Morgunblaðið - 17.09.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2018
Renew
Nánari upplýsingar á www.geosilica.is
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is
Heilbrigt hár
Unnið úr 100% náttúrulegum
jarðhitakísil og kopar og sink
í hreinu íslensku vatni.
• dregur úr hárlosi
• styrkir hár og
minnkar hættu á
brotnum endum
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Úrval af lokuðum farangurskerrum
frá Ifor Williams
Sýningareintak á staðnum.
17. september 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 109.34 109.86 109.6
Sterlingspund 143.49 144.19 143.84
Kanadadalur 84.09 84.59 84.34
Dönsk króna 17.14 17.24 17.19
Norsk króna 13.291 13.369 13.33
Sænsk króna 12.142 12.214 12.178
Svissn. franki 113.32 113.96 113.64
Japanskt jen 0.9776 0.9834 0.9805
SDR 153.28 154.2 153.74
Evra 127.87 128.59 128.23
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 159.1828
Hrávöruverð
Gull 1206.2 ($/únsa)
Ál 2013.5 ($/tonn) LME
Hráolía 78.45 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Jamie Dimon, frá-
farandi bankastjóri
JPMorgan Chase,
sagðist á sunnudag
sjá eftir ummælum
sem hann lét falla í
síðustu viku þar sem
hann kvaðst vera
„klárari“ en Donald
Trump Bandaríkja-
forseti og fær um
að vinna hann í kosningu. Hafði viðmæl-
andi Dimons spurt hvort hann hygðist
bjóða sig fram til forseta þegar tíma
hans hjá JPMorgan lyki og svaraði Dimon
því neitandi, þó að hann kvæðist yfirleitt
tilbúinn í hvað sem væri.
Dimon skaut ekki bara á forsetann
heldur hrósaði honum líka og sagði að
lækkun skatta og einföldun regluverks-
ins hefði hjálpað bandaríska hagkerfinu.
Merkilegt nokk þá brást Trump til-
tölulega blíðlega við orðum Dimons og
sagði bankastjórann ekki vera nægilega
„gáfaðan“ til að vera forseti, en að hann
væri yndislegur að öðru leyti. ai@mbl.is
Dimon sér eftir að
hafa skotið á Trump
Jamie Dimon
STUTT
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Á morgun kl. 14 hyggst flugfélagið
WOW air senda frá sér tilkynningu
um niðurstöðu skuldabréfaútboðs.
Unnið hefur verið að fjármögnunar-
ferli félagsins síðustu vikur. Félagið
sendi frá sér tilkynningu á föstu-
daginn þess efnis að niðurstaða
fengist í útboðið þriðjudaginn 18.
september en að þá þegar hefði lág-
marksfjárhæðin, 50 milljónir doll-
ara, verið tryggð. Þótt eflaust sé
það tilviljun að stefni í niðurstöðu
fjármögnunarferlisins þá vekur það
athygli að Skúli Mogensen, for-
stjóri félagsins og eini eigandi þess,
fagnar á morgun fimmtugsafmæli
sínu.
Í fyrrnefndri tilkynningu var
ítrekað að félagið myndi ekki tjá sig
um ferlið fram á þriðjudag. Engu
að síður brugðust stjórnendur fé-
lagsins við í kjölfar þess að Morg-
unblaðið greindi frá því á forsíðu
sinni á laugardagsmorgun að WOW
air skuldaði ISAVIA ohf. um 2
milljarða króna vegna ógreiddra
lendingargjalda. Af þeirri upphæð
er um helmingurinn nú þegar gjald-
fallinn. Morgunblaðið gaf WOW air
tækifæri á föstudaginn til þess að
bregðast við fyrirhuguðum frétta-
flutningi, en án árangurs.
Viðbrögðin síðdegis á laugardag
komu beint frá Skúla Mogensen í
formi facebook-færslu. Þá sendi
upplýsingafulltrúi félagsins tölvu-
póst á fjölmiðla vegna málsins.
Í færslu Skúla, sem birt er í heild
sinni með þessari frétt, er fullyrt að
Morgunblaðið hafi flutt frétt af því
að WOW air skuldaði ISAVIA ohf.
yfir 2 milljarða króna. Í fréttinni
sagði hins vegar um þetta tiltekna
atriði: „Flugfélagið WOW air skuld-
ar Isavia ohf. um tvo milljarða
króna í lendingargjöld.“
Forstjóri Icelandair Group
blandar sér í umræðu um málið
Eftir að fréttir bárust af skulda-
stöðu WOW air gagnvart Isavia
leitaði mbl.is viðbragða Boga Nils
Bogasonar, forstjóra Icelandair
Group, við stöðunni. Fyrirtækið er
stærsti einstaki viðskiptavinur
Isavia á Keflavíkurflugvelli. Sagði
hann að rekstrartölur WOW air
sýndu að fyrirtækið væri að „selja
flugsæti langt undir kostnaðar-
verði,“ og að öllum mætti vera ljóst
að slíkur rekstur „væri ekki sjálf-
bær“.
Hann sagði auk þess að ef rétt
reyndist að Isavia hefði gerst lán-
veitandi WOW air vegna lending-
arkostnaðar, væri sú ákvörðun „ill-
skiljanleg“. Fullyrti Bogi Nils að
Icelandair skuldaði Isavia ekki
lendingargjöld í tengslum við starf-
semi sína.
