Morgunblaðið - 13.09.2018, Síða 38
38 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018
Kanna á algengi sýklalyfjaþolinna
E.coli-baktería í gæludýrum sem
flutt eru til landsins. Rannsóknin
verður gerð á vegum Matvælastofn-
unar, MAST, og Tilraunastöðvar
Háskóla Íslands í meinafræði að
Keldum, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá MAST.
Um er að ræða E.coli-bakteríur
sem bera með sér gen sem hafa þann
eiginleika að mynda ónæmi gegn
mikilvægum sýklalyfjum. Bakteríur
sem bera þessi gen eru líklegri til að
vera fjölónæmar.
Er könnunin hluti af meistara-
verkefni við Dýralæknaháskólann í
Kaupmannahöfn þar sem verið er að
kanna algengi E.coli-myndandi
baktería í gæludýrum á Íslandi og
næmi þessara stofna fyrir öðrum
sýklalyfjum verður kannað. Í til-
kynningunni segir að sýklalyfja-
ónæmi sé ein stærsta ógn við lýð-
heilsu í dag.
Safnað var sýnum úr hundum og
köttum í samvinnu við dýralækna á
höfuðborgarsvæðinu og á Suður-
nesjum. Auk þess eru notuð saur-
sýni úr hundum og köttum sem nú
dvelja á einangrunarstöð vegna inn-
flutnings til landsins.Tekið er fram
að niðurstöður úr sýnum þeirra dýra
sem eru í einangrun hafa engin áhrif
á innflutningsleyfi þeirra.
Kanna al-
gengi E.coli
í gæludýrum
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Eðlilegt er að ríkið kaupi eyjuna
Vigur á Ísafjarðardjúpi sem nú er
til sölu. Þetta segir Halla Signý
Kristjánsdóttir, þingmaður Fram-
sóknarflokks í Norðvestur-
kjördæmi. Fjöldi jarða á Íslandi
hefur að undanförnu verið seldur
til erlendra fjárfesta, sem er
áhyggjuefni og er þróun sem þarf
að bregðast við. Á það ekki síst við
um náttúruperlur, staði sem eiga
sér merka sögu, eru vinsælir með-
al ferðamanna og svo framvegis.
„Mér finnast öll rök hníga að því
að ríkið kaupi Vigur. Þess eru
mörg dæmi að ríki eða eftir atvik-
um sveitarfélög
stígi inn í mál og
kaupi eignir eða
geri ráðstafanir
þegar samfélags-
legir hagsmunir
krefjast,“ sagði
Halla Signý í
samtali við
Morgunblaðið.
Fyrst vakti
þingmaðurinn at-
hygli á hugsanlegum kaupum rík-
isins á Facebook-síðu sinni og hef-
ur svo talað fyrir málinu fólks á
meðal að undanförnu. Hún segir að
hugmyndin hafi fengið almennt já-
kvæðar undirtektir. Lengra sé
þetta þó ekki komið, enda þurfi
svona mál alltaf nokkurn gerj-
unartíma.
Heimsókn er ævintýri
„Vigur er einstök náttúruperla.
Þarna hefur sama fjölskyldan búið
í langan tíma, fjórar kynslóðir, og
hirt afar vel um staðinn. Heimsókn
út í Vigur þangað sem eru reglu-
legar siglingar yfir sumarið er æv-
intýri, því þarna er einstakt fugla-
líf og ferðaþjónusta sem núverandi
ábúendur hafa byggt upp. Þarna
koma allt að 10.000 manns á sumri
hverju, en svo er spurning hversu
aðgengileg eyjan verður þegar og
ef nýir eigendur taka við,“ segir
Halla Signý.
„Vigur skiptir okkur Vestfirð-
inga máli. Því væri eðlilegt að ís-
lenska ríkið keypti eyjuna, tæki við
keflinu og ræki þjónustu þar í
þeirri mynd sem hún er í dag. Það
væri verðug gjöf ríkisins til þjóð-
arinnar á fullveldisárinu. Sagan er
líka auðlind. “
Í Vigur eru tvær friðlýstar
byggingar sem báðar tilheyra
húsasafni Þjóðminjasafnsins. Önn-
ur þeirra er svonefnt Viktoríuhús;
timburhús í klassískum stíl, reist
um 1860. Um svipað leyti var hin
friðlýsta byggingin í eynni reist,
sem er vindknúin kornmylla.
Fyrirspurnir frá útlöndum
Í dag búa í Vigur þau Salvar
Baldursson og Hugrún Magn-
úsdóttir kona hans, og starfrækja
þar ferðaþjónsutuna, vitja um æð-
arvarp og eru með sauðfé. Þau
hyggjast nú bregða búi og flytja í
land. Tveir eigendur eru að Vigur:
Salvar og Ingunn Sturludóttir.
Vigur er á skrá hjá Fasteigna-
sölunni Borg í Reykjavík og segir
Davíð Ólafsson fasteignasali marga
vera áhugasama um kaup. „Margir
hafa samband og frá útlöndum
koma 3-4 fyrirspurnir í hverri viku,
enda hafa ýmis erlend blöð sagt
frá því að Vigur sé til sölu. Verð-
miðinn á jörðinni er um 300 millj-
ónir króna, lægra förum við ekki
því þetta er einstakur staður og
ævistarf heilu kynslóðanna liggur
að baki. Þegar eyjan kom á skrá í
sumar gáfum við okkur að salan
gæti tekið allt að tvö ár, því þetta
er flókið ferli og að mörgu að
hyggja,“ segir Davíð.
Ríkið kaupi
Vigur í Djúpi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Byggð Húsin í Vigur hafa sterkt svipmót. Gula byggingin til vinstri, sem ára báturinn stendur framan við, er Viktoríuhús sem er frá 1860 og tilheyrir húsasafni Þjóðminjasafns Íslands.
Fari ekki til útlendinga, segir þing-
maður Mikill áhugi er á kaupum
Verðmiðinn 300 milljónir króna
Halla Signý
Kristjánsdóttir
Flugsýn Vigur er fyrir mynni Skötufjarðar og Hestfjarðar og er um tveir
kílómetrar að lengd. Mikið æðarvarp og lundabyggðir eru í eynni.
Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum