Morgunblaðið - 13.09.2018, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 13.09.2018, Qupperneq 45
45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018 Ævintýri á gönguför Göngustígurinn við Ægisíðu í Reykjavík býður upp á ýmsar vangaveltur og æfingar fyrir göngugarpa. Kristinn Magnússon Mér þóttu það mikil og góð tíðindi þegar Anna Björnsdóttir, taugalæknir og sérfræðingur í park- insonsjúkdómi og hreyf- iröskun, sneri heim aftur. Hér á landi eru sérfræð- ingar með sambærilega menntun teljandi á fingrum annarrar handar og land- læknir hefur metið stöðuna svo, að bið parkinson- sjúklinga eftir þjónustu sé óviðunandi, enda hafa margir orðið að bíða mánuðum saman. Þörfin fyrir sérfræðing með menntun Önnu var því brýn. Það sést glöggt á því að síðan Anna opnaði lækna- stofu sína í síðustu viku höfðu henni bor- ist yfir hundrað tilvísanir fyrir helgi og hefur eflaust fjölgað síðan. Flestir sjúk- linganna eru með parkinson eða grun um parkinson en á Íslandi eru á milli 700 og 800 einstaklingar með parkinson. Nú skyldu menn ætla að heilbrigð- isráðherra tæki því vel, að Anna Björns- dóttir kæmi til starfa hér heima. En það er síður en svo. Í Kastljósi í síðustu viku sagði ráðherra að það hjálpaði ekki park- insonsjúklingi á Þórshöfn þótt opnuð yrði ein stofa taugalæknis í Reykjavík! Ja, þvílíkt! Ég veit ekki hvort það á held- ur að kalla þetta aulafyndni eða út- úrsnúning nema hvort tveggja sé. Mér þykir rétt að tilfæra hér orð Önnu Björnsdóttur við þessum orðaleppum ráðherra: „Ég vísa því algjörlega á bug vegna þess að það gagnast öllum park- insonsjúklingum, alls staðar á landinu, að hafa aðgang að sérhæfðum taugalækni sem er sérfræðingur í þeirra sjúkdómi. Þeir eru nú þegar farnir að koma til mín á stofu, alls staðar að af landinu.“ Síðan heldur Anna áfram og segir, að ráðherra tali mikið um einhverja stefnu. En það komi sér og sjúklingum sín- um ekki við akkúrat núna, – „á meðan hún er að hugsa þessa stefnu eru hundruð sjúklinga að bíða eftir þjón- ustu.“ Í Morgunblaðinu á mánu- daginn lýsir heilbrigð- isráðherra þessari nýju stefnu sinni og gumar af því að hún vilji minnka greiðsluþátttöku sjúklinga almennt í þjóðfélaginu en beitir sér fyrir hinu gagnstæða í raun. Með því að loka fyrir nýliðun inn á rammasamning sér- fræðilækna við Sjúkratryggingar Ís- lands og neita Önnu Björnsdóttur um slíkan samning er hún að leggja nýjar álögur á þá sjúklinga, sem þangað leita. Og ofan í kaupið hugsar ráðherra sér að endurnýja ekki rammasamning Sjúkra- trygginga Íslands við sérfræðilækna, sem rennur út um áramótin. Sér- fræðilæknarnir eru þegar farnir að búa sig undir að starfa í þessu nýja rekstr- arumhverfi. Og hið sama hljóta sjúkling- arnir að gera. Stefna ráðherra liggur ljós fyrir: Það á að mismuna sjúklingum, láta einn borga meir en annan fyrir sömu þjónustuna! Við skulum vona að þetta verði ekki til þess að þeir sem minnst fjárráð hafa telji sig ekki hafa ráð á að leita læknis. Afstaða ráðherrans skýrist af því að hún sér það fyrir sér að öll heilbrigð- isþjónusta verði í höndum ríkisins. Það eru náttúrlega hugarórar og getur aldrei orðið, – er heldur ekki æskilegt og þekk- ist hvergi í nálægum löndum. Ég