Fjármálaráðherra blandar
sér einnig í umræðu um málið
Síðdegis á laugardag blandaði
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, sér í umræðu
um lendingargjöld flugfélaga.
Þannig tísti hann (á Twitter):
„Fróðlegur gamall leiðari í sam-
hengi málefna dagsins.“ Fylgdi svo
tengill á leiðarasíðu Morgunblaðs-
ins frá 4. september 1980. Þar er að
finna hvatningu til stjórnvalda hér
á landi um að taka með sama hætti
á lendingargjöldum Flugleiða og
stjórnvöld í Lúxemborg höfðu þá
þegar gert er þau felldu þau niður.
Í leiðaranum segir m.a.: „Það ætti
að vera sjálfgefið að íslenzk stjórn-
völd sýni ekki minni skilning á að-
steðjandi vanda Flugleiða en
stjórnvöld í Lúxemborg. Það á að
gera með því að auðvelda því fram-
taki, sem að baki býr Flugleiðum,
að kljást við aðsteðjandi vanda, en
ekki með því að ríkið leggi „dauða“
hönd á reksturinn.“ Morgunblaðið
leitaði viðbragða fjármálaráðherra
við tístinu en án árangurs. Ráð-
herrann fer með eina hlutabréfið í
Isavia ohf. og tilnefnir alla stjórn-
armenn þess, fimm að tölu.
Mikilvæg vika fram-
undan hjá WOW air
AFP
Flugrekstur Starfsmaður á Charles de Gaulle-flugvelli í París býr sig undir að tengja þjónustubifreið við TF-WOW
sem er ein stærsta vélin í íslenska flugflotanum, A330-300 breiðþota, smíðuð 2015 og tekur 345 farþega í sæti.
Fjármálaráðherra blandar sér í umræðu um félagið
● Reikna má með að Donald Trump
Bandaríkjaforseti muni innan skamms
tilkynna að hann hyggist hækka tolla
á 200 milljarða dala virði af kínversk-
um innflutningsvarningi. Reuters
greinir frá þessu og hefur eftir hátt-
settum embættismanni sem vill ekki
láta nafns síns getið.
Að sögn viðmælanda Reuters gæti
Trump tilkynnt um ákvörðun sína
strax á mánudag en Wall Street Jo-
urnal hefur eftir eigin heimildarfólki
að nýju tollarnir verði í kringum 10%
en ekki 25% eins og áður hafði verið
talið mögulegt.
Er þess vænst að tollar verði hækk-
aðir á allt frá raftækjum og rafrás-
arborðum, húsgögnum og bíldekkjum
yfir í barnabílstóla og sjávarafurðir.
ai@mbl.is
Trump gerir sig líklegan til að hækka tolla
Ég get ekki orða
bundist lengur
að sjá hvernig
sumir fjölmiðlar
keppast um að
tortryggja WOW
air og það sem
við höfum byggt
upp undanfarin
ár. Ég hreinlega
trúi ekki að nokkur blaðamaður
eða fjölmiðill sé svo skammsýnn
að vilja vísvitandi skemma fyrir
áframhaldandi uppbyggingu fé-
lagsins. Nýjasta „fréttin“ er að við
eigum að skulda Isavia yfir tvo
milljarða. Þessu er slegið upp með
stórri fyrirsögn í æsifréttastíl á
forsíðu Morgunblaðsins í dag og er
vitnað í nafnlausan heimildar-
mann. Við leggjum ekki í vana að
tjá okkur um einstaka birgja eða
þjónustusamninga en þetta er ein-
faldlega rangt. Við eigum mjög
gott samstarf við Isavia og höfum
aldrei skuldað þeim yfir tvo millj-
arða króna og það er til skammar
að Morgunblaðið sé að slá upp
slíkum fyrirsögnum án áreið-
anlegra heimilda.
Svo í ofanálag kemur tímabund-
inn forstjóri Icelandair og fer að
kvarta yfir mismunun og að við
séum að selja flugmiða of lágu
verði (þá vitum við hver staðan
væri ef WOW hefði ekki komið til
sögunnar!) Við getum og munum
halda áfram að selja flugmiða á
frábæru verði einfaldlega af því að
við erum með mun lægri rekstr-
arkostnað en Icelandair. Afkoma
WOW air á þriðja ársfjórðungi
verður góð og útlit fyrir að seinni
hluti ársins verði einnig góður.
Það hefur ekkert félag í Íslands-
sögunni fengið jafn mikla ríkisað-
stoð og verið bjargað jafn oft af
ríkinu eins og Icelandair. Jafn-
framt er ríkisbankinn Íslandsbanki
stærsti lánveitandi félagsins.
Ég hlakka til að klára útboðið
okkar á þriðjudaginn og fá frið til
að halda áfram að byggja upp
WOW air með okkar frábæra
teymi, öllum til hagsbóta.
Takk.
Skuldi ekki yfir tvo milljarða
VIÐBRÖGÐ SKÚLA VIÐ FRÉTT MORGUNBLAÐSINS
Skúli Mogensen