Morgunblaðið - 17.09.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2018
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk. | SÍMI 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
Handafl er traust
og fagleg
starfsmannaveita
með margra ára reynslu
á markaði þar sem við
þjónustum jafnt stór
sem smá fyrirtæki.
„Vel var tekið undir. Fólk er alltaf
tilbúið í það, einhverjir voru komn-
ir í glasið og það virkar hvetjandi,“
segir Skarphéðinn Einarsson, kór-
stjóri Karlakórs Bólstaðarhlíð-
arhrepps, sem var „ferða-
mannafjallkóngur“ við stóðsmölun
á Laxárdal og rekstri til Skrapa-
tunguréttar. Hann lýsir stemning-
unni þegar á þriðja hundrað hesta-
menn komu saman við afréttar-
girðinguna í Kirkjuskarði, áðu og
nestuðu sig í mat og drykk.
Mikil breyting hefur orðið á að-
stæðum þau ár sem ferðafólki hefur
verið boðið að taka þátt í rekstri
stóðsins af Laxárdal. Þar voru
mörg hundruð hross og fáir ferða-
menn fyrstu árin en núna eru að-
eins um 100 hross en vel á þriðja
hundrað ferðamenn. Þá er stóð-
réttadansleikur og fleira gert til að
skemmta gestum.
Smölunin gekk vel á laugardag
sem og réttastörfin í Skrapatungu-
rétt í gærmorgun. Skarphéðinn
segir ekki annað hægt þegar veðrið
sé jafngott og það var. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Halarófa Rekstrarfólkið er margfalt fleira en hrossin sem það er að reka af Laxárdal til réttar í Skrapatungu.
Vel tekið
undir í
söngnum
Skál Magnús Jósefsson í Steinnesi er með á glasi og býður félögum með sér.
Hestamaður Þormar Kristjánsson, smiður á Blönduósi, lætur sig ekki vanta.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Risarnir á dagvörumarkaði fara
ólíkar leiðir þegar þeir selja versl-
anir til að fullnægja skilyrðum sam-
keppnisyfirvalda fyrir samruna við
söluskála olíufélaganna. Hagar hafa
þegar samið um sölu sinna verslana
án þess að upplýst hafi verið hver
kaupandinn er en N1 er með sínar
rekstrareiningar og verslun Festar í
opnu söluferli.
Til að geta framkvæmt samruna
Haga og Olís þurfa Hagar að selja
Bónusverslanir við Hallveigarstíg,
Smiðjuveg og Faxafen og Olís að
selja fimm eldsneytisstöðvar og
dagvörusöluna í söluskálanum í
Stykkishólmi.
Fram kom í frétt Ríkisútvarpsins
að þegar hefðu verið undirritaðir
samningar um sölu þessara rekstr-
areininga og þeir bíða þess að Sam-
keppniseftirlitið meti hæfi kaup-
enda. Finnur Árnason, forstjóri
Haga, vildi í samtali við RÚV ekki
tjá sig um kaupendur en sagði að
vonir stæðu til þess að söluferli yrði
lokið um miðjan nóvember.
Fram kemur í sátt Haga/Olís við
Samkeppnisstofnun að tilgangurinn
með sölu rekstrarins sé að eyða
þeirri samkeppnisröskun sem leiðir
af samruna fyrirtækjanna. „Skulu
eignirnar aðeins seldar til aðila sem
er til þess fallinn og líklegur að
veita Högum og öðrum keppinaut-
um umtalsvert samkeppnislegt að-
hald,“ segir þar.
Ekki er um marga aðila að ræða
sem þetta orðalag gæti átt við, eink-
um N1 sem nú er að yfirtaka Festi
sem rekur Krónuna og fleiri versl-
anir og Samkaup sem reka sam-
nefndar verslanir, Nettó og fleiri
verslanir.
Eggert Þór Kristófersson, for-
stjóri N1, segir að fyrirtækið hafi
fengið þær skýringar þegar spurst
var fyrir um þessar eignir að þær
yrðu seldar í einum pakka og N1
gæti ekki keypt vegna bensínstöðv-
anna sem fylgja með í sölunni.
Skúli Skúlason, formaður stjórn-
ar Samkaupa, neitar því að Sam-
kaup hafi gert samkomulag um
kaupin á verslunum Bónuss og segir
að engar viðræður séu um það.
Meira afgerandi orðalag
Vegna samruna við Festi skuld-
batt N1 sig til að selja 5 sjálfs-
afgreiðslustöðvar sem það rekur
undir vörumerkinu Dælan og Festi
að selja rekstur verslunarinnar
Kjarvals á Hellu.
Sala þessara eigna er í opnu sölu-
ferli sem Landsbankinn annast.
Niðurstaða er ekki komin.
Í sátt N1 og samkeppnisyfirvalda
eru strangari skilyrði en í sátt
Haga. Þar kemur fram að N1 skuli
selja bensínstöðvarnar í einu lagi til
nýs og óháðs aðila á eldsneyt-
ismarkaði, fyrirtækis sem er til þess
fallið og líklegt til að „veita N1 og
öðrum keppinautum umtalsvert
samkeppnislegt aðhald“.
Skilyrðin fyrir sölu á Kjarvals-
versluninni eru að kaupandinn skuli
vera óháður N1 og til þess fallinn og
líklegur til að veita umtalsvert sam-
keppnislegt aðhald við sölu dagvara
á svæðinu.
Ljóst er að Hagar/Olís geta ekki
verið meðal kaupenda, vegna skil-
yrða samkeppnisyfirvalda. Sam-
kaup koma til greina sem kaup-
endur ásamt öðrum fyrirtækjum
sem ekki eru tengd hinum tveimur
stærstu.
Þriðja stóra sameiningin á dag-
vörumarkaði, kaup Samkaupa á 14
verslunum Basko verslana ehf., það
er að segja verslunum 10-11 og Ice-
land, er í ferli hjá samkeppnisyfir-
völdum.
Morgunblaðið/Golli
Skilyrði Selja þarf þrjár verslanir Bónuss til aðila sem líklegur er til að
veita Högum og öðrum kaupendum umtalsvert samkeppnislegt aðhald.
Ólíkar aðferðir
við sölu verslana
og bensínstöðva
Ekki sagt frá kaupanda Bónusbúða
Nokkrar umræður hafa verið um lokun Bónusversl-
unarinnar við Hallveigarstíg og hvað kemur í staðinn.
Dagur B. Eggertsson segist hafa upplýsingar um að
þar verði rekin önnur verslun, „í sambærilegum
rekstri“.
Eins og fram kemur hér til hliðar hefur verslunin
verið seld sem hluti af heildarpakka vegna samruna
Haga og Olís. Þar mun ekki vera um að ræða sölu á
húsnæðinu við Hallveigarstíg heldur framsal á leigu-
samningi. Ekki hefur verið upplýst hver kaupandinn
er. Dagur segist í Facebook-færslu hafa verið einn
þeirra sem ráku upp stór augu þegar upplýst var að Bónusbúðinni yrði
lokað. Hann segist hafa þær uppýsingar að verslunin verði rekin áfram
í óbreyttri mynd þar til nýr aðili taki við.
Áfram verður opin búð
HALLVEIGARSTÍGUR
Dagur B.
Eggertsson