Morgunblaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018 frumukrabbameinsæxli var í ristli Hjartar. Íris segir að í kjölfarið hafi læknar Hjartar á Landspítalanum sent aðstoðarbeiðni til kollega sinna í Bandaríkjunum og á Norðurlönd- unum þar sem þeir báðu um krabbameinslyf sem ekki voru til hér. Um væri að ræða afar óvenju- legar aðstæður; að barn hefði greinst með krabbamein meðan á krabbameinsmeðferð stóð. Sænskir læknar svöruðu kallinu og Hjörtur hóf lyfjameðferð með talsvert sterkari og virkari lyfjum en hann hafði fengið áður. „Hann fór á einn kúr, síðan í röntgen og þá sáu læknarnir að þetta stóra æxli, sem áður var á stærð við golfkúlu, hafði minnkað niður í 3 mm,“ segir Íris. Ákveðið var að hann færi aftur á sama lyfjakúr og í lok þess í já- eindaskannann í Kaupmannahöfn þar sem kanna átti hvort krabba- meinið væri að fullu farið úr líkama hans. Þetta var í lok júlí og eftir nokkurra daga bið fékk Íris góðar fréttir. „Ég fékk loks svör um að krabbameinið væri horfið. Það var mikil gleði, okkur leið ótrúlega vel og ég hef aldrei upplifað aðra eins hamingju,“ segir Íris. En sögunni lýkur ekki hér. Íris var fljótlega kölluð á fund lækna Hjartar sem lögðu til að til þess að minnka líkurnar á að hann fengi aftur krabbamein færi hann í beinmergsskipti og leysigeisla- meðferð á Karólínska sjúkrahúsinu í Svíþjóð. „Mér fannst eins og það væri endalaust lagt á barnið mitt. Ég spurði hvers vegna hann þyrfti að fara þar sem hann væri ekki lengur með krabba, en sænsku læknarnir sögðu að þetta væri al- gerlega nauðsynlegt.“ „Kom ekkert annað til greina“ Ekki reyndist mögulegt að taka strax við Hirti ytra og biðu þau því í þrjár vikur hér heima og á meðan var hann settur á þriðja kúrinn á lyfjunum frá Svíþjóð. Þau fóru síðan út 8. ágúst og hafa verið þar síðan. Öllum með- ferðum er nú lokið hjá Hirti og hafa þær gengið eins og í sögu. Hann er enn í einangrun á sjúkra- húsinu því ónæmiskerfi hans er af- ar viðkvæmt, en hugsanlega fær hann að fara til fjölskyldu sinnar innan tíðar og þarf síðan eftir það að fara í eftirlit þrisvar í viku fram til mánaðamótanna nóvember- desember. Að mörgu er að hyggja þegar heil barnafjölskylda fer utan til lengri eða skemmri dvalar en í þessu tilviki eru aðstæður líklega frábrugðnar því sem flestir þekkja. Það kom ekki annað til greina, að sögn Írisar, en að öll fjölskyldan færi út þar sem hún á fáa að og hefur lítið stuðningsnet, fyrir utan náinn vin sinn sem hefur verið með þeim úti og staðið með þeim eins og klettur. Þá hefur föðurafi barnanna stutt þau eftir föngum, en hefur ekki haft tök á að dvelja langdvölum með þeim í Svíþjóð. Hún segir að einn af læknum Hjartar hér á landi hafi ráðlagt sér að fara ekki út með hin börnin vegna þess að hún ætti erfitt verk- efni fyrir höndum og mikilvægt væri að hún gæti einbeitt sér að Hirti. Þegar Íris sagðist ekki eiga annarra kosta völ, enginn annar gæti séð um börnin, hafi læknirinn sagst ætla að kalla til félagsmála- yfirvöld ef hún gerði alvöru úr þessum fyrirætlunum sínum. Íris ráðfærði sig þá við lögfræðing og ekki varð úr því að félagsmála- yfirvöld hefðu afskipti af fjölskyld- unni. „Hvers vegna í ósköpunum hefði það átt að gerast?“ spyr Íris. „Ég er ein með forræði yfir börnunum mínum, auðvitað hefði ég þegið að- stoð ef mér hefði boðist hún, en ég á engan að sem hefði getað tekið þau að sér. Það hefði ekki komið til greina að þau færu í fóstur á ókunnug heimili á meðan ég væri úti með bróður þeirra. Við erum mjög náin og höfum stutt hvert annað í þessu verkefni.“ Gríðarlegt álag á börnin Systkini Hjartar eru bæði á grunnskólaaldri. Eldri bróðir hans, Garðar Máni, er 14 ára og yngri systir hans, Sigurrós Amalía, er sex ára. Íris fékk námsefni þeirra og námsáætlanir frá skólanum þeirra og þau reyna nú eftir föng- um að halda í við skólafélaga sína í náminu. „Ég er dauðhrædd um Hjört alla daga. En ég er líka dauðhrædd um hin börnin mín, að þessar aðstæður sem við erum í hafi varanleg áhrif á þau. Eldri strákurinn minn hefur alltaf verið mjög félagslyndur, en hann er far- inn að forðast að eiga samskipti, bæði við vini sína á netinu og aðra. Dóttir mín, sem hefur verið mjög hress og virk, er farin að gráta mikið. Þetta er gríðarlegt álag á þau líka,“ segir Íris. Miklar fjárhagsáhyggjur Þar sem systkini Hjartar eru með móður þeirra úti fengu þau ekki inni á sjúkrahóteli Karólínska sjúkrahússins og hafa í staðinn bú- ið á hóteli sem Sjúkratryggingar Íslands greiða. Íris fær sjúkra- dagpeninga frá SÍ en hún segir að í þeirri upphæð sé ekki tekið tillit til þess að hún hefur fyrir börnum að sjá. „Ég spurðist