Morgunblaðið - 13.09.2018, Side 38

Morgunblaðið - 13.09.2018, Side 38
38 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018 Kanna á algengi sýklalyfjaþolinna E.coli-baktería í gæludýrum sem flutt eru til landsins. Rannsóknin verður gerð á vegum Matvælastofn- unar, MAST, og Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá MAST. Um er að ræða E.coli-bakteríur sem bera með sér gen sem hafa þann eiginleika að mynda ónæmi gegn mikilvægum sýklalyfjum. Bakteríur sem bera þessi gen eru líklegri til að vera fjölónæmar. Er könnunin hluti af meistara- verkefni við Dýralæknaháskólann í Kaupmannahöfn þar sem verið er að kanna algengi E.coli-myndandi baktería í gæludýrum á Íslandi og næmi þessara stofna fyrir öðrum sýklalyfjum verður kannað. Í til- kynningunni segir að sýklalyfja- ónæmi sé ein stærsta ógn við lýð- heilsu í dag. Safnað var sýnum úr hundum og köttum í samvinnu við dýralækna á höfuðborgarsvæðinu og á Suður- nesjum. Auk þess eru notuð saur- sýni úr hundum og köttum sem nú dvelja á einangrunarstöð vegna inn- flutnings til landsins.Tekið er fram að niðurstöður úr sýnum þeirra dýra sem eru í einangrun hafa engin áhrif á innflutningsleyfi þeirra. Kanna al- gengi E.coli í gæludýrum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Eðlilegt er að ríkið kaupi eyjuna Vigur á Ísafjarðardjúpi sem nú er til sölu. Þetta segir Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Fram- sóknarflokks í Norðvestur- kjördæmi. Fjöldi jarða á Íslandi hefur að undanförnu verið seldur til erlendra fjárfesta, sem er áhyggjuefni og er þróun sem þarf að bregðast við. Á það ekki síst við um náttúruperlur, staði sem eiga sér merka sögu, eru vinsælir með- al ferðamanna og svo framvegis. „Mér finnast öll rök hníga að því að ríkið kaupi Vigur. Þess eru mörg dæmi að ríki eða eftir atvik- um sveitarfélög stígi inn í mál og kaupi eignir eða geri ráðstafanir þegar samfélags- legir hagsmunir krefjast,“ sagði Halla Signý í samtali við Morgunblaðið. Fyrst vakti þingmaðurinn at- hygli á hugsanlegum kaupum rík- isins á Facebook-síðu sinni og hef- ur svo talað fyrir málinu fólks á meðal að undanförnu. Hún segir að hugmyndin hafi fengið almennt já- kvæðar undirtektir. Lengra sé þetta þó ekki komið, enda þurfi svona mál alltaf nokkurn gerj- unartíma. Heimsókn er ævintýri „Vigur er einstök náttúruperla. Þarna hefur sama fjölskyldan búið í langan tíma, fjórar kynslóðir, og hirt afar vel um staðinn. Heimsókn út í Vigur þangað sem eru reglu- legar siglingar yfir sumarið er æv- intýri, því þarna er einstakt fugla- líf og ferðaþjónusta sem núverandi ábúendur hafa byggt upp. Þarna koma allt að 10.000 manns á sumri hverju, en svo er spurning hversu aðgengileg eyjan verður þegar og ef nýir eigendur taka við,“ segir Halla Signý. „Vigur skiptir okkur Vestfirð- inga máli. Því væri eðlilegt að ís- lenska ríkið keypti eyjuna, tæki við keflinu og ræki þjónustu þar í þeirri mynd sem hún er í dag. Það væri verðug gjöf ríkisins til þjóð- arinnar á fullveldisárinu. Sagan er líka auðlind. “ Í Vigur eru tvær friðlýstar byggingar sem báðar tilheyra húsasafni Þjóðminjasafnsins. Önn- ur þeirra er svonefnt Viktoríuhús; timburhús í klassískum stíl, reist um 1860. Um svipað leyti var hin friðlýsta byggingin í eynni reist, sem er vindknúin kornmylla. Fyrirspurnir frá útlöndum Í dag búa í Vigur þau Salvar Baldursson og Hugrún Magn- úsdóttir kona hans, og starfrækja þar ferðaþjónsutuna, vitja um æð- arvarp og eru með sauðfé. Þau hyggjast nú bregða búi og flytja í land. Tveir eigendur eru að Vigur: Salvar og Ingunn Sturludóttir. Vigur er á skrá hjá Fasteigna- sölunni Borg í Reykjavík og segir Davíð Ólafsson fasteignasali marga vera áhugasama um kaup. „Margir hafa samband og frá útlöndum koma 3-4 fyrirspurnir í hverri viku, enda hafa ýmis erlend blöð sagt frá því að Vigur sé til sölu. Verð- miðinn á jörðinni er um 300 millj- ónir króna, lægra förum við ekki því þetta er einstakur staður og ævistarf heilu kynslóðanna liggur að baki. Þegar eyjan kom á skrá í sumar gáfum við okkur að salan gæti tekið allt að tvö ár, því þetta er flókið ferli og að mörgu að hyggja,“ segir Davíð. Ríkið kaupi Vigur í Djúpi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Byggð Húsin í Vigur hafa sterkt svipmót. Gula byggingin til vinstri, sem ára báturinn stendur framan við, er Viktoríuhús sem er frá 1860 og tilheyrir húsasafni Þjóðminjasafns Íslands.  Fari ekki til útlendinga, segir þing- maður  Mikill áhugi er á kaupum  Verðmiðinn 300 milljónir króna Halla Signý Kristjánsdóttir Flugsýn Vigur er fyrir mynni Skötufjarðar og Hestfjarðar og er um tveir kílómetrar að lengd. Mikið æðarvarp og lundabyggðir eru í eynni. Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.