hef skilið ráðherra svo að hún telji ekki lagaskyldu að sjúklingar sitji við sama borð gagnvart Sjúkratryggingum Íslands og þess vegna hefur hún bætt við lakara borðinu! Og síðan kvartar hún yfir því að fjárveitingar til Sjúkratrygginga Íslands séu ónógar. Þetta er þörf ábend- ing og ekki ástæðulaus eins og enginn veit betur en hún. Ég hef ekki séð fjár- lagafrumvarpið fyrir næsta ár en sá grunur læðist að mér að í tillögum heilbrigðisráðherra sé gengið út frá því að sjúklingum verði mismunað sem felst í því að samningur sérfræðilækna við Sjúkratryggingar verði ekki endurnýj- aður. Ég bið fjárlaganefndarmenn að gaumgæfa þetta. Ég trúi því ekki að meirihluti alþingis vilji mismuna sjúk- lingum. Sigurður Björnsson, sérfræðingur í krabbameinslækningum, skrifaði athygl- isverða grein í Morgunblaðið fyrir nokkrum vikum um heilbrigðisþjónustu á Íslandi, – hver sé staðan og hvert stefni. Þessi orð hans festust mér í minni: „Ekki er unnt að hugsa þá hugsun til enda ef áfram á að hindra íslenzka lækna með sérfræðimenntun frá erlendum þekkingarsetrum í því að snúa heim og halda áfram að tryggja hér á landi heil- brigðisþjónustu í hæsta gæðaflokki.“ Nú er komið í ljós, að ótti þessa merka lækn- is er ekki að ástæðulausu. Eftir viðtök- urnar hér heima hefur Anna Björns- dóttir sagt: „Ef ég hefði vitað að þetta yrði staðan er mjög líklegt að ég hefði aldrei komið heim.“ Eftir Halldór Blöndal » Stefna ráðherra liggur ljós fyrir: Það á að mis- muna sjúklingum, láta einn borga meir en annan fyrir sömu þjónustuna! Halldór Blöndal Nú dámar mér ekki, heilbrigðisráðherra! Höfundur er fyrrverandi forseti Alþingis. „Ef íslenskan hverfur tapast þekking og við hættum að vera þjóð.“ Þessi orð frú Vigdísar Finnbogadóttur eru orð að sönnu og eiga erindi við okkar sam- félag. Það er óumdeilt að tungumálið okk- ar stendur frammi fyrir áskorunum úr ýmsum áttum. Það er veruleikinn sem við búum við og veruleikinn sem við þurfum að vinna með. Verkefni sem þetta er ekki spretthlaup heldur langhlaup sem krefst elju, staðfestu og góðrar samvinnu. Eflum íslenska bókaútgáfu Strax á upphafsdögum þingsins verður lagt fram frumvarp til laga um stuðn- ing við bókaútgáfu. Mark- miðin eru skýr; við ætlum að stuðla að blómlegri bókaút- gáfu á íslensku, auknum lestri og bættu læsi – ekki síst hjá börnum og ungmenn- um. Staðreyndirnar eru að læsi barna og ungmenna hef- ur hrakað og bóksala hefur dregist saman um 36% á síð- ustu tíu árum. Við það verður ekki unað hjá bókaþjóðinni sjálfri. Með samþykkt frumvarps- ins verður nýju stuðnings- kerfi fyrir íslenska bókaút- gáfu komið á fót sem felur í sér endurgreiðslu allt að 25% útgáfukostnaðar íslenskra bóka. Þetta þýðir að íslensk bókaútgáfa mun njóta um 400 milljóna króna stuðnings á komandi ári. Þessi leið er betur til þess fallin að efla út- gáfu bóka á íslensku en af- nám virðisaukaskatts og gengur raunar skrefinu lengra með beinum fram- lögum sem nýtast munu öll- um sem koma að útgáfu hér á landi. Þess utan munum við bæta við nýjum styrkjaflokki fyrir barna- og unglingabæk- ur en yngri kynslóðin hefur bent ötullega á að auka þurfi framboð af slíkum bókum. Þessar aðgerðir marka tíma- mót og er ég