Morgunblaðið - 21.09.2018, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 21.09.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018 Til stendur að bæta hæð ofan á húsið nr. 73 við Hafnarstræti á Akureyri og reisa stigahús norðan núverandi byggingar. Hafa bæjaryfirvöld í tengslum við það kynnt breytingu á deiliskipulagi svæðisins, svokallaðs Drottningarbrautarreits. Frestur íbúa til að gera athugasemdir er til 24. október nk. Húsið er steinsteypt í klassískum stíl, byggt 1923 undir starfsemi Ak- ureyrarbíós af Hallgrími Kristjáns- syni og Ragnari Ólafssyni. Smjörlík- isverksmiðjan Akra var á jarðhæð. Húsið var um tíma samkomuhús frímúrara og síðar í eigu Karlakórs Akureyrar, Geysis, sem nefndi það Lón. Tónlistarskóli Akureyrar var stofnaður í húsinu 1946 og starfaði þar til 1972. Síðan var húsið nýtt sem félagsmiðstöð undir ýmsum nöfnum, lengst af sem Dynheimar. Leikfélag Akureyrar nýtti húsið undir leiksýn- ingar í nokkur ár undir nafninu Rýmið. Þar hefur síðustu árin verið rekið gistihús undir nafninu Hótel Akureyri Dynheimar. Hugmyndin með breytingunni er að stækka gisti- rýmið og uppfylla betur skilyrði um slíkan rekstur. Í húsakönnun á Drottningar- brautarreit frá 2012 segir að ein- kenni Hafnarstrætis 73 sé boga- dregnar umgjarðir um glugga annarrar hæðar sem ná frá hæðar- skilum og vel upp fyrir glugga. Framhlið er samhverf en glugga- setning á suðurgafli ekki. Glugga- umgjarðir þriggja glugga á miðri langhlið eru hærri en umgjarðir ann- arra glugga. Hæðarskilalisti er steyptur með kúptu formi eins og gluggaumgjarðir. Neyðarútgangur, opinn stálstigi, er frá 2. hæð mót brekkunni að aftanverðu. Húsið er sagt varðveisluvert sem mikilvægur hluti húsaraðar og götumyndar. Bæjaryfirvöld hafa haft samráð við Minjastofnun Íslands um breyt- ingarnar eins og skylt er varðandi öll hús sem byggð eru fyrir 1925. Hefur stofnunin samþykkt þær breytingar sem lagt er til að gerðar verði. Fram kemur í deiliskipulagsaug- lýsingunni að húsið er innan afmark- aðs hættusvæðis vegna ofanflóða. Beri að taka mið af því við hönnun og styrkingu bygginga auk þess sem viðhalda ber trjágróðri í brekkunni ofan húsanna. gudmundur@mbl.is Hæð bætt ofan á Hafnarstræti 73  Steinsteypuklassík í miðbæ Akureyrar  Var byggt fyrir Akureyrarbíó og smjörlíkisgerð árið 1923  Húsið stækkað til að rýma betur hótelrekstur Ljósmynd/Þórhallur Jónsson Hafnarstræti 73 Áberandi hús í miðbæ Akureyrar. Margvísleg starfsemi frá 1923. Nú verður þarna hótel. Ljósmynd/Af vef Akureyrarbæjar Breyting Teikning sem sýnir framhlið hússins eftir að hæð er bætt ofan á. Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, og Andr- és Proppé Ragnarsson sérfræðingur undirrituðu í gær nýjan samstarfs- samning velferðarráðuneytisins og verkefnisins Heimilisfriðar. Gild- istími samningsins er eitt ár. Um er að ræða meðferðarúrræði fyrir einstaklinga sem beita ofbeldi í nánum samböndum, sem sálfræð- ingar hafa veitt um árabil sam- kvæmt samningi við stjórnvöld, áður undir heitinu Karlar til ábyrgðar. Að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins býður Heim- ilisfriður gerendum, körlum og kon- um, upp á meðferð með einstaklings- viðtölum og hópmeðferð. Í meðferðinni er miðað að því að ger- endur viðurkenni ábyrgð á hegðun sinni og vinni að breytingum. Samkvæmt ákvæðum samnings- ins veitir ráðuneytið þeim sérfræð- ingum sem að verkefninu koma styrk til þjálfunar eða endurmennt- unar til að styrkja þekkingu þeirra og stuðla að þróun þjónustunnar og frekari gæðum hennar. Samið við Heimilisfrið Samið Andrés Proppé Ragnarsson og Ásmundur Einar Daðason, fé- lags- og jafnréttismálaráðherra.  Meðferðarúrræði fyrir ofbeldisfólk Andaðu að þér fersku fjallaloftinu Brunaðu niður drifhvítar brekkurnar og upplifðu fullkomið frelsi. Skálaðu í heitu kakói og njóttu útsýnisins. Gerðu síðan vel við þig og þína í mat og drykk þegar kvölda tekur. Aldrei hefur verið auðveldara að njóta lífsins á skíðasvæðum Evrópu og Norður-Ameríku. SKÍÐAÁFANGASTAÐIR Verð aðra leið frá 17.900 kr. Verð frá 27.600 Vildarpunktum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.