Morgunblaðið - 21.09.2018, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Uppskerustörfin standa nú sem hæst
hjá kartöflubændum landsins. Í
Þykkvabænum má sjá dráttarvélar
silast áfram með upptökuvélar í eft-
irdragi í fjölda kartöflugarða. Af vél-
inni hjá Óskari Kristinssyni og Sig-
rúnu Björk Leifsdóttur sem eru með
kartöflurækt kennda við Dísukot má
sjá nágrannabændur taka upp kart-
öflur í fimm görðum.
„Þetta er frekar dapurt. Vantar 30
til 35% upp á meðaluppskeru,“ segir
Óskar og það leynir sér ekki þegar
kartöflurnar renna eftir færibandi
upptökuvélarinnar og niður í stór-
sekkina. Lítið hefur verið undir sum-
um grasanna. Óskar segir að þetta ár
sé versta uppskeruárið frá 2009 en þá
frysti þegar vika var eftir af júlí og
allur vöxtur stöðvaðist.
Langir vinnudagar í törninni
Rigningarnar í vor fóru illa með
garðana, ekki síst úrfellið mikla um
kosningahelgina. Óskar segir að víða
séu dauðir blettir í görðunum, grösin
hafi hreinlega drukknað. Það sé þó
aðeins misjafnt á milli bæja og garða.
Bændur fóru að taka upp kartöflur
seinnipart sumars, til að koma fersk-
um afurðum á markaðinn. Flestir
byrjuðu ekki að taka upp kartöflur til
að setja í geymslur fyrr en 5. til 10.
september. Það er heldur seinna en
venjulega, að sögn Óskars, því menn
voru að bíða eftir sprettu, vona að
eitthvað rættist úr uppskerunni. Það
kom hins vegar frostnótt um mán-
aðamótin sem felldi grösin í mörgum
görðum en í öðrum voru aðeins
stönglar og stöku blöð eftir. Þar eru
kartöflurnar enn að vaxa eitthvað. En
ekki var til setunnar búið með að
hefja uppskerustörf af krafti.
Óskar ræktar kartöflur á 22 hekt-
urum og er það nálægt meðaltalinu í
Þykkvabæ. Þau eru þrjú við haust-
störfin sem taka um þrjár vikur. Dag-
arnir eru langir hjá Óskari í þessari
törn. Hann er mættur klukkan sjö á
morgnana og er ekki kominn heim
fyrr en upp úr klukkan níu á kvöldin.
Yfir veturinn þarf síðan að flokka
kartöflurnar og þvo, jafnóðum og
markaðurinn kallar. Óskar er einn í
því. Sigrún er í öðrum störfum.
Fyrir áhættufíkla
Óskar segir að þegar uppskeran er
í meðallagi sé þokkaleg afkoma af
kartöfluræktinni. Slök ár komi hins-
vegar við pyngjuna. Hann segist
verða á lélegum launum þegar líður á
veturinn og launalaus næsta sumar.
„Þetta er fínt fyrir áhættufíkla,“ segir
Sigrún.
Óskar selur sínar kartöflur til Sölu-
félags garðyrkjumanna og kartöflu-
verksmiðjunnar í Þykkvabæ. Hann
segir að kartöflurnar seljist alltaf upp
en verðið sé of lágt. „Kaupmaðurinn
segir hvað við þurfum að fá fyrir
kartöflurnar en ekki öfugt. Verðið til
framleiðenda hefur ekki hækkað í
þrjú ár.“
Þótt kartöflur séu hefðbundið með-
læti eru alltaf sveiflur í markaðnum.
Kolvetnakúrar koma og fara og svo
vilja neytendur fá kartöflurnar til-
búnar; bökunarkartöflur, sætar,
soðnar og franskar kartöflur. Ekki er
hægt að rækta sætar kartöflur hér en
unnt að vinna margar aðrar tegundir.
Bóndinn fær hinsvegar helmingi
lægra verð fyrir þær afurðir sem
seldar eru í vinnslu. Gullauga og
rauðar íslenskar eru enn vinsælustu
afbrigðin. Smælki af öllum tegundum
er einnig orðið vinsæl vara og mik-
ilvæg fyrir afkomuna. Það fer mikið
til veitingastaða. Óskar óttast hins-
vegar að vegna lélegrar sprettu í
sumar verði of mikið af smælki.
Uppskera Sigrún Björk Leifsdóttir og Óskar Kristinsson, kartöflubændur í Þykkvabæ, með hluta afraksturs dagsins.
Í garðinum Dráttarvél með yfirbyggða upptökuvél silast eftir garðinum.
Uppskeruvélar
silast áfram
Þriðjungi minna af kartöflum úr
Þykkvabænum en í meðalári
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Svalaðu ævintýraþránni
Reimaðu á þig gönguskóna og upplifðu stórbrotna náttúru. Smakkaðu sjávarrétti
í San Francisco og gæðakaffi í Seattle. Brunaðu eftir ströndinni með hlýjan
vindinn í hárinu og komdu við í Portland, sem er alltaf með puttann á púlsinum.
Aldrei hefur verið auðveldara að njóta lífsins á Vesturströnd Bandaríkjanna.
VESTURSTRÖND BANDARÍKJANNA
Verð aðra leið frá 33.900 kr.
Verð frá 52.200 Vildarpunktum