Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018 ✝ Jón RagnarEinarsson fæddist 21. október 1928 í Lambhól við Þormóðsstaði í Skerjafirði. Hann lést í Veiðivötnum 9. september 2018. Foreldrar hans voru Einar Stein- þór Jónsson, f. 16. október 1897, d. 13. ágúst 1993, og Val- gerður Eyjólfsdóttir, f. 16. júlí 1898, d. 17. júní 1969. Systkini Jóns Ragnars eru María Einarsdóttir, f. 4. október 1927, d. 29. júní 2017, Steinþór Einarsson, f. 25. maí 1930, d. 3. mars 2014, og Hrefna Einars- dóttir, f. 20. janúar 1937. Eiginkona Jóns Ragnars er Erla Elíasdóttir, f. 10. september fjögur barnabörn: 1) Æsu Björk, f. 20. ágúst 1970, 2) Jón Emil Guðmundsson, f. 10. júlí 1985, maki Dórótea Høeg Sigurðar- dóttir, f. 9. apríl 1986, 3) Álfheiði Erlu Guðmundsdóttur, f. 2. des- ember 1993, unnusti Valgeir Daði Einarsson, f. 7. júlí 1993 og 4) Jón Ragnar Einarsson, f. 24. júní 2004. Barnabarnabarn Jóns Ragnars og Erlu er Sigurður Høeg Jónsson, f. 29. júlí 2017. Jón Ragnar var lærður húsa- smíðameistari og starfaði við það megnið af starfsævi sinni. Hann ólst upp við Skerjafjörð og bjó þar mestan hluta ævinnar. Þar kynntist hann snemma sjó- mennsku og veiði. Stundaði hann Veiðivötnin ásamt vinum á fimmtíu ára tímabili. Jón Ragnar dvaldi langtímum saman með fjölskyldu sinni á Ytra-Lágafelli á Snæfellsnesi. Hann var lista- maður í útskurði og rennismíði og tálgaði smáfugla. Útför Jóns Ragnars fer fram frá Langholtskirkju í dag, 21. september 2018, og hefst athöfn- in klukkan 13. 1932. Þau gengu í hjónaband 11. september 1954. Börn Jóns Ragnars og Erlu eru fjögur: 1) Bergljót Jóns- dóttir, f. 13. mars 1954, maki Oddur Bjarnason, f. 10. apríl 1935, 2) Val- gerður Jónsdóttir, f. 22. október 1958, maki Guðmundur Emilsson, f. 24. apríl 1951, þau skildu, 3) Fullburða, andvana fætt stúlkubarn d. janúar 1965, 4) Einar Steinþór Jónsson f. 28. ágúst 1966, maki Erna Lúðvíks- dóttir, f. 25. nóvember 1965, þau skildu. Unnusta Einars Steinþórs er Arnhildur Reynisdóttir, f. 6. september 1964. Jón Ragnar og Erla eiga Í dag kveð ég yndislegan eiginmann. Það var árið 1950 að ungur maður bauð 17 ára sveitastelpu upp í dans. Sá dans varð upphaf göngu okkar í gegnum 64 ára far- sælt hjónaband. Ég var nýflutt úr sveitinni og hafði fengið leyfi til að fara út á lífið með vinkonu minni. Við fór- um í Gúttó, sem þá var vinsæll dansstaður. Ég man enn þegar þessi fallegi strákur gekk yfir gólfið og bauð mér upp í dans. Við dönsuðum saman það sem eftir lifði kvöldsins. Síðan þá höf- um við gengið saman í gegnum lífið. Við eignuðumst yndisleg börn, barnabörn og barnabarna- barn. Þér var margt til lista lagt, þú lærðir trésmíði og laukst meist- araprófi í þeirri grein. Hagleik þinn og kunnáttu nýttir þú til að byggja fjölskyldunni heimili. Handverk þitt má líka finna á öll- um heimilum barnanna okkar, hvort sem er á Íslandi eða í Nor- egi. Það sem þú gerðir fyrir fjöl- skylduna þína sýnir best hvað hún skipti þig miklu máli, þú varst vakandi og sofandi yfir henni alla tíð. Ef þú vissir að það þyrfti að leysa eitthvert vanda- mál komu alltaf frá þér góðar hugmyndir, þú veltir hlutunum fyrir þér þar til lausnin var fundin. Þú varst fljótur að eignast vini og kunningja og ég man vel eftir þér sitjandi á bryggjusporðinum með grískum sjóara á eyjunni Paros í Grikklandi. Þið voruð í hrókasamræðum sem fóru fram á grísku og ís- lensku en að mestu á táknmáli. Eftir að samtalinu lauk gastu sagt okkur hinum margt um líf sjómannanna á eyjunni! Þú heillaðist af sveitinni minni, Ytra-Lágafelli og þar höfum við fjölskyldan átt margar unaðs- stundir. Afrakstur eljusemi þinnar blasir þar við hvert sem litið er. Í síðustu ferðinni okkar vestur vildir þú endilega bera vel á útihurðirnar sem þú smíðaðir fyrir gamla húsið. Þú nostraðir við að bera á þær svo þær þyldu nú vetrarveðrið og gladdist yfir því að þær væru nú bara „nokkuð vel smíðaðar“. Þær bera sannar- lega vitni um vandvirkni þína. Veiðivötnin hafa átt hug þinn og hjarta í áratugi. Það var alltaf ljúft að fylgjast með tilhlökkun þinni þegar leið að ferð í vötnin. Þar hefur þú lifað sælar stundir við veiðar með syni þínum og góðum vinum í 50 ár. Þakklátur, sæll og glaður lagð- ist þú til hvíldar eftir góðan dag í vötnunum umvafinn gamla góða svefnpokanum þínum í síðasta sinn. Erla Elíasdóttir. Elsku pabbi. Ferðalögunum okkar er lokið. Veiðiferðirnar, hjólaferðirnar og smíðaferðirnar verða ekki fleiri. Á ferðum okkar kenndirðu mér að hlusta á fuglana, lesa í skýin, dást að litlu mosatónni sem af einhverri óskiljanlegri þrautseigju er búin að vaxa og dafna þar sem henni ætti að vera það ómögulegt. Þú fórst með mig inn á hálendið þar sem við veidd- um í þeim fallegustu ám sem landið okkar geymir. Þú fórst með mig, sex ára gutta, inn í Veiðivötn og kenndir mér að elska þann stað. Þar kenndirðu mér að bera virðingu fyrir náttúrunni og bráðinni. Þú kenndir mér að það skiptir ekki máli þó að maður veiði ekki mikið. Þú kenndir mér gildi þagnarinnar alltumlykjandi sem krían rýfur stöku sinnum með stuttu og hljóðlátu gaggi þar sem hún svífur yfir vatninu í leit að æti. Saman dáðumst við að himbrimanum þar sem hann kaf- aði í kringum okkur, skaut svo upp kollinum skammt frá og vatnið perlaði á glansandi fjöðr- unum. Þú kenndir mér að aldur er af- stæður þegar þú komst með okk- ur í óbyggðir Grænlands til að fagna áttræðisafmælinu þínu. Þú hikaðir ekki við að sofa í tjaldi í sex nætur til að upplifa það stór- kostlega land. Minn aldur var líka afstæður þegar þú tókst mig með þér í tvo langa hjólreiðatúra þegar ég var 12 og 13 ára strák- ur. Í Skaftafell og svo til Akur- eyrar með viðkomu í uppáhalds- ánni okkar, Seyðisá á Kili. Þú kenndir mér að beita skóflu og haka og að hræra steypu, þú kenndir mér að vanda mig við allt sem ég geri. Þú reyndir að kenna mér að saga en ég er hræddur um að ég hefði þurft nokkur ár í viðbót svo sögin hefði farið að syngja rétt. Þú kenndir mér sjálfstraust þegar kemur að því að framkvæma ýmis verkefni. Þú kenndir mér líka auðmýkt: „Mundu bara að leita ráða hjá þér reyndari mönnum,“ nokkuð sem þú gerðir óspart sjálfur, jafnvel þó að