Morgunblaðið - 17.09.2018, Blaðsíða 23
við stjórn könnunnarjeppanna Spirit
og Opportunity sem lentu á yfirborði
Mars 2004; stjórn þróunar hugbún-
aðar til að stýra sólarorkusöfnurum
Alþjóðlegu geimstöðvarinnar, og
stjórn stórra verkefna til að þróa og
hagnýta gervigreind í geimferðum.
Ari Kristinn gekk til liðs við Há-
skólann í Reykjavík árið 2007, gegndi
fyrst stöðu forseta tölvunarfræði-
deildar en tók síðan við embætti rekt-
ors í byrjun árs 2010.
Ari Kristinn fékk fjölda verðlauna
og viðurkenninga fyrir störf hjá
NASA, s.s. NASA Ames Research
Center Honor Award, fyrir störf
tengd Deep Space One; NASA Ad-
ministrator’s Award, fyrir þróun hug-
búnaðar fyrir Marsferðir, og tvisvar
„Space Act Award“, annars vegar
fyrir vinnu við Marsferðir og hins
vegar Alþjóðlegu geimstöðina.
Þá hefur hann fengið ýmsar við-
urkenningar fyrir rannsóknir, s.s.
Hvatningarverðlaun Vísinda- og
tækniráðs, 2008, og verðlaun fyrir
áhrifamestu grein á hans undirsviði
gervigreindar, „Planning in Inter-
planetary Space: Theory and Prac-
tice“, sem birtist árið 2000.
Ari Kristinn hefur unnið mikið að
nýsköpun og frumkvöðlastarfi. Hann
er stjórnarformaður Videntifier Tec-
hnologies frá 2008 en fyrirtækið þró-
ar hugbúnað til að bera kennsl á
myndefni og seldi nýlega afnotaleyfi
til Facebook. Hann hefur setið í
stjórn Kara Connect frá 2016, í stjórn
Icelandic Startups (áður Klak og Inn-
ovit) frá 2009, stýrði samstarfsverk-
efni með MIT um eflingu umhverfis
nýsköpunar á Íslandi 2016-18 og hef-
ur setið í vísinda- og tækniráði frá
2009.
Ari Kristinn ferðast mikið, innan-
lands og utan, og í tengslum við
ferðalög hefur þróast hjá honum
áhugi á ljósmyndum: „Ég hef einnig
alltaf haft brennandi áhuga á flugi,
lærði að fljúga á Íslandi og síðan í
Bandaríkjunum, er að vísu ekki virk-
ur flugmaður í dag en fylgist vel með í
tækni og rekstri flugsins.“
Fjölskylda
Eiginkona Ara Kristins er Sarah
Julia Herrmann, f. 6.10. 1972, heima-
vinnandi. Foreldrar hennar eru hjón-
in Carl Herrmann og Christine Herr-
mann sem búa í Kaliforníu.
Synir Ara Kristins og Sarah Juliu
eru Jón Eiríkur Arason, f. 22.12.
2003, nemi í Hafnarfirði, og Leifur
Finnian Arason, f. 28.8. 2010, nemi í
Hafnarfirði
Systkini Ara Kristins: Þorsteinn
Gunnar Jónsson, f. 7.5. 1971, bóka-
safnsfræðingur áAkureyri; Stefán
Guðnason, f. 26.5. 1984, verk-
efnastjóri símenntunar á Akureyri;
Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 15.1.
1971, hjúkrunarfræðingur í Hafn-
arfirði; Ragnhildur Guðmundsdóttir,
f. 8.5. 1977, kaupmaður í Garðabæ, og
Þröstur Þór Guðmundsson, f. 5.5.
1980, lögmaður á Seltjarnarnesi.
Foreldrar Ara Kristins eru Jón
Kristinn Arason, f. 12.3. 1946,
prófessor emeritus, búsettur í
Hafnarfirði, og Jóna Lísa Þorsteins-
dóttir, f. 21.5. 1946, prestur á Akur-
eyri. Þau skildu. Kona Jóns er Sigrún
Kristinsdóttir en Jóna Lísa giftist
Vigni Friðþjófssyni sem lést 1997.
Úr frændgarði Ara Kristins Jónssonar
Ari Kristinn
Jónsson
Elísabet Sigríður Friðriksdóttir
húsfreyja og kennari á Siglufirði og Akureyri
Þorvaldur Sigurðsson
kaupmaður og bókhaldari
á Siglufirði og Akureyri
Soffía Þorvaldsdóttir
húsfr. og verslunarm. á Akureyri
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir
prestur á Akureyri
Þorsteinn Gunnar Williamsson
húsasmiður á Ólafsfirði og Akureyri
Jónína Lísbet Daníelsdóttir
húsfr. í Ólafsfirði
Jón Kristinsson b. og
listamaður í Lambey í Fljótshlíð
Gunnar Rafn Jónsson fv. yfirlæknir
Þórhildur Jónsdóttir grafískur hönnuður
Sveinn Arason fv. ríkisendurskoðandi
Þórhallur Arason fv. skrifstofustjóri
í fjármálaráðuneytinu
Anna Björg Aradóttir sviðsstjóri
hjá Landlæknisembættinu
Rósa
Williams-
dóttir
húsfreyja
í Rvík
Margrét
Gunnarsdóttir
hjúkrunarfr.