fyrir um hvort það væri hægt að gera ráð fyrir Þetta er sameiginlegt verkefni  Hjörtur Elías níu ára jafnar sig eftir beinmergsskipti í Svíþjóð  Öll fjölskyldan er með honum  Miklar fjárhagsáhyggjur þegar barn veikist  Ljúfur og jákvæður og sættir sig við aðstæður Ljósmyndir /Úr einkasafni Á sjúkrahúsi Hjörtur Elías í sjúkrarúmi sínu á stofu 4 á einangrunardeildinni á Karólínska sjúkrahúsinu í Svíþjóð. Fjölskylda Sigurrós Amalía, Íris, Garðar Máni og Hjörtur Elías neðst. „Við erum mjög náin og höfum stutt hvert annað í þessu verkefni,“ segir Íris. „Annan hvern dag förum við öll saman á sjúkrahúsið til Hjartar. Við förum snemma um morguninn, ég set hann í sturtu, gef honum lyfin og hjálpa honum að borða því hann hefur litla lyst. Dagurinn er fljótur að líða, það er alltaf eitthvað sem þarf að gera fyr- ir hann og líka veita honum fé- lagsskap. Það er svo ein- staklega gott samband á milli systkinanna þriggja, það að þau eru hérna úti hefur haft mjög góð áhrif á heilsu Hjart- ar. Ég veit ekki hvar hann væri staddur ef þau væru ekki hérna og sinntu honum svona vel,“ segir Íris. „Hina dagana aðstoða ég börnin við námið, við reynum að gera eitthvað saman og svo er ég í stanslausu síma- sambandi við Hjört. Ég er björgunarhringurinn fyrir okk- ur öll en við stöndum saman í þessu verkefni, við höfum ekki neitt val.“ Dagur í lífi fjölskyld- unnar ÞAU STANDA ÞÉTT SAMAN VIÐTAL Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Á stofu númer fjögur á einangrun- ardeild fyrir krabbameinssjúka á Karólínska sjúkrahúsinu í Hudd- inge í Svíþjóð, í útjaðri Stokkhólms, liggur Hjörtur Elías Ágústsson, níu ára gamall drengur úr Árbænum. Síðan í febrúar hefur hann farið í margar krefjandi meðferðir við krabbameini, bæði hér heima og er- lendis, sem nú sér vonandi fyrir endann á. Í íbúð á hóteli skammt frá dvelja móðir hans og tvö systkini, sem hafa lagt allt til hliðar til að styðja við Hjört. Það kom ekkert annað til greina, eða eins og móðir hans, Íris Jónsdóttir, kemst að orði: „Þetta er sameiginlegt verkefni. Við stöndum saman.“ Hjörtur hefur nýlokið geisla- meðferð og beinmergsskiptum í Svíþjóð og er nú í einangrun vegna þess að ónæmiskerfi hans er afar viðkvæmt eftir allar meðferðirnar. Vonir standa til að hann geti brátt farið á hótelið til fjölskyldu sinnar. Þar hafa þau búið síðan í byrjun ágústmánaðar, tvísýnt hefur verið um heilsufar Hjartar og Íris segir þau fá takmarkaðan stuðning frá Sjúkratryggingum. Ofan á óvissu og áhyggjur vegna heilsu Hjartar bætast verulegar fjárhagsáhyggjur og áhyggjur af velferð systkina hans tveggja, Garðars Mána og Sigurrósar Amalíu, sem bæði eru á grunnskólaaldri og þurftu að fara úr sínu daglega umhverfi vegna læknismeðferðar bróður síns. Hjörtur Elías var alltaf hraustur og hress, eða eins og móðir hans kemst að orði: „Þetta barn var aldrei lasið.“ Í lok janúar síðastlið- ins byrjaði hann að kasta upp og var með niðurgang. Þegar hann hafði verið veikur í fjóra daga fór Íris með hann á læknavaktina, en svörin sem hún fékk þar var að passa þyrfti upp á að hann fengi nægilegan vökva. Drengurinn var áfram veikur, Ír- isi hætt að lítast á blikuna og fékk tíma fyrir hann hjá barnalækni. „Við áttum að mæta klukkan átta um kvöldið, þá var vika síðan Hjörtur veiktist. En klukkan hálf- fjögur sama dag, nokkrum tímum áður en við áttum að mæta, byrjaði hann að æla blóði. Ég fór með hann á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins og þar var hann settur í alls konar rannsóknir. Fyrst var haldið að hann væri með botn- langakast og var settur í heild- arröntgenskoðun,“ rifjar Íris upp. Og þá hrundi heimurinn „Svo komu þrír læknar, sem ég vissi síðar að væru krabbameins- læknar, til mín þar sem ég beið eft- ir svörum. Einn þeirra sagði að við skyldum fara annað til að ræða saman. Ég fann strax á mér að þetta væri alvarlegt og bað læknana að segja mér stöðuna eins og hún væri, ekki tala í kringum hlutina. Er hann með krabbamein? Þetta fríska barn? spurði ég. Allir þrír kinkuðu kolli. Og þá hrundi heimurinn.“ Þetta var 6. febrúar síðastliðinn. Hjörtur hafði greinst með eitil- frumukrabbamein og fór umsvifa- laust í tvær lyfjameðferðir sem hann svaraði afar vel. Í þriðju með- ferðinni varð vart við mein í ristli sem talið var vera sýking. Um svip- að leyti var hann sendur í jáein- daskanna á Ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn þar sem ganga átti úr skugga um að hann væri laus við krabbameinið. Þetta var í maí og Íris og læknir hans voru með í för. Rannsóknin í jáeindaskannanum sýndi að fimm cm stórt eitil-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.