Morgunblaðið - 21.09.2018, Side 36
Kvikmyndin Kona fer í stríð í leik-
stjórn Benedikts Erlingssonar verð-
ur framlag Íslands til Óskarsverð-
launanna 2019. Myndin var valin af
meðlimum Íslensku kvikmynda- og
sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA) í
rafrænni kosningu sem lauk aðfara-
nótt fimmtudags. Kosið var á milli
níu íslenskra kvikmynda og sam-
kvæmt upplýsingum frá Hlín
Jóhannesdóttur, formanni ÍKSA,
var metþátttaka í kosningunni nú.
Kona fer í stríð fram-
lag Íslands til Óskars
FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 264. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr.
Fylkir og Keflavík hafa tryggt sér
sæti í úrvalsdeild kvenna í fótbolta
fyrir keppnistímabilið 2019 eftir að
hafa endað í tveimur efstu sætum
1. deildar. Morgunblaðið fjallar ítar-
lega um þessi tvö lið í opnu íþrótta-
blaðsins í dag og ræðir við fyrirlið-
ana, Berglindi Rós Ágústsdóttur hjá
Fylki og Natöshu Anasi hjá Keflavík.
»2-3
Eru nýliðarnir klárir í
slaginn í efstu deild?
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Ed Sheeran heldur tónleika á Laug-
ardalsvelli laugardaginn 10. ágúst
2019. Tónleikarnir eru hluti af tón-
leikaferðalagi Sheerans sem hefst í
maí á næsta ári og lýkur í ágúst. Með-
al viðkomustaða eru Frakkland,
Portúgal, Spánn, Ítalía, Þýskaland,
Rússland og Danmörk en ferðinni lýk-
ur í Bretlandi.
Miðasala fyrir
alla tónleika tón-
leikaferðalags-
ins hefst
fimmtudaginn
27. september kl.
9. Miðasalan á
Íslandi fer
fram á
Tix.is/
ED.
Ed Sheeran á Laugar-
dalsvelli í ágúst 2019
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sigurþór Sigurðsson bókbindari hef-
ur forðað mörgum bókbandsverkum
frá glötun og hefur auk þess unnið
óeigingjarnt starf við að safna upp-
lýsingum um gamalt bókband og
bókbindara í yfir þrjá áratugi með
útgáfu í huga.
„Ég vinn fyrst og fremst við það
að binda inn bækur, ekki síst fyrir
bókasafnara,“ segir hann og vísar til
þess að hann rekur Bókbandsverk,
eigið bókbandsfyrirtæki í Reykja-
vík, og vinnur þar hálfan daginn auk
þess sem hann er í hálfu starfi hjá
Seðlabanka Íslands við sömu iðju.
Sigurþór hefur sankað að sér gíf-
urlega miklum upplýsingum um ís-
lenska bókbindara fyrri alda og bók-
band þeirra með það að leiðarljósi að
gefa út bók um sögu bókbandsins.
„Einn þáttur í því er að hafa uppi á
gömlu bókbandi sem hinir ýmsu
bókbindarar hafa bundið inn,“ segir
hann. Með varðveisluna í huga stofn-
aði hann svokallað bókbindarasafn
sem er sérsafn í Landsbókasafni Ís-
lands. „Bókband eftir yfir 100 bók-
bindara er í safninu,“ áréttar hann.
Einn af þeim síðustu
Bókband á sér langa sögu og
margir bókbindarar, jafnt heima
sem erlendis, hafa getið sér gott orð
fyrir verkið. Bókbindarar eru engu
að síður ekki á hverju strái. „Þeim
fer fækkandi,“ segir Sigurþór. „Ég
er með um 1.000 bókbindara á skrá
hjá mér frá síðustu 500 til 600 árum,
en ég er einn af þeim síðustu í hand-
bandinu.“
Sigurþór hefur kynnt sér vel
bókaútgáfu í landinu með bókband
og bókbindara í huga. Hann hefur
keypt margar bækur og segist hafa
fengið aðstoð við að fjármagna kaup-
in á dýrari bókum, sem allar enda á
bókbindarasafninu. „Ég kaupi líka
gamlar bækur, ef þær eru í gömlu
bandi, þótt ég viti ekki hver batt þær
inn, í þeirri von að ég geti fundið út
úr því hver bókbindarinn var.“
Sigþór segir að pappírsskortur
fyrr á öldum komi sér gjarnan vel.
„Bókbindarar notuðu tiltækan papp-
ír í saurblöðin og oft voru þetta bara
sendibréf til þeirra. Þannig get ég
séð nafn viðtakanda sem líklega er
jafnframt bókbindarinn.“
Grúsk á Þjóðskjalasafninu hefur
líka opnað ýmsar dyr. „Þar hef ég
rekist á ýmislegt sem hefur komið
mér á sporið,“ segir hann.
Fyrir um 20 árum tók Sigurþór
saman og gaf út ágrip af sögu bók-
bandsins í örfáum eintökum en hann
segir að ritun bókarinnar gangi seint
vegna fjárskorts. „Ég hef sótt um
styrki til útgáfunnar án árangurs en
ég ræð ekki við þetta einn,“ segir
hann.
Morgunblaðið/RAX
Bókbindarinn Sigurþór Sigurðsson við um aldargamlan pappírsskurðarhníf á vinnustofu sinni í gær.
Vinnur að bók um bók-
band og bókbindara
Sigurþór Sigurðsson forðar verðmætum frá glötun
MÚtlitið er málið en ekki … »7
WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
*Verðmiðast viðMyWOWaðild ogWOWBasic aðra leiðmeð sköttum
ef greitt ermeðNetgíró. Gildir þegar bókað er flug báðar leiðir.
SÓL Í
VETUR
TENERIFE FRÁ
16.999kr.*
Tímabil: nóv.–des.
Upplifðu einstaka veðursæld á ævintýraeyjunni
Tenerife í vetur. Njóttu þess að virða fyrir þér
stórbrotna náttúru, ganga um gullfallegar strand-
lengjur og borða á fyrsta flokks veitingastöðum.
Hafðu það notalegt með WOW í vetur.