þú værir reyndastur þeirra allra. Lífið kenndi þér útsjónarsemi sem þú svo reyndir að kenna mér. „Það er alltaf eitt ráð eftir“ var einn af uppáhaldsfrösum þín- um þegar mér virtist allt vera komið í óefni og ég minnist þess ekki að þú hafir nokkurn tíma orðið ráðþrota. Þú gerðir það sem þú ætlaðir þér og hikaðir ekki við að yfir- vinna ýmsar hindranir til að kom- ast að settu marki. Það sást vel í síðustu ferðinni okkar inn í Veiði- vötn, daginn sem þú kvaddir okk- ur. Þú vildir reyna við þann stóra í Ónefndavatni, vitandi að þetta væri líklega í síðasta sinn. Þrátt fyrir mæðina gengum við saman þann spöl sem þurfti til að kom- ast á þúfuna þína þar sem þú gast setið við hlið hvannarinnar. Á þúfuna þar sem við á síðustu ár- um plönuðum næstu skref fyrir vestan milli þess sem við horfð- um á himbrimana fljúga yfir eða fylgdumst með stangartoppnum kippast til þegar þeir stóru voru að spá í beituna. Þér varð að ósk þinni í þessari hinstu veiðiferð. Hjartað tók gleðikipp þegar stöngin fór að titra og Veiðivötn- in færðu þér þína síðustu gjöf. Einar Steinþór Jónsson. Elsku pabbi. Á kveðjustund birtast minningar um einstakan öðling og mannkostamann. Þú varst alltumvefjandi og um- hyggjusamur faðir og afi sem stóðst vaktina fram á síðasta dag, ávallt reiðubúinn að miðla af lífs- sýn þinni, gefa góð ráð og rétta hjálparhönd. Þú varst mannvin- ur, listamaður og náttúruunn- andi, einstök fyrirmynd sem gekkst götuna fram eftir veg af hógværð og lítillæti. Elsku pabbi, ég geymi í hjarta mér elsku þína alla og kveð þig með ljóði Jó- hannesar úr Kötlum, Jarðerni (úr Tregaslag, 1964). Af þér er ég kominn undursamlega jörð: eins og ljós skína augu mín á blóm þín eins og snjór hylja hendur mínar um grjót þín eins og blær leikur andardráttur minn um gras þitt eins og fiskur syndi ég í vatni þínu eins og fugl syng ég í skógi þínum eins og lamb sef ég í þínum mó. Að þér mun ég verða undursamlega jörð: eins og sveipur mun ég hverfast í stormi þínum eins og dropi mun ég falla í regni þínu eins og næfur mun ég loga í eldi þínum eins og duft mun ég sáldrast í þína mold. Og við munum upp rísa undursamlega jörð. Valgerður Jónsdóttir. Elsku afi. Nú þegar þú ert floginn frá okkur eins og farfugl- arnir minnist ég allra góðu stund- anna okkar saman. Á grunnskólaárum mínum vörðum við mörgum gæðastund- um saman. Ég bjó um hríð hjá ykkur ömmu á Seltjarnarnesi og eignaðist þar margar góðar minningar. Það var gaman að kynnast fjörunni með ykkur. Þú kenndir okkur öllum að virða náttúruna og að taka eftir fegurð hennar. Við tíndum skeljar og steina og upplifðum kraftinn í sjónum. Það var líka mjög gaman að vera úti í bílskúr hjá þér og fá að smíða með þér. Þú varst alltaf svo vandvirkur, flinkur og sér- staklega góður leiðbeinandi. Þú keyrðir mig í söngtíma og aðrar tómstundir í hverri viku. Í hvert skipti beiðst þú þolinmóður eftir mér og á leiðinni heim sungum við alltaf saman lögin sem ég hafði lært í tímanum. Þegar tími gafst fórum við stundum á skauta. Þú varst sá allra flottasti á svellinu og ég var alltaf