Morgunblaðið - 13.09.2018, Síða 51

Morgunblaðið - 13.09.2018, Síða 51
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16 Haust 2018 Bonito ehf. • Praxis • Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími 568 2870 www.praxis.is •        • Síminn alltaf opinn TILBOÐS DAGAR á vinnufatnaði Fullt af skóm með 50-70% afslætti ...Þegar þú vilt þægindi STÓRÚTSALA á völdum vörum Buxur • Peysur • Úlpur • Skór 50% afsláttur 40% afsláttur 40% afsláttur Opið laugardaginn kl. 12-15 Barnabókahöfundurinn og fyrrverandi knatt- spyrnuhetjan Þorgrímur Þráinsson gefur hér les- endum Fjölskyldunnar fimm uppeldisráð. Hann hefur gefið út 31 barna- bók á sínum rithöfund- arferli og hefur hlotið Ís- lensku barnabókaverð- launin í tvígang, árið 1997 fyrir bókina Ertu Guð, afi? og árið 2010 fyrir bókina Margt býr í myrkrinu. Þá var hann útnefndur borgarlista- maður Reykjavíkurborg- ar árið 2013. spyrja: ,,Hvað ætlar þú að gera í því?“ Barnið tekur ákvörðun um næstu skref í stað þess að því sé skipað að færa sig inn í eldhús. 4Flest erum við í kapphlaupi viðtímann (lífsgæðakapphlaupið?) á meðan börnin sitja á hakanum eða þeim jafnvel stillt upp fyrir framan snjalltæki, iPad eða sjónvarp, sem er síður en svo snjallt þegar til lengri tíma er litið. Ég hefði viljað gefa mínum börnum meiri tíma, hlusta á þeirra þarfir og fylgja þeim í þeirra áhugamálum, á þeirra for- sendum. Við ættum að leggja snjall- tæki til hliðar í návist barnanna, vera 100% með þeim; lesa, leika, upplifa, gera eitthvað brjálæðislega skemmtilegt og óvænt annað slagið. 5 Það skiptir miklu máli að verafrábær fyrirmynd í öllu; borð- siðum, mataræði, háttalagi, orðavali, mannasiðum, samskiptum, hreyf- ingu. Foreldri sem heldur á bjór og sígarettu og segir barninu að hvort tveggja sé óhollt er með skýr skila- boð af því hegðunin er miklu áhrifa- meiri en orðin. Athafnir okkar hafa áhrif og það er mikilvægt að huga sérstaklega að litlu hlutunum dags daglega. Börnin fæðast sem fallegar og tærar sálir og við foreldrarnir höfum mest um það að segja hvern- ig þau spila úr þeim tækifærum sem bjóðast í lífinu. Við eigum að brýna fyrir þeim að flugdreki tekst ekki á loft í meðvindi heldur mótbyr. Hvað uppeldi varðar segist hann vera löngu hættur að ala börnin sín upp. „Enda eru þau 18, 22 og 26 ára, þroskaðir og flottir einstaklingar sem bera móður sinni fagurt vitni af því hún hefur verið mun ,,strangari“ en ég í uppeldismálum í gegnum tíð- ina. 1 Að mínu mati er þrennt mik-ilvægast á uppvaxtarárum barna, fyrir utan ást og umhyggju; læsi, kröftug hreyfing og hollt mataræði. Læsi er mikilvægasta lýðheilsumál Íslendinga um þessar mundir því læsi er undirstaða allrar menntunar, sjálfstæðis, sjálfs- öruggis og framfara. Ef ég ætti ung börn í dag, læsi ég fyrir þau alla daga, myndi hlýða á þau lesa, biðja þau að segja frá og skálda sjálf. Ég myndi hjálpa þeim að finna bækur sem tengdust áhugamálum þeirra og dreifa bókum um allt hús þannig að þau væru sífellt að grípa niður í þær. Ég myndi líma stórt blað á vegg (eða ísskápinn) og hvetja þau til að finna eitt nýtt orð á hverjum einasta degi. Og rýna í orðin með þeim, af því orð geta haft fjölbreytta merkingu, bæta málþroska, auka skilning. 2 Ég myndi hvetja börnin til sjálf-stæðis, bera ábyrgð, sýna frum- kvæði og finna lausnir. Frá ung- lingsaldri hafa krakkarnir mínir þvegið fötin sín sjálfir (þökk sé móð- urinni) og borið ábyrgð á herberg- inu. Nú er svo komið að sá elsti kaupir í matinn og eldar þannig að við gömlu erum nánast stikkfrí. Þau eru sjálfbjarga með daglegar þarfir sem auðveldar öllum lífið. Einhver sagði; ,,lítil börn – lítil vandamál, stór börn – stór vandamál.“ Það eru orð að sönnu! 3 Hver vill láta skamma sig? Eng-inn! Okkur hættir til að of- vernda börnin; ekki klifra, ekki hoppa, ekki fara of hratt – þú gætir meitt þig! Börn verða að fá að fikra sig áfram í lífinu með tilraunum og ,,áhættu“ hvort sem okkur líkar bet- ur eða verr. Leiðandi uppeldishættir skipta máli; að spyrja spurninga í stað þess að skamma. Barnið borðar í sófanum fyrir framan sjónvarpið sem er ekki leyfilegt. Í stað þess að skammast væri nær að spyrja: ,,Má borða þarna?“ Barnið svarar vænt- anlega ,,nei“. Og þá væri æskilegt að 5 UPPELDISRÁÐ Þorgríms Þráinssonar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.