Morgunblaðið - 13.09.2018, Síða 48

Morgunblaðið - 13.09.2018, Síða 48
fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur Stóll á snúningsfæti í ítölsku nautsleðri 75 cm á breidd Verð frá 120.000 kr. Marta María mm@mbl.is Sú sem hér skrifar hefur alltaf verið á því að föt séu hin besta leið til að gera meira úr lífinu og bæta við ör- lítið meira fjöri. Gott dress getur bætt andlega líðan um mörg pró- sentustig. En það er með föt eins og annað í lífinu, annaðhvort hefur fólk áhuga á þessum efnum eða ekki. Þegar ég var yngri þá þótti viskós ógurlega gott efni, það var í flestum tilfellum krumpufrítt og fór vel í ferðatösku. Upparnir voru kannski ekki í viskós en þeir voru í tví- hnepptum fötum allan daginn. Vandamálið á þeim tíma var að það var erfitt fyrir konur að komast að kjötkötlunum. Það voru karlarnir sem bjuggu til peningana, konur voru meira til skrauts. Allir gamlir sjónvarpsþættir sýna þetta í frekar skýru ljósi. Ewing-bræðurnir Bobby og J.R. Ewing voru til dæm- is ekkert að taka kvenpeninginn með á fundi ef það átti að landa risa- díl. Konur voru bara til að leika með í frítímanum. Hjá eldri bróðurnum var það mikið stöðutákn að geta heimsótt nýja vinkonu eftir erfiðan dag á skrifstofunni og drukkið hraustlega. Það þótti líka fínt. Sem betur fer er þetta breytt. Nútímakonur standa í lappirnar og vinna sjálfar fyrir eigin peningum og kaupa það sem þær þurfa. Þess vegna er svolítið spaugilegt að skoða nýjustu tísku með þessar gömlu hugmyndir um stöðu kynjanna. Hausttísk- an 2018 er svolítið eins og hjá næntís-hjákonum. Við erum að tala um svarta jakka úr viskosi, tvíhneppta með gulltölum, við erum að tala um töskur með gull- böndum, rú- skinnsstígvél og uppháar gallabuxur. En það þýðir ekki að vera fastur með gamlar hugmyndir um lífið og til- veruna. Svartir jakkar úr viskósi eru klæðilegir og yfirleitt er hægt að smeygja sér í þá yfir gömlu fötin og fá þannig nýjan blæ fyrir vet- urinn. Það er svo- lítið málið núna. Þegar konur voru skrautmunir Föt eru merkileg fyrir margar sakir, ekki bara vegna þess að þau hylja nekt, heldur líka vegna þess að föt setja okkur í flokka. Sumir leggja mikið upp úr því að komast upp um flokk með klæðaburði sínum en aðrir klæða sig niður. Tvíhneppt Í hausttísk-unni er mikið um tví-hneppta jakka með gull-tölum. Þessi fæst í H&M. Díana Prinsessa Var þekkt fyrir sinn vandaða og heillandi fatastíl. Mjög næntís Versace haust 2018. Svipað Vorlína Versace árið 1991 og haustlínan 2018. Versace sækir innblástur í gamla tíma. Guli jakkinn er úr haust- línunni 1991 en svarti jakkinn er úr haustlínunni í ár. Hausttíska Versace minnir á gamla tíma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.