svo stolt af að fá að skauta þér við hlið. Þú talaðir svo oft um augnablikið þegar stelpur komu til okkar á svellinu og spurðu mig hvort ég ætlaði að verða klár á skautum eins og þú, þá svaraði ég víst, „nei, ég ætla sko að verða söng- kona“. Þú varst svo mikill sögumaður og þú deildir oft með okkur eft- irminnilegum sögum úr lífi þínu. Sumar sögurnar og brandarana vorum við farin að þekkja mjög vel en í hvert skipti nutum við þess að hlusta á þig. Þegar við keyrðum vestur á Snæfellsnes var yndislegt að ræða um heima og geima við ykkur ömmu. Við vorum nefnilega ekkert að flýta okkur og þegar amma sagði við þig að þú gætir nú kannski aðeins gefið í, þá sagði ég við þig að það væri algjör óþarfi, „þú ert alltaf fremstur í röðinni, afi minn“. Þetta fannst ykkur mjög fyndið. Þú varst mikill fuglaáhuga- maður, kenndir mér að meta feg- urð þeirra og að krunka eins og krummi. Þegar ég sé fugla hugsa ég til þín. Fyrir vestan fylgdumst við með ungunum í hreiðrunum og töluðum við maríuerluna, hrossagaukinn, kríurnar niðri í fjöru og alla hina fuglana. Svo máluðum við saman fuglana. Þú varst svo mikill listamaður og náttúruunnandi. Seinna meir fórst þú að skera út fugla á listi- legan hátt og allir vildu eignast þessi fögru listaverk þín. En þú hugsaðir ekki bara til fuglanna heldur passaðir þú líka að músin í skemmunni fengi matarbita. Þú varst alltaf svo hugulsamur. Þannig mun ég ávallt minnast þín, elsku afi. Þú varst umvefj- andi og sýndir öllum þínum nán- ustu mikla athygli. Þú hvattir okkur til dáða og kenndir okkur að vanda okkur og flýta okkur hægt. Fyrir það er ég óendanlega þakklát. Þú féllst frá eftir yndis- legan dag með Einsa þínum í Veiðivötnum. Það eru nú ekki margir níræðir afar sem keyra yfir ár og veiða fisk eins og þú gerðir þennan síðasta dag þinn. Ég vona að þú njótir þess að fljúga með fuglunum, elsku afi. Ég veit að vænghaf þitt er það allra hlýjasta. Þín afastelpa og síli. Álfheiður Erla Guðmundsdóttir. Látinn er mikill heiðursmaður, Jón Ragnar Einarsson, nágranni okkar Elínar ásamt ágætri konu sinni Erlu, til margra ára. Jón tók á móti mér á svæðið á Sel- tjarnarnesi fyrir tæpri hálfri öld, þegar ég var niðri í skurði að moka fyrir grunni húss okkar El- ínar, og bauð okkur velkomin í nágrennið. Tókum við þegar tal saman og er ekki að orðlengja að þá strax tókst með okkur Jóni, og reyndar konu hans einnig, af- skaplega góður vinskapur sem aldrei sló skugga á. Jón var mikið góðmenni og greiðvikinn með af- brigðum. Maður hafði það á til- finningunni að hans mesta yndi væri að geta glatt aðra. Hann var húsasmíðameistari og gerði sér gjarnan far um að ráðleggja sér óreyndari manni í ýmsu sem þá grein varðaði þegar við Elín stóð- um í byggingaframkvæmdum. Við Jón áttum það til að setjast á steina sem umluktu lóð hans og taka tal saman þegar svo bar við. Okkar á milli töluðum við um að setjast á steinana og vissu báðir hvað við var átt. Ekki vorum við alltaf sammála, en það kom alls ekki að sök nema síður væri. Ekki vissi ég til að Jón væri flokksbundinn stjórnmálaflokki