Morgunblaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 59
DÆGRADVÖL 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018 TWIN LIGHT GARDÍNUM Betri birtustjórnun með Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 alnabaer.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er engin ástæða fyrir þig til þess að bera ábyrgð á öllum sem í kringum þig eru. Það getur verið dýrkeypt að blanda sér í ann- arra mál að ástæðulausu. 20. apríl - 20. maí  Naut Fólk laðast að þér og þú nýtur þess en gefðu þér tíma til að hugleiða hvort þú þurfir á því að halda. Vertu samt á verði. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það hefur ekkert upp á sig að vera stöðugt að harma það sem menn ekki hafa. Haltu fast við áform þín og láttu skoðanir ann- arra ekki hafa áhrif á þig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er alveg hægt að rökræða við fólk án þess að allt fari í hund og kött. Taktu þér pásu seinnipartinn og einbeittu þér að falleg- ustu draumsýn sem þú getur hugsað þér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Samræður við maka og nána vini eru erf- iðar núna, ekki síst ef umræðuefnið er pen- ingar. Dragðu lærdóm af reynslunni og festu þér hann í minni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er rosalega gaman þegar allt gengur manni í hag. Gættu þess að hafa þitt á hreinu svo þú verðir sigurvegari dagsins. Farðu út á meðal fólks og njóttu þess að vera til. 23. sept. - 22. okt.  Vog Leggðu þig allan fram og þú munt undr- ast hversu miklu þú kemur í verk með góðu móti. Kappsemi er smitandi og því munu allir í kringum þig vinna betur og af meiri áhuga. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Stundum er rétti tíminn til að gera ekkert, en það á ekki við núna. Trúðu því að þú getir fengið akkúrat það sem þú óskar þér, og heimurinn færir þér það. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert í ójafnvægi og veist ekki í hvorn fótinn þú átt að stíga. Reyndu að tryggja að þú getir átt stundir í einrúmi svo þú náir að hlaða batteríin á ný. 22. des. - 19. janúar Steingeit Flýttu þér hægt að kveða upp dóm um menn og málefni. Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú vilt skipuleggja alla hluti sem er í góðu lagi ef þú reynir um leið að vera sveigj- anlegur þegar það á við. Haltu þínu striki og láttu athugasemdir sem vind um eyru þjóta. 19. feb. - 20. mars Fiskar Gefðu þig að þeim sem eru sterkir á sviði sem þú ert veikur á og deildu niður verk- efnum. Ekki reyna að neyða ráðagerðum þín- um upp á aðra, leyfðu hlutunum að ráðast. Auðólfur Gunnarsson læknirsendi mér nokkrar vísur, sem orðið hafa til á ferðum um landið og hann kallar: „Vísur við veginn“: Á Eyvindarstaðaheiði. Hér er fögur fjallasýn, flárnar grænar prýða staðinn. Á mig kalla æ til sín óbyggð fjöllin jöklum hlaðin. Á Austurlandi. Á Austurlandi er oftast bjart, þótt aðrir regnið hljóti. Fjöllin bera fagurt skart forynja úr grjóti. Kvöld á Hólsfjöllum. Á Hólsfjöllum var himneskt kveld, við hjara norðurslóðar. Þá fjöllin bar við himineld aftansólar glóðar. Sumarkvöld að Árnesi á Snæ- fjallaströnd við Ísafjarðardjúp. Ort í minningu Sigvalda Kalda- lóns, læknis og bónda þar, sem far- ist hafði í flugslysi skömmu áður. Þar sem læknir töfratóna tældi fram af hörpustrengjum, úthafsselur, einn að lóna, yrkir