sannfærð um að þær skili sér í öflugri bókaút- gáfu og lægra verði á bókum. Jafnvægi á íslenskum fjölmiðlamarkaði Fjölmiðlar gegna mik- ilvægu hlutverki við miðlun upplýsinga og sem vett- vangur umræðu og skoð- anaskipta. Þeir spegla sögu okkar og styðja við og við- halda íslenskri tungu. Að því sögðu liggur fyrir að rekstr- arumhverfi einkarekinna fjöl- miðla hér á landi er erfitt, meðal annars vegna sam- keppni á innlendum og al- þjóðlegum auglýsingamark- aði og örrar tækniþróunar. Til þessa hafa einkareknir fjölmiðlar á Íslandi verið þeir einu á Norðurlöndunum sem ekki njóta opinbers stuðn- ings. Þessu munum við breyta og nú hafa verið kynntar að- gerðir í þá veru. Þessar að- gerðir snúa meðal annars að endurgreiðslu hluta ritstjórn- arkostnaðar rit- og ljós- vakamiðla, styrkjum vegna textunar og talsetningar, samræmingu skattlagningar á auglýsingum svo íslenskir fjölmiðlar standi jafnfætis erlendum net- miðlum og minni um- svifum Rík- isútvarpsins á auglýs- ingamarkaði. Við viljum öfl- ugt Ríkisútvarp í almannaeigu og eitt af meg- inmarkmiðum þess sam- kvæmt útvarpslögum er að stuðla að varðveislu íslensk- unnar. Við viljum ekki skerða þjónustuna en ég tel sann- gjarnt að við horfum til þess að jafna stöðuna á fjölmiðla- markaði. Við viljum skapa frjóan jarðveg fyrir fjölbreytta flóru fjölmiðla hér á landi. Fjöl- miðla sem miðla vönduðu fréttaefni á íslensku og efla þannig lýðræðislega umræðu. Þessar aðgerðir eru löngu tímabærar og til þess fallnar að bæta mjög rekstr- arumhverfi íslenskra fjöl- miðla, lesendum, áhorfendum og hlustendum til hagsbóta. Tunga og tækni fylgist að Til að tryggja að íslenska verði gjaldgeng í stafrænum heimi, rafrænum samskiptum og upplýsingavinnslu sem byggist á tölvu- og fjar- skiptatækni er nú unnið eftir verkáætluninni Máltækni fyrir íslensku 2018-2022. Í því felst að þróa og byggja upp tæknilega innviði sem nauð- synlegir eru til þess að brúa bil milli talmáls og búnaðar, s.s. talgreini, talgervil, þýð- ingarvél og málrýni/ leiðréttingarforrit. Verkáætl- unin er að fullu fjármögnuð í núverandi fjármálaáætlun, en áætlaður heildarkostnaður ríkisins við hana er 2,2 millj- arðar króna á tímabilinu. Íslenskan og framtíðin Nú í haust mun ég enn fremur leggja fram þings- ályktun er varðar íslenska tungu og hlutverk hennar sem opinbers máls hér á landi. Þar eru aðgerðir í 22 liðum sem snerta flest svið þjóðlífsins en helsta markmið þeirra er að íslenska verði áfram notuð á öllum sviðum samfélagsins. Meðal aðgerða þar eru að settar verði við- miðunarreglur um notkun ís- lensku og annarra tungumála í upplýsinga- og kynning- arefni og fjölþættar aðgerðir sem tengjast íslenskunni og menntakerfinu. Við ætlum að sækja fram og styrkja stöðu íslenskunnar til framtíðar. Það er viðeig- andi að það skref sé stigið nú á aldarafmæli fullveldisins. Saga þjóðar okkar verður áfram skrifuð, og hana ætlum við að skrifa á íslensku. Eflum íslenskt mál til framtíðar – heildstæð nálgun Eftir Lilju Dögg Alfreðsdóttur Lilja Dögg Alfreðsdóttir » Fjölmiðlar gegna mikil- vægu hlutverki við miðlun upplýsinga og sem vettvangur umræðu og skoð- anaskipta. Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.