neins staðar, en ég upplifði hann sem mikinn jafnaðarmann. Þrátt fyrir það var hann þannig gerður að Elín sagði gjarnan að meiri sjálfstæðismanni en honum Jóni hefði hún aldrei kynnst, og átti þá við að hann væri of sjálfstæður til að vilja vera upp á aðra kominn, hann vildi bjarga sér sjálfur, og það gerði hann svo sannarlega. Jóni var margt til lista lagt. Hann var hagleikssmiður og bæði skar út og renndi ílát og skrautgripi úr tré; þetta var hans frístundaiðja alveg fram undir það síðasta. Hann var einnig mjög músíkalskur, þótt ekki vissi ég til að hann spilaði á önnur hljóðfæri en sög; en það gerði hann vel. Þessi tónlistaráhugi kemur meðal annars glöggt fram í öllum börnum þeirra hjóna. Jón bar mikla virðingu fyrir öllu jarð- nesku lífi og unni náttúrunni. Hann var dýravinur mikill; kisan okkar, hún Lúsý, elskaði Jón og hljóp alltaf á móti honum þegar hann kom á svæðið, enda átti Jón trillu sem hann gerði út í mörg ár frá Ægisíðunni og lumaði oftar en ekki á fiski handa kisu. Jón var hógvær og hæglátur en hörkuduglegur og seigur verkmaður, orðvar en lét þó vita ákveðið en hávaðalaust ef honum mislíkaði. Sérstaklega ef honum þótti að gengið væri á hlut minni máttar. Jón var bindindismaður á áfengi allt sitt líf. Hann var yfir- leitt fremur alvarlegur í bragði, en þegar hann ræskti sig var viðbúið að nú lumaði hann á skop- legri athugasemd. Og þá hlustuðu nærstaddir. Jón náði háum aldri en bar sig vel og var heilsuhraustur fram undir það síðasta, svo einhvern veginn fannst mér hann aldrei gamall. En dauðinn kemur óvænt, og nú syrgjum við góðan dreng. Blessuð sé minning Jóns R. Einarssonar. Elín og Agnar. Jón smiður sem kallaði mig síli. Ég kynntist Jóni smið held ég í fyrstu ferð minni í Veiðivötn árið 1998. Einar vinur minn Jónsson var oft búinn að tala um þessa veiðiparadís og svo var mér boðið að koma með þeim feðgum til veiða. Ég komst ekki fyrr en að kvöldi fyrsta veiðidagsins í slag- veðursrigningu og fann þá feðga við Grænavatn. Skildi ekkert hvað menn væru að gera þarna í þessu óveðri í svarta myrkri þar til ég sá þá draga stóra urriða, hvern af öðrum upp úr öldu- rótinu. Þetta var fyrsta af árleg- um veiðiferðum í Vötnin með þeim feðgum og hafa þær verið ómissandi hluti af sumrinu æ síð- an. Félagsskapur feðganna var stór hluti af upplifuninni og ekki síst fyrir krakkana mína sem fengu síðar að slást í hópinn. Veiðiferðir með Jóni voru líka sérlega barnvænar því krökkun- um fannst hann svo skemmtileg- ur og þetta voru líka einu veiði- ferðirnar þar sem varla sást áfengi. Jón hafði aldrei smakkað vín og það átti ekki heima í þess- um ferðum þó að hann hefði aldr- ei orð a því. Jón átti mörg smiðshandtök fyrir mig bæði í sumarbústaðn- um þar sem hann smíðaði fallega eldhúsinnréttingu með meiru og eins á Kvisthaganum. Við sátum þar eitt sinn yfir kaffibolla og Jón útlistaði fyrir mér möguleikana í stöðunni þar sem nokkrir gluggar voru orðnir fúnir. „Ungu mennirnir myndu nú bara skipta um gluggana en það kostar mikið og það er alveg hægt að stykkja þetta, sem kostar