Morgunblaðið - 17.09.2018, Blaðsíða 1
Útgerðarfyrirtæki í Vestmannaeyj-
um greiddu á síðasta fiskveiðiári,
sem lauk 1. september síðastliðinn,
vel yfir einn milljarð króna í veiði-
gjöld sem var nærri tvöföldun frá
árinu á undan. Það er íþyngjandi og
treysta verður að ríkisstjórn og Al-
þingi standi við gefin fyrirheit um
lækkun þessara gjalda, segir Íris
Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Eyjum.
Bent er á að viðsjár hafi verið á
síðustu misserum í sjávarútveginum
vegna sterks gengis íslensku krón-
unnar. Lægra verð en oft áður hafi
fengist fyrir af-
urðirnar. Svo
bætist veiðigjöld-
in við og þau séu
íþyngjandi.
„Þessir pening-
ar væru betur
komnir hér í Eyj-
um, þar sem þeir
urðu til, en í ríkis-
hítinni. Þennan
landsbyggðarskatt verður að
lækka,“ segir Íris sem telur mikil-
vægt að heimamenn séu jafnan í ráð-
andi stöðu þegar stjórnvöld taka
ákvarðanir um þeirra mál. Því sé til
verulegra bóta að þegar nýr Herj-
ólfur kemur á næstu misserum muni
Eyjamenn sjálfir geta haft hönd í
bagga með til dæmis tíðni ferða og
gjaldskrá ferjunnar. Það sé mikil-
vægt hagsmunamál fyrir byggðina,
rétt eins og heilbrigðisþjónustan.
Starfsemi á sjúkrahúsinu í Eyjum
hafi verið skert mikið á síðustu árum
og margvísleg starfsemi þar lögð af.
Því vill bæjarstjórinn að verði snúið
til baka. »6
Veiðigjöldin verða að lækka
Einn milljarður kr. í Eyjum Fyrirheit um lækkun standi
Íris Róbertsdóttir
M Á N U D A G U R 1 7. S E P T E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 218. tölublað 106. árgangur
ÞRÓUN HUGMYNDA
UM JESÚM KRIST
Í NÝRRI BÓK
FRUMSÝN-
INGAR
Í REYKJAVÍK
TÍU DAGA FERÐ
SMALA ÚR FLÓA
OG AF SKEIÐUM
LEIKHÚS 26, 27, 29 REYKJARÉTTIR 12SVERRIR JAKOBSSON 26
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Forsvarsmenn vinnuveitenda og
launþegahreyfingar hafa hist á
óformlegum fundum að undanförnu
og rætt kjarasamningana sem verða
lausir í lok þessa árs. Þetta staðfestir
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, í samtali við Morgun-
blaðið. Könnun VR á vilja fé-
lagsmanna um áherslur í
kjaraviðræðunum framundan leiðir í
ljós að þeir vilja áherslu á styttingu
vinnuvikunnar og launahækkanir
sem gagnast lágtekju- og millitekju-
hópum best.
„Ég hygg að yfirvinnu- og álags-
greiðslur séu eitt af þeim málum sem
við þurfum að greiða úr í komandi
kjaraviðræðum því þessar kjaravið-
ræður munu snúast um hvernig við
bætum lífskjör allra á Íslandi,“ segir
Halldór.
Hann leggur áherslu á að lífskjör
séu samsett úr mörgum öðrum þátt-
um en launahækkunum. Ísland sé nú
þegar með næststystu vinnuvikuna í
Evrópu.
„Við þurfum að byrja á þeim enda
að draga úr yfirvinnu og álags-
greiðslum og yfirvinnutímum þar
með. Þegar því er náð erum við kom-
in á góðan stað til þess að geta stytt
vinnuvikuna frekar. Millibilsástandið
og það sem við getum náð saman um
að mínu viti er að auka sveigjanleika
á vinnumarkaðnum. Við höfum séð
að sveigjanleiki hefur aukist á ís-
lenskum vinnumarkaði, t.d. í skrif-
stofuvinnu,“ segir Halldór og bætir
við að sveigjanleiki á vinnumarkaði
þyrfti að ná yfir allan vinnumarkað-
inn ef slíkt ætti að bæta lífskjör allra
landsmanna. Halldór segir að það
veki eftirtekt sína að 9 af hverjum 10
félagsmönnum VR hafi ekki tekið
þátt í könnun VR til undirbúnings
kjarakröfum í komandi samningum.