í Rvík
Daði Már
Kristófersson forseti
félagsvísindadeildar
Háskóla Íslands
Ágústa Kristófersdóttir
forstöðumaður
Hafnarborgar
William Þorsteinsson
útgerðarmaður og bátasmiður í Ólafsfirði
Kristinn Stefán
Þorsteinsson
deildarstj.KEA
á Akureyri
Gunnlaugur
Páll Kristinsson
fræðslufulltr. ,
fréttaritari RÚV
og ljósmyndari
á Akureyri
Kristín
Gunnlaugsdóttir
myndlistarmaður
Þorvaldur Þorsteinsson
listamaður og rithöfundur
Kristbjörg Sveinsdóttir
húsfr. á Vopnafirði, Djúpavogi og Húsavík
Þórhallur Sigtryggsson
kaupfélagsstjóri á
Djúpavogi og Húsavík
Þorbjörg Þórhallsdóttir
íþróttakennari og húsfr. á Djúpavík,
Húsavík, Patreksfirði og Rvík
Ari Kristinsson
lögfr. og sýslum.Barðstrendinga, á Húsavík og Patreksfirði
Guðbjörg Óladóttir
kaupm. og húsfreyja á Húsavík
Kristinn Jónsson
kaupmaður á Húsavík
Jón Kristinn Arason
prófessor Hafnarfirði
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2018
Íslenskt einangrunargler
í nýbygginguna, sumarbústaðinn
eða stofugluggann.
Fagleg ráðgjöf og öruggur afhendingartími.
Smiðjuvegi 2, Kópavogi – sími 4889000– samverk.is
95 ára
Björgvin Alexandersson
Guðný Ásgeirsdóttir
90 ára
Eiríkur Runólfsson
Lára Vilhelmsdóttir
Theódóra Steffensen
85 ára
Ása Guðmundsdóttir
Kristín Bjarnadóttir
Margrét Magnúsdóttir
Ragnhildur Einarsdóttir
80 ára
Bára Helgadóttir
Karl Reynir Guðfinnsson
Sigríður Adda
Ingvarsdóttir
Þorsteinn Rúnar Sörlason
75 ára
Guðjón Pálsson
Hubert W. Januszewski
Sif Aðalsteinsdóttir
Þorvaldur Ágústsson
70 ára
Bertha Ragnh. Langedal
Björgvin Halldórsson
Jóhann Þ. Bjarnason
Kristján Páll Þórhallsson
Manfreð Jóhannesson
Sigrún Sigurjóna Ívarsd.
Sigurður Þórarinsson
Trausti Gunnarsson
60 ára
Elín María Karlsdóttir
Kristinn Sigurður
Gylfason
Linda Elíasdóttir
Páll Sigurðsson
Rut Friðfinnsdóttir
Þór Þorláksson
50 ára
Ari Kristinn Jónsson
Ásgrímur K. Petersson
Brynja Scheving
Dagbjört Ósk Steindórsd.
Elín Rós Hansdóttir
Emma Heiðrún Birgisdóttir
Erla Elísabet Sigurðardóttir
Guðrún Pálína Haraldsd.
Jóhanna I. Grétarsdóttir
Kristín Kristófersdóttir
Penafrancia Íris Hauksson
Rosa M.G. Rodrigues
Sigita Volodkiene
Sigurbjörg Kristmundsd.
Þráinn Maríus Ingólfsson
40 ára
Alger Perez Capin
Arnþrúður Ingólfsdóttir
Elfa María Magnúsdóttir
Kristín Berta Guðnadóttir
Ólafur Gunnar Jónsson
Óli Ragnar Kolbeinsson
Reynir Freyr Bragason
Reynir Hrafn Stefánsson
Sigtryggur V. Herbertsson
Stefán Þór Sigurbjörnsson
Sylwester Adamczyk
30 ára
Andri Óttarsson
Angel Mariano Contel
Bjarki Garðarsson
Gauti Ásgeirsson
Hafdís Halldórsdóttir
Hjördís Olga Guðbrandsd.
Ingibjörg Sigurgeirsdóttir
Ingólfur Örn Hallgrímsson
Jana Maren Óskarsdóttir
Kristín María Kristinsdóttir
Kristlaug Elín Gunnlaugsd.
Lukasz Kostrzewski
Paulina Garcia Romero
Raivis Anspoks
Sinan Guzel
Sólrún Mary Gunnarsdóttir
Sveinn Þorleifsson
Til hamingju með daginn
30 ára Andri er Reykvík-
ingur, býr í Hlíðunum og
er læknir á bæklunar-
skurðdeildinni á Land-
spítalanum.
