Morgunblaðið - 17.09.2018, Side 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2018
Nýr stór
humar
Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00
Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Glæný lúða
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði
fyrir þig til að taka með heim
Ný línuýsa
Klaustur-
bleikja
Kristín Berta Guðnadóttir, félagsráðgjafi og fjölskyldufræð-ingur, á 40 ára afmæli í dag. Hún er sérfræðingur hjá Barna-húsi og vinnur þar við áfallameðferð barna og unglinga.
„Við tökum inn börn frá þriggja og hálfs árs aldri til átján ára sem
hafa greint frá ofbeldi sem þau hafa orðið fyrir. Þá fá þau viðtöl og
meðferð hjá okkur. Á
hverju ári koma um og yf-
ir 300 börn í Barnahús.
Árið 2017 voru 310 börn
sem fengu þjónustu okkar
og þar af 134 sem greindu
frá ofbeldi og fengu
greiningu og meðferð.“
Barnahús varð nýverið 20
ára.
Kristín er einnig jóga-
kennari og er í fram-
haldsnámi í jógakenn-
arafræðum. Enn fremur
er hún kennari í list-
sköpun með ásetningi (in-
tentional creativity) og er
með heimasíðuna salar-
list.is og Facebook-síðu til
að halda utan um starf
sitt utan Barnahúss. „Ég
elska að kenna landanum
að nota listsköpun sér til
ánægju og yndisauka.
Það geta allir skapað og
það er frábær leið til að
finna ró. Ég blanda þessu síðan öllu saman í minni vinnu innan
Barnahúss og utan. Jóga og sköpunarkrafturinn eru frábær verkfæri
í meðferð.“
Í frístundum sínum sinnir Kristín fjölskyldunni, fer út að ganga
með hundinn sinn úti í náttúrunni og málar. „Ég nota mest akrýl og
vatnsliti og mála algjörlega fyrir sjálfa mig.“
Eiginmaður Kristínar er Hörður Sveinsson húsasmiður og rekur
hann eigið fyrirtæki, Smiðshöggið, ásamt félaga sínum. Börn þeirra
eru Leonharð, f. 1996, stjúpsonur Kristínar, Lilja Berglind, f. 2003 og
Patrekur f. 2008. Einnig býr hjá þeim Kjartan Helgi, f. 2000, systur-
sonur Kristínar, en móðir hans er látin.
„Það eru mörg stórafmæli í fjölskyldunni þetta árið, móðir mín
verður sjötug í október og við erum að undirbúa það. Ég hugsa að ég
slaki bara á og borði góðan mat í faðmi fjölskyldunnar í dag. Það er
um að gera að halda upp á afmæli, það er gjöf að fá að eldast.“
Fjölhæf Kristín Berta Guðnadóttir.
Kennir listsköpun
með ásetningi
Kristín Berta Guðnadóttir er fertug í dag
A
ri Kristinn Jónsson
fæddist á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akur-
eyri 17.9. 1968: „Það
varð stuttur stans fyrir
norðan því ég flutti nokkurra vikna til
Þýskalands með foreldrum mínum
þar sem faðir minn stundaði dokt-
orsnám í stærðfræði. Við bjuggum
fyrst í Göttingen og síðar í Mainz en
komum aftur heim 1973, er ég var
fimm ára. Þá var sest að í Vest-
urbænum í Reykjavík.“
Ari Kristinn gekk í Melaskóla og
Hagaskóla: „Ég bar út blöð í hverfinu
en þegar hjólreiðum, fótbolta og öðr-
um leikjum sleppti voru reglulegar
heimsóknir til ömmu Obbu í Skeið-
arvoginum og til afa og ömmu á Ak-
ureyri fastur hluti tilverunnar.“
Ari Kristinn útskrifaðist úr MR
sem semi-dux árið 1987, á þremur ár-
um, og fékk því tækifæri til að stunda
nám í eitt ár við UCLA-háskólann í
Los Angeles. Hann lærði tölv-
unarfræði og stærðfræði í háskóla,
fyrst í UCLA og síðan við HÍ, útskrif-
aðist með BS-próf í stærðfræði 1990
og BS-próf í tölvunarfræði 1991, en
vann jafnframt hjá Raunvísinda-
stofnun og var eitt sumar fram-
kvæmdastjóri tölvusýningar tölv-
unarfræðinema, „Tölvur á tækniöld“,
sem haldin var í ókláraðri Þjóðar-
bókhlöðunni. Þá kenndi hann eitt ár í
MR í hálfri stöðu.
Ari Kristinn fór í doktorsnám í
tölvunarfræði við Stanford-háskóla
1991 og lauk því árið 1997. Hann lagði
áherslu á gervigreind í doktorsnám-
inu og vann samhliða námi á rann-
sóknarstofu í gervigreind, auk þess
að vera í eitt ár í hlutastarfi hjá Rock-
well sem þá var hluti af Boeing.
Ari Kristinn var ráðinn til NASA,
Geimferðastofnunar Bandaríkjanna,
strax að loknu doktorsnámi. Hann
var staðsettur í rannsóknamiðstöð-
inni Ames Research Center en vann
mikið með Jet Propulsion Laboratory
í Pasadena og Johnson Space Center
í Houston. Meðal verkefna hans hjá
NASA voru: þróun gervigreind-
artækni til ákvarðanatöku; þróun
gervigreindarhugbúnaðar fyrir til-
raunafarið Deep Space One; stjórn
þróunar hugbúnaðar til að aðstoða
Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík – 50 ára
Í sólskinsskapi Fjölskyldan í gönguferð. Frá vinstri: Jón Eiríkur, Sarah Julia, Leifur Finnian og Ari Kristinn.
Í fremstu röð á spennandi
sviði vísinda og tækni
Ræða Ari Kristinn hefur verið rekt-
or Háskólans í Reykjavík frá 2010.
Vinirnir Karl, Jónas,
Bragi og Sigríður Dúna
smíðuðu nammivél úr
pappakössum og seldu
sælgæti til styrktar
Rauða krossinum. Söfn-
unin fór fram við Lang-
holtsskóla og söfnuðust
alls 5.098 kr. Á mynd-
inni eru Karl og Jónas.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is