Undirbúa samninga
Forystumenn Samtaka atvinnulífsins og launþegahreyfingar eru byrjaðir að
ræða óformlega saman um kjarasamningana sem verða lausir um næstu áramót
MSamtalið hafið »4
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Eftir stöðugan uppgang á tónleika-
markaðnum hér á landi í mörg ár
virðist nú vera farið að kreppa að og
erfiðara er að selja upp á tónleika er-
lendra listamanna.
Tvær ástæður virðast vera fyrir
þróuninni. Annars vegar að tónleika-
markaðurinn sé fullmettaður því
hingað komi of margir erlendir lista-
menn sem ekki nái að trekkja nægi-
lega að. Hinsvegar að innlent tón-
leikahald hefur vaxið mjög að umfangi
og eru jólatónleikar dæmi um það.
„Þetta offramboð er farið að hafa
raunveruleg áhrif. Markaðurinn hef-
ur breyst frá því að vera seljenda-
markaður í kaupendamarkað. Það
sést vel á því að það er alltaf enda-
laust framboð á tónleikum og yfirleitt
er ekki uppselt. Og ef það er uppselt
þá er bætt við aukatónleikum,“ segir
Ísleifur B. Þórhallsson, fram-
kvæmdastjóri Senu Live.
Erfitt er að sjá annað en eitthvað
láti undan og færri erlendir listamenn
sæki Ísland heim á næsta ári. »16
Búist við
færri
sveitum
Morgunblaðið/Hari
Tónleikar Tveir liðsmenn Arcade
Fire í Laugardalshöll.
Offramboð á tón-
leikamarkaðnum
Haustið er byrjað að setja lit sinn á Þingvelli. Eftir einstaka frostnætur er
laufið á trjánum orðið skrautlegra, gult og rautt. Trén draga efni úr lauf-
þekjunni niður í rætur til að undirbúa vöxt næsta árs, áður en laufið fellur.
Ferðafólk sækir þjóðgarðinn heim allan ársins hring. Þeir sem eru með
ljósmyndavélar og síma á lofti eiga von á góðu á þessum árstíma, litirnir
skapa eftirminnilega stemningu.
Haustið byrjað að setja lit á Þingvelli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bjarni Bene-
diktsson, fjár-
mála- og efna-
hagsráðherra,
blandaði sér í um-
ræðu um lending-
argjöld íslenskra
flugfélaga með
stuttri færslu á
Twitter síðdegis
á laugardaginn.
„Fróðlegur gam-
all leiðari í samhengi málefna dags-
ins,“ skrifaði hann og lét fylgja með
tengil á leiðarasíðu Morgunblaðsins
frá 4. september 1980. Þar er að
finna hvatningu til stjórnvalda hér á
landi um að taka með sama hætti á
lendingargjöldum Flugleiða og
stjórnvöld í Lúxemborg höfðu þá
þegar gert er þau felldu þau niður.
Sama dag kom fram hér í blaðinu
að WOW air skuldaði Isavia um tvo
milljarða í lendingargjöld á Kefla-
víkurflugvelli. Skúli Mogensen, for-
stjóri WOW air, segir hins vegar að
félagið hafi aldrei skuldað Isavia
„yfir tvo milljarða“. Morgunblaðið
reyndi að ná sambandi við fjár-
málaráðherra til að fá skýringar á
orðum hans en án árangurs. Ráð-
herrann fer með eina hlutabréfið í
Isavia ohf. og tilnefnir alla stjórnar-
menn þess, fimm að tölu. »14
Fjármálaráðherra blandar sér í
umræður um lendingargjöld flugfélaga
Bjarni
Benediktsson