Maki: Ólöf Sigríður Magn-
úsdóttir, f. 1986, læknir á
röntgendeildinni.
Foreldrar: Óttar Víðir
Hallsteinsson, f. 1963,
vinnur hjá Marel, og
Helga Guðmundsdóttir, f.
1963, leikskólakennari.
Þau eru búsett í Fossvogi
í Reykjavík.
Andri
Óttarsson
30 ára Jana er frá Hvera-
gerði en býr í Reykjavík.
Hún er verslunarstjóri hjá
Feldi verkstæði.
Maki: Davíð Örn
Jóhannsson, f. 1981, tölv-
unarfræðingur hjá Ice-
landair.
Stjúpdóttir: Ástrós
Thelma, f. 2006.
Foreldrar: Óskar Snorra-
son, f. 1961, fv. sjómaður,
bús. á Spáni, og Olga
Bragadóttir, f. 1964, vinn-
ur hjá Grænum markaði.
Jana Maren
Óskarsdóttir
40 ára Reynir fæddist í
Íþöku í New York-ríki en ólst
upp í Rvík. Hann býr í Kópa-
vogi og er verkfr. og deild-
arstj. hjá Össuri.
Maki: Elva Rakel Jónsdóttir,
f. 1979, sviðsstjóri hjá Um-
hverfisstofnun.
Börn: Freydís Edda, f. 2005,
Heimir Snorri, f. 2009, og
Hlynur Kári, f. 2016.
Foreldrar: Bragi Líndal
Ólafssson, f. 1945, og Lilja
Eiríksdóttir, f. 1947, bús. í
Rvík.
Reynir Freyr
Bragason
Eiríkur Briem hefur varið doktors-
ritgerð sína í líf- og læknavísindum
við læknadeild Háskóla Íslands. Rit-
gerðin ber heitið: Hlutverk mic-
roRNA í formgerð brjóstkirtils og
bandvefjarumbreytingu þekjuvefjar.
(Functional role of microRNAs in
breast morphogenesis and epithelial
to mesenchymal transition).
Umsjónarkennari og leiðbeinandi
var Þórarinn Guðjónsson, prófessor
við læknadeild Háskóla Íslands, og
meðleiðbeinandi Magnús Karl Magn-
ússon, prófessor við sömu deild.
Andmælendur voru dr. James B. Lo-
rens, prófessor við háskólann í
Bergen, og dr. Zophonías Oddur
Jónsson, prófessor í sameinda-
erfðafræði við líf- og umhverfisvís-
indadeild Háskóla Íslands.
Brjóstakrabbamein á upptök í
þekjufrumum í endum greinóttra
kirtilganga. Í æxlisvexti nýta krabba-
meinsfrumur sér ferli sem kallast
bandvefjarumbreyting þekjuvefjar
(e. epithelial to mesenchymal transi-
tion, EMT) til að skríða í gegnum
bandvef í átt að sogæðum og/eða
háræðum sem þær nýta sér til mein-
varpamyndunar til annarra líffæra.
Aukinn skilningur
á ferlum sem
stýra greinóttri
formgerð og EMT
er mikilvægur þar
sem sú vitneskja
getur varpað ljósi
á fyrstu skref í
myndun brjósta-
krabbameina.
Í verkefninu var notast við
brjóstastofnfrumulínuna D492 sem
myndar kirtilganga og kirtilber í
þrívíðri frumurækt. Þegar D492 er
ræktuð í þrívíðri samrækt með
æðaþelsfrumum eykst geta hennar
til greinóttrar formmyndunar og
EMT. D492M-frumulínan er komin
frá D492 í gegnum EMT. Í dokt-
orsverkefninu var genatjáning-
armynstur D492 og D492M í mynd-
un greinóttrar formgerðar og EMT
rannsakað.
Sýnt var fram á mikinn mun í
tjáningu smásærra RNA-sameinda
(miRNA) milli D492 og D492M.
Genatjáning sem einkennir þekju-
vef er ríkjandi í D492 en genatj-
áning bandvefjar er ríkjandi í
D492M.
Eiríkur Briem
Eiríkur Briem fæddist í Reykjavík 11. apríl 1979. Eiríkur lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykjavík 1999, B.Sc.-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands
2002 og MS-prófi í líf- og matvælatækni frá Háskólanum í Lundi 2005. Eiríkur
er deildarstjóri erfða- og sameindalæknisfræðideildar á Landspítala. Eig-
inkona Eiríks er Hanna Kristín Briem Pétursdóttir og eiga þau fjögur börn, Ei-
rík Tuma Briem , Harald Nökkva Briem , Sigurgeir Axel Hönnuson og Álfdísi
Maju Hönnudóttur Briem .
Doktor