ljóð sín horfnum drengjum. Minningar úr eyðidal. Fokið er í forna slóð. Fátt, sem minning vekur. Blettinn, þar sem bærinn stóð, berjalyngið þekur. Þar sem ég áður elti stóð úti um víðar grundir, er nú kulnuð aringlóð og allir bæir hrundir. Fór ég einn um fjöll og rana, fennti strax í mína slóð. Enginn veit, hver átti hana, þá einu vörðu, sem ég hlóð. Mér var vandi á höndum að botna þetta Vísnahorn en „Ljóð langför- uls“ eftir dr. Sturlu Friðriksson lágu á náttborðinu og eru ort á ferðalögum erlendis, – og af öðrum toga! Hér er Aþena: Þótt Aþena alvopnuð stykki í undirfötum úr blikki út úr höfði á Seifi þá hafði‘ ann ei leyfi að gera ‘enni svo marga Grikki. Og að lokum eftir Bjarna frá Gröf: Sífellt er mig sól að dreyma samt er þoka. Það er eins og eiga heima inní poka. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vísur við veginn „SVO AÐ ORÐRÓMURINN VAR RÉTTUR. ÞÚ ÆTLAR VIRKILEGA AÐ SETJA NIÐUR HÆLANA.“ „SEX KASSAR AF SMÁKÖKUM FYRIR ÞIG OG ENGAR REFJAR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera í sérstökum heimi út af fyrir ykkur. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann LÍSA OG ÉG ÆTLUM Í BÍÓ Á FÖSTUDAGINN ÞAÐ ER STELPUMYND OG MÉR ER ALVEG SAMA SVO ÞETTA ER ÁST HVERNIG ER AÐ VERA GIFT UNGUM OG MYNDARLEGUM LÆKNI? YNDISLEGT NEMA HVAÐ KVEN- SJÚKLINGAR- NIR DAÐRA VIÐ HANN… EN MAÐURINN MINN MYNDI ALDREI TEFLA HJÓNABANDINU Í HÆTTU… FAÐIR MINN ER AÐ BORGA NÁMSLÁNIN HANS! Víkverji hefur verið að hlusta ánýjustu plötu Bítilsins síunga, Paul McCartney. Verður Víkverji að játa að hann er mjög ánægður með hlustunina það sem af er, og er líklega búinn að „renna“ albúminu í gegn svona fjórum til fimm sinnum. Platan vex við hverja hlustun. x x x Einn af hápunktum plötunnar ereitt af síðustu lögunum, Despite Repeated Warnings, en Paul mun hafa samið það um Donald Trump og stefnu hans í loftslagsmálum. Lagið er um sjö mínútur að lengd og minnir nokkuð á fyrri „míní- sinfóníur“ Pauls eins og Uncle Al- bert/Admiral Halsey á Ram- plötunni. x x x Víkverji játar að hann veit ekkihvort að hann á að vorkenna eða öfunda Trump fyrir að hafa fengið ljúfmennið Paul McCartney til þess að semja svona reiðilegt lag um sig. Sjálfur hefði Víkverji nefni- lega ekkert á móti því ef einhver af Bítlunum hefði samið lag um hann. Hvort að tilefnið er öfundsvert er hins vegar allt annar handleggur. x x x Annars er það helst að frétta aðMcCartney er 76 ára en virðist ekkert ætla að láta á sjá. Hann er enn að gefa út góðar plötur og það selst upp á tónleika hans sem endranær. Víkverji óskar þess því hvað heitast að einhver athafna- maðurinn hérlendis vindi sér í það og fái kappann til þess að koma til landsins. Fyrst að Guns & Roses gátu slegið öll met á Laugardals- velli, hvað gæti McCartney sjálfur gert? x x x Því miður eru líkurnar hverfandiá því að Víkverji verði svipað hress á þessum aldri og Paul er. Víkverji veltir því einlægt fyrir sér hverju sætir, en eitt af því sem Paul og hann eiga ekki samleið um er kjötát. Víkverji mun allavegana hugsa sig tvisvar um næst þegar hann ákveður að fá sér einn stóran hamborgara með frönskum og öllu. vikverji@mbl.is Víkverji Á því munuð allir þekkja að þér eruð mínir lærisveinar ef þér berið elsku hver til annars. (Jóh: 13.35) Atvinna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.