Morgunblaðið - 17.09.2018, Blaðsíða 32
Í tilefni sýningarloka Undraveraldar
Kron by Kronkron býður Hönnunar-
safn Íslands gestum á dansiball
annað kvöld, þriðjudagskvöld, kl.
20. Þar leikur salsahljómsveitin
Mabolitos fyrir dansi, en sveitina
skipa Alexandra Kjeld söngkona á
kontrabassa, Daníel Helgason á gít-
ar, Kristofer Rodriguez Svönuson á
slagverk og Sigrún Kristbjörg Jóns-
dóttir á básúnu og fiðlu.
Gestir hvattir til að
skella sér í dansskóna
MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 260. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr.
Íslenska karlalandsliðið í körfu-
bolta mátti þola afar svekkjandi
80:77-tap fyrir Portúgal ytra í
fyrsta leik liðsins í forkeppni EM
2021. Ísland var með tveggja stiga
forskot þegar skammt var eftir, en
Portúgal reyndist aðeins sterkara á
lokakaflanum. Martin Her-
mannsson var stigahæstur í ís-
lenska liðinu með 20 stig. »1
Sárt þriggja stiga tap í
Portúgal í fyrsta leik
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Íslandsmeistarar Vals léku á als
oddi í 5:1-sigri sínum á ÍBV í 20.
umferð Pepsi-deildar karla í fót-
bolta í gærkvöldi. Eyjamenn skor-
uðu fyrsta markið en fjögur mörk
Vals á tíu mínútum í
síðari hálfleik sneru
leiknum algörlega
við. Patrick Ped-
ersen skoraði þrjú
þeirra og er hann
orðinn marka-
hæstur í
deildinni
með 16
mörk. Með
sigrinum náði Valur
fjögurra stiga for-
skoti á toppi deild-
arinnar, en Stjarnan á
leik til góða. » 4 og 5
Íslandsmeistararnir
skoruðu fimm mörk
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Elinóra ritstýra auglýsti eftir þátt-
takendum á Twitter og við stukkum
allar til. Þannig varð þessi hópur til
og hann er sístækkandi,“ segir Ey-
dís Blöndal, einn aðstandenda Flóru,
nýs femínísks veftímarits sem hóf
göngu sína í síðustu viku.
Vilja meiri fjölbreytni
Flóra er óháð femínískt veftímarit
sem stofnað var í sumar. Fyrsta út-
gáfa Flóru samanstendur af níu
greinum og einum myndaþætti og
mun efnið birtast á vefsíðunni
www.flora-utgafa.is, ein til tvær
greinar á dag yfir vikutímabil. Á bak
við Flóru stendur flokkur kvenna
sem vilja vanda til verka í gerð fjöl-
miðlaefnis og kalla eftir meiri fjöl-
breytni í fjölmiðlum landsins, að því
er fram kemur í kynningu á útgáf-
unni. Konur framkvæma útgáfu vef-
ritsins, hanna það, forrita, mynd-
skreyta, skrifa og hugsa.
Hægt að gera miklu betur
„Þó að við séum að kalla eftir
auknu femínísku efni og bættu fjöl-
miðlaumhverfi er ekki þar með sagt
að við séum sjálfar yfir gagnrýni
hafnar. Ætlunarverk Flóru er þó
einfalt: Við viljum benda á að það er
hægt að gera svo miklu betur. Hætt-
um að gefa okkur að kynin hafi ólík-
an smekk, kyns síns vegna, og ger-
um fjölbreytt fjölmiðlaefni fyrir
alla,“ segir í kynningu.
Elinóra Guðmundsdóttir er rit-
stýra Flóru en auk hennar skipa rit-
stjórnina þær Berglind Brá Jó-
hannsdóttir, Eva Sigurðardóttir,
Eydís Blöndal, Sóla (Ásta Sólhildur)
Þorsteinsdóttir og Steinunn Ólína
Hafliðadóttir. Þá leggja pistlahöf-
undar útgáfunni einnig lið.
Tókum málin í okkar hendur
Eydís segir í samtali við Morgun-
blaðið að mikilvægt sé að rödd
kvenna heyrist. „Hugmyndin var að
segja okkar sögu á okkar for-
sendum. Okkur hefur þótt vanta
rödd sem við getum samsamað okk-
ur við í fjölmiðlum þannig að við tók-
um málið í okkar hendur,“ segir hún.
Í hópnum eru konur á milli tvítugs
og þrítugs. „Það hefur svolítið borið
á því í fjölmiðlum að þar birtist
„kvennagreinar“ sem ýta undir hlut-
gervingu og því fögnum við ekki. Við
viljum fjalla um hlutverk okkar í
samfélaginu á okkar eigin for-
sendum.“
Sumar þeirra eiga börn og Eydís
segir að það móti skrifin. „Það er
mikilvægt að rödd mæðra heyrist
líka. Þær eiga það til að einangrast
inni á heimilinu og eru skildar út
undan í samfélagsumræðunni.“
Ljósmynd/Eva Sigurðardóttir
Ritstjórn Flóru Hópur kvenna á milli tvítugs og þrítugs skipar ritstjórnina. Eydís Blöndal er þriðja frá hægri.
Segjum okkar sögu á
okkar eigin forsendum
Flóra, nýtt og óháð femínískt veftímarit, hefur göngu sína
N o r ð u r - A t l a n t s h a f
G r æ n l
a n d
s h a
f
Norðurhe imskautsbaugur
Vopnafjörður
Þórshöfn
Egilsstaðir
GRÆNLA
Ilulis
Kulu
N
Narsars
GRÆNLAND
Nerlerit Inaat
FÆREYJAR
Tórshavn
.
Ke
Í S L A N D
kureyri
Grímsey
Ísafjörður
YKJAVÍK
ND
sat
suk
uuk
uaq
50 m
ín.
40
m
ín
.
Þegar upp er staðið hefur þú
meiri orku og rýmri tíma til að
gera það sem þig lystir.
airicelandconnect.is
Nýttu tímann
og fljúgðu á vit
ævintýranna
Innanlandsflug
frá 7.680 kr.
aðra leiðina