miklu minna. Og allt eru þetta nú veiðileyfi, Brjánn minn,“ klykkti hann út með. Sú speki kemur mér oft í hug þegar talið berst að pening- um og hvernig þeim er best varið. Ég hélt um tíma að Jón meinti þetta bókstaflega en skildi seinna að veiðileyfi voru í hans huga tákn fyrir allt sem er skemmti- legt og gefur lífinu gildi. Jón átti sínar rætur á Ægisíð- unni og sagði margar sögur af uppvextinum og síðar útgerðinni þar. Það lá því beint við þegar Guðrún dóttir mín átti að skrifa ritgerð um Ægisíðuna að heim- sækja Jón og Erlu til að afla heimilda. Frásögn Jóns varð uppistaðan í ritgerðinni sem varð verðlaunasmíð í Melaskólanum. En Jón hafði frá því Guðrún mundi eftir sér verið sérstakur fyrir það að vera með svo mikla veiðidellu að hann kallaði lítil börn síli! Jón var lítillátur, ljúfur og kát- ur og hafði sérlega góða nær- veru. Hann var góður sögumaður og gerði ekkert til þótt maður heyrði sumar sögur oftar en einu sinni. Það var mikil gæfa að fá að kynnast honum og eignast fyrir- mynd að því hvernig er hægt að eldast án þess að verða gamall. Brjánn Ingason. Mig langar að minnast vinar okkar með nokkrum orðum. Okkar leiðir lágu saman fyrir yfir 30 árum, ljúfur maður skráði sig í veiði í Veiðivötnum. Við tengd- umst strax góðum vináttu- böndum. Alltaf mátti vonast eftir yndislegu veðri þegar von var á Jóni og syni hans Einari, en Ein- ar gladdi oft okkur og gesti Veiði- vatna með trompetleik. Jón var snillingur í höndunum, gaf hann mér gripi sem hann var að vinna við í ellinni, prjónastokk, skálar og síðast lóu, sem hann vissi að ég dáði. Hann var aldrei ánægður með verkin sín, enda lítillátur. Rósir eru ekki rósir nema rauðar séu sagði hann og færði mér vönd í síðasta sinn. Botnfylli af kaffi og hálfan sykurmola þáði hann, svo voru sagðar sögur um dásemdir lands- ins okkar. Ég fullyrði að síðasti dagur okkar kæra Jóns var full- kominn, þeir feðgar nutu hans saman hér í Veiðivötnum, fiskur í Ónefndavatni og Skyggnisvatni, þaðan sem Jón fékk að keyra heim nýja LCR-inn hans Einars. Síðan tekur við alvara lífsins, tíminn liðinn, sár söknuður en vissa um betri tíma, það að vakna við sól og tvöfaldan regnboga lýs- ir best Jóni vini mínum. Megir þú hvíla í friði, kæri vinur. Bryndís Hanna Magnúsdóttir. Jón Ragnar Einarsson Hrafnhildur var ung að aldri þegar hún gekk inn um dyrnar á Verzlun- arbankanum og setti um leið svip sinn á umhverfið þar sem hún starfaði alla tíð síðan. Hún lét af störfum hjá bankanum, sem síðar varð Íslandsbanki árið Hrafnhildur Magnúsdóttir ✝ HrafnhildurMagnúsdóttir fæddist 18. febr- úar 1938. Hún lést 7. september 2018. Útför Hrafnhildar fór fram 20. sept- ember 2018. 2003, þá 65 ára gömul. Samstarfsfélagar hennar minnast hennar sérstaklega sem kraftmikillar og skemmtilegrar konu. Hún var góð í hópi og tilsvörin hennar þóttu skemmtileg, enda var hún óhrædd við að segja sína skoð- un, sem er mikill kostur. Bankinn þakkar fyrir áratuga samleið og við sendum aðstand- endum samúðarkveðjur. Birna Einarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.