Morgunblaðið - 17.09.2018, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2018
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
NÝ
R
Hyundai I10
Comfort Navi
7“snertiskjár og íslenkst leiðsögukerfi ofl.
Eigum til sjálf- og beinskipta. 100 % lán mögulegt.
5 ára ábyrgð, margir litir í boði. Verð frá kr. 1.790.000
562 1717
Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is
bilalif.is
Eigum mikið úrval af nýjum og nýlegum bílum á staðnum
Fyrirtækið 4th Planet logistics
vinnur nú að því að þróa leiðir til
að kortleggja og gera hella á
tunglinu og Mars byggilega í Stef-
ánshelli í Hallmundarhrauni, að
því er fram kemur í umfjöllun á
mbl.is.
Undanfarna viku hafa Michael
Chalmer Dunn, stjórnandi 4th
Planet logistics og Martin Gasser,
jarðfræðingur sem stýrir vett-
vangsrannsóknum fyrirtækisins
hér á landi, dvalið á vettvangi og
gert prófanir með drónum og fjar-
stýrðum könnunartækjum. Þá hef-
ur Dunn í áraraðir unnið við þróun
lífvænlegs umhverfis við erfiðar
aðstæður.
Margt mælir með hellum
Dunn segir ýmislegt mæla með
því að nota hella sem fyrstu híbýli
fólks í geimnum. Með því að vera
neðanjarðar fæst skjól fyrir geisl-
un og smærri lofsteinum en ekki
síst þá sé mikill kostur að þurfa
ekki að ferðast með burðarvirki
bygginga út í geim. Það muni um
að spara hvert kíló af búnaði og
farangri þegar kemur að ferðum
til að mynda til Mars og tunglsins.
Sífellt er að bætast við þekkingu
vísindamanna á hellakerfum á
tunglinu og Mars og möguleikinn á
að skapa vistarverur í uppblásnum
tjöldum í hellum þykir að sama
skapi sífellt vænlegri.
Fáir að skoða híbýli
Verkefnið er unnið í samstarfi
við landeigendur og á næstu árum
er markmiðið að fá erlendar stofn-
anir á borð við geimvísindastofnun
Evrópu, ESA, og geimvísinda-
stofnun Bandaríkjanna, NASA til
að koma að verkefninu ásamt öðr-
um erlendum fyrirtækjum í sama
geira
Mikil samkeppni er í því að þróa
geimflaugar og búnað tengdan
ferðalögum í geimnum. Hinsvegar
hafi færri beint sjónum sínum að
því hvernig eigi að bera sig að
þegar á áfangastað er komið, að
sögn Dunn.
Í myndskeiði á mbl.is er rætt
við þá Dunn og Gasser en þeir
voru á opnum fundi Stjörnufræði-
félags Seltjarnarness á laugardag-
inn. Þá verður Dunn einnig á
Explorers-hátíðinni sem haldin
verður á Húsavík 22. september.
Búseta í geimnum Við vettvangsathugun í Surtshelli.
Þróa geimhíbýli
í íslenskum helli
Kostur að þurfa ekki burðarvirki
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Tjón fyrirtækisins Kræsinga vegna
„nautabökumálsins“ er metið á um
200 milljónir króna. Matvælastofnun
neitar stöðugt að greiða framleiðand-
anum skaðabætur þrátt fyrir að fyrir-
tækið hafi fengið skaðabótaskyldu
stofnunarinnar viðurkennda fyrir
dómstólum og þrátt fyrir mat dóm-
kvaddra matsmanna á tjóninu.
Málið má rekja til þess að í febrúar
2013 lét Matvælastofnun (Mast)
rannsaka nokkrar vörur frá mismun-
andi framleiðendum með það fyrir
augum að athuga hvort hrossakjöti
hefði verið blandað í kjötið. Það var
gert í kjölfar umræðu í Evrópu um
sölu á kjöti sem hrossakjöti hafði ver-
ið blandað saman við. Rannsóknin
leiddi meðal annars í ljós að innihald í
tveimur afurðum frá Gæðakokkum í
Borgarnesi var
ekki í samræmi
við innihaldslýs-
ingu. Birti stofn-
unin tilkynningu
um niðurstöðurn-
ar á heimasíðu
sinni 27. febrúar
2013 þar sem
áhersla var lögð á
að ekkert kjöt hefði verið í „Nauta-
böku“ frá Gæðakokkum.
Hefur lagt allt undir
Fyrirtækið heitir nú Kræsingar.
Það var sýknað í máli sem leiddi af
kæru heilbrigðiseftirlits og vann síð-
an mál á hendur Mast til viðurkenn-
ingar bótaskyldu vegna þess tjóns
sem fyrirtækið varð fyrir.
Endurskoðunarfyrirtæki mat tjón
fyrirtækisins rúmar 100 milljónir en
Matvælastofnun neitaði að greiða eða
semja um greiðslu skaðabóta. Magn-
ús Nielsson, eigandi fyrirtækisins,
segir að hann hafi því orðið að fara
með innheimtumál fyrir dómstóla.
Dómkvaddur matsmaður mat tjónið
tvöfalt hærra, samkvæmt upplýsing-
um blaðsins. Enn neitar Mast að
greiða. Magnús segir að málið haldi
áfram og segist viðbúinn því að ríkið
haldi áfram að neita að greiða. Hægt
sé að fara fram á yfirmat sem honum
skilst að sé síðasta skrefið. „Þeir fara
alla leið í þeirri von að ég gefist upp.
Mér skilst á þeim sem til þekkja að
ríkið haldi áfram alla leið, í skjóli
valdsins, þótt það viti að það þurfi að
greiða að lokum,“ segir Magnús.
Hann segir að enginn bilbugur sé á
sér. Hann sé búinn að leggja allt sitt
að veði í þessu máli, fá aukalán út á
húsið til að standa undir kostnaði og
rekstri fyrirtækisins. Dýrt sé að
þurfa að standa í svona málarekstri.
Matvælastofnun neitar
að greiða skaðabætur
Tjón Kræsinga vegna „nautabökumálsins“ metið 200 millj.
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is