyrir hálfu öðru ári. „Skipuleggj-
endur hátíðarinnar óskuðu eftir því
að Fórn yrði opnunarsýningin. Það
er frábært að fá þessa hátíð til Ís-
lands, þó vissulega sé það ákveðið
áhyggjuefni hversu fá danssvið eru í
boði hérlendis og danssenan í raun
húsnæðislaus,“ segir Erna.
Um hvað syngjum við nefnist verk
eftir belgíska danshöfundinn Pieter
Ampe við tónlist Jacob Ampe sem Íd
frumsýnir á Stóra sviði Borgarleik-
hússins 8. febrúar 2019. „Pieter er vel
þekktur í evrópsku og belgísku dans-
senunni fyrir frumlegheit. Ég þekki
hann frá fyrri tíð og hef fylgst með
honum undanfarin ár. Á sviðslistahá-
tíðinni Everybody’s Spectacular fyrir
tveimur árum sýndi hann dúett sem
mér fannst ótrúlega skemmtilegur,“
segir Erna sem þá þegar spurði
Ampe hvort hann vildi vinna með Íd.
„Í millitíðinni samdi hann frábært
verk fyrir norska danshópinn Carte
Blanche. Verk hans eru oft á tíðum
mjög brútal líkamlega, húmórísk og
mjög mannleg,“ segir Erna og bendir
á að verk Ampe minni sig dálítið á
einhvern óútskýranlegan hátt á
Charlie Chaplin.
Spurð í hvað titill verksins vísi rifj-
ar Erna upp að þegar Ampe hélt í vor
vinnusmiðju með dönsurum Íd hafi
hópurinn á einhverjum tímapunkti
farið að syngja. „Og þá vaknaði sú
spurning um hvað við syngjum í dag.
Athyglin hafi beinst inn á við og þá er
fallegt að syngja spurningarnir sem
við stöndum frammi fyrir. Meðal
þeirra spurninga sem hópurinn velti
fyrir sér er hvað ef við getum ekki
tjáð hug okkar og hjarta með orðum
og einnig hvort við þurfum svör við
öllu,“ segir Erna og tekur fram að
verkið muni fjalla um átta dansara
sem verji drjúgum tíma saman og
hafi allir sína sögu að segja. „Ég held
að þetta verði mjög persónuleg sýn-
ing þar sem dansararnir taka mikinn
þátt í sköpuninni,“ segir Erna og
bendir á að eitt af einkennum frum-
sköpunar í dansi sé að hugmyndir að
verki séu oft útfærðar og unnar í
nánu samstarfi við dansara og geti
farið í óvæntar áttir. „Þetta er þó
nokkuð ólíkt vinnunni þegar lagt er
af stað með fyrirfram skrifað hand-
rit.“
Ný dúettadansröð hefst í vor
Síðasta stóra frumsýning Íd verð-
ur í Gautaborg vorið 2019, en þar er
um að ræða nýtt verk sem unnið er í
samvinnu við Gautaborgarsinfón-
íuna. Aðspurð segir Erna að titill
verksins og aðstandendur verði ekki
kynntir formlega fyrr en í nóvember.
Að lokum má nefna að Íd vinnur að
dúettadansröð sem sýnd verður í
Listasafni Reykjavíkur. „Það er allt-
af mjög hressandi að fara öðru hvoru
út úr leikhúsrýminu og sýna annars
staðar. Undanfarin ár hefur verið
einstaklega gefandi að vinna með
Listasafni Reykjavíkur. Hugmyndin
með röðinni er að gefa dönsurum
tækifæri til að semja og velja sér
samstarfsaðila utan við dansflokk-
inn,“ segir Erna og tekur fram að nú
þegar sé vinna hafin á tveimur dúett-
um fyrir röðina sem sýndir verða vor-
ið 2019. „Annars vegar er Aðalheiður
Halldórsdóttir dansari að vinna með
Kristínu Önnu Valtýsdóttur tónlist-
arkonu. Hins vegar er Hannes Þór
Egilsson dansari að vinna með Sögu
Sigurðardóttur danshöfundi.“
„Frumsköpun í dansi og tónlist“
Óður og Flexa snúa aftur hjá Íslenska dansflokknum Erna Ómarsdóttir listdansstjóri semur nýtt
verk til frumsýningar í nóvember Íd frumsýnir nýtt verk í samvinnu við Gautaborgarsinfóníuna
Morgunblaðið/Hari
Þróun „Það hefur verið gaman að þróa verkið yfir lengri tíma fyrir ólík rými og á ólíkum árstímum, sem aftur
hefur haft bein áhrif á útkomuna,“ segir Erna Ómarsdóttir um Myrkraverkaseríu sína sem hófst á Norður & niður.
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
ALLT Í BAÐHERBERGIÐ
FRÁ A TIL IFÖ
Tengi hefur mikla og góða reynslu af IFÖ baðinnréttingum.
IFÖ eru sænskar hágæðavörur sem framleiddar hafa verið allt frá 1936.
ICQC 2018-20