Morgunblaðið - 17.09.2018, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Deila Orka náttúrunnar er
dótturfyrirtæki Orkuveitunnar.
Vill kanna lögmæti uppsagnar
Hildur Björnsdóttir óskar eftir frekari gögnum vegna samskiptavanda fyrrv. framkvæmdastjóra ON
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og
stjórnarmaður í Orkuveitu Reykja-
víkur, hefur óskað eftir frekari upp-
lýsingum og gögnum vegna fram-
komu fyrrverandi
framkvæmdastjóra Orku náttúrunn-
ar, Bjarna Más Júlíussonar, gagn-
vart öðru starfsfólki. Bjarna Má var
sagt upp störfum sem framkvæmda-
stjóra á miðvikudag.
Orka náttúrunnar er dótturfyrir-
tæki Orkuveitunnar og annast fram-
leiðslu og sölu
rafmagns.
Að sögn Hildar
vill hún fá úr því
skorið hvort til-
efni sé til að end-
urskoða uppsögn
Áslaugar Thelmu
Einarsdóttur,
fyrrverandi for-
stöðumanns ein-
staklingsmarkað-
ar ON, í ljósi upplýsinga um
framkomu framkvæmdastjórans í
garð starfsmanna. „Ég vil til dæmis
fá úr því skorið hvort uppsögn Ás-
laugar Thelmu hafi verið lögmæt og
málefnaleg, eða hvort sú staða sem
komin er upp og framkoma Bjarna
Más gagnvart henni, sem olli upp-
sögn hans, varpi nýju ljósi á málið og
hvort tilefni sé til að endurskoða
uppsögnina,“ segir Hildur. Þá óskar
hún eftir að upplýst verði hvort
brugðist hafi verið samstundis við
kvörtunum undan samskiptavanda
Bjarna Más, eða hvort kvartað hafi
verið undan vandanum í lengri tíma.
„Vonandi mun stjórnin vinna með
okkur í því, og ekki ástæða til að ætla
annað,“ segir Hildur sem telur fulla
ástæðu til að velta við fleiri steinum
og sjá hvort ástæða sé til þess að
skoða frekar vinnustaðamenningu
Orkuveitu Reykjavíkur eða hvort
þetta sé bara vandamál sem tengist
einum einstaklingi. „Við þurfum að
kanna hvort það séu fleiri tilfelli eða
fleiri einstaklingar sem hafa lent í
einhverju sambærilegu,“ segir Hild-
ur en hún segir það hlutverk stjórn-
ar Orkuveitunnar að sinna eftirlits-
hlutverkinu og spyrja gagnrýninna
spurninga. Ekki náðist í Brynhildi
Davíðsdóttur, stjórnarformann
Orkuveitu Reykjavíkur, eða Bjarna
Bjarnason, forstjóra OR, við vinnslu
fréttarinnar.
Hildur
Björnsdóttir
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
595 1000
Ath
.a
ðv
er
ðg
etu
rb
re
yst
án
fyr
irv
ar Pragraa.
Clarion Congress Hotel
Frá kr.
64.995
27. september í 4 nætur
aaaa
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Veðurstofa Íslands hefur sent frá sér gula viðvörun
vegna veðurs þar sem búist er við hvassviðri með rign-
ingu eða snjókomu á miðvikudag og fimmtudag.
„Á miðvikudag gengur í norðan 15-23 m/s, hvassast
austast á landinu. Með norðanáttinni fylgir úrkoma
norðan- og austanlands, frá Vestfjörðum og austur á
Austfirði. Úrkoman verður á formi rigningar á láglendi,
en slydda eða snjókoma ofan 200-300 metra yfir sjáv-
armáli,“ segir m.a. í tilkynningunni. Þá geta vetr-
araðstæður skapast á vegum, sérstaklega á fjallvegum.
Á fimmtudag munu mörk rigningar og snjókomu svo
lækka vegna langvarandi norðanáttar.
„Vetraraðstæður geta því skapast á vegum með til-
heyrandi samgöngutruflunum. Hyggilegt gæti verið að
huga að skjóli fyrir búfénað,“ segir á vef Veðurstof-
unnar.
Teitur Arason, veðurfræðingur hjá Veðurstofunni,
segir í samtali við Morgunblaðið það ekki vera stórfrétt
að það snjói í september þó að það gerist ekki á hverju
ári. Hann segir það þó nokkuð óalgengt að það skelli á
með hríð svo snemma hausts.
Hann bendir einnig á að þótt hin gula viðvörun nái
yfir landið allt þýði það ekki að sama veðrið verði alls
staðar á landinu.
„Kerfið virkar þannig að langt fram í tímann eru við-
varanir ekki svæðaskiptar heldur er sett almenn lýsing
á því hvað komi til með að gerast og gulri viðvörun lýst
fyrir allt landið.
Úrkoman er aðallega bundin við Norðurland en vind-
urinn verður alls staðar.“
Snjókoma í kortunum
Gul viðvörun um landið Varað við samgöngutruflunum
Morgunblaðið/Eggert
Kápa Gul viðvörun hefur verið gefin út vegna veðurs.
Leikmenn Stjörnunnar úr Garðabæ fögnuðu Mjólkurbik-
arnum með viðeigandi hætti eftir að þeir unnu nágranna sína
í Kópavogsliðinu Breiðabliki í vítaspyrnukeppni eftir marka-
lausan framlengdan leik á Laugardalsvelli í fyrradag. Fögn-
uðurinn var enn meiri en ella vegna þess að þetta er fyrsti
bikarmeistaratitill karlaliðs félagsins. » Íþróttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mjólkurbikarnum fagnað