Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 6

Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018 Menning ogmatur Fjölbreytt viðburðadagskrá Opið alla daga vikunnar. Viðburðardagatal á norraenahusid.is AALTOBistro Dómsuppkvaðning i Guðmundar- og Geirfinnsmálinu Fagnaðarlæti brutust út eftir að sýknudómur var kveðinn upp í Hæstarétti í gær. Aðstandendur dómfelldu, verjendur þeirra og aðrir sem tengjast Guðmundar- og Geirfinnsmálinu með einhverjum hætti ræddu við fjölmiðlafólk, sem fjölmennti í dómhús Hæstaréttar við Arnarhól, en í gær leyfði rétturinn í fyrsta sinn beinar útsendingar frá dómsuppkvaðningu. Á myndinni að ofan má sjá Tryggva Rúnar Brynjarsson, barnabarn Tryggva Rúnars Leifssonar, eins dómfelldu, ræða við Gísla Guðjónsson réttarsálfræðing, en hinn síðarnefndi lagði mat á játningar dómfelldu. Í bakgrunni er Jón Steinar Gunnlaugsson, verjandi Kristjáns Viðars Viðarssonar. Jón Magnússon, verjandi Tryggva Rúnars, sagði rannsóknir Gísla hafa verið gríðarlega þýðingarmiklar. Þær hefðu opnað augu margra fyrir því að ekki væri endilega hægt að byggja á játn- ingum heldur þyrfti að skoða fleiri atriði. Morgunblaðið/Hari Fjölmargir lögðu leið sína í Hæstarétt Íslands til að hlýða á dómsorðið Magnús H. Jónasson Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Verjendur sakborninga í Guð- mundar- og Geirfinnsmálinu lýstu yfir ánægju með sýknudóm Hæsta- réttar í gær. Þeirra á meðal var Ragnar Aðalsteinsson, verjandi Guðjóns Skarphéðinssonar. „Ég hefði hins vegar viljað fá í forsendur dómsins afstöðu Hæsta- réttar til málsmeðferðarinnar allt frá því þetta fólk var handtekið á sínum tíma og þar til dómur gekk árið 1980. Þannig væru send skila- boð til dómstóla framtíðarinnar um að gæta þess að gera ekki svo stór- felld mistök sem gerðust í þessu máli,“ sagði hann. Ragnar krafðist þess að lýst yrði yfir sakleysi dómfelldu, en það gerði Hæstiréttur ekki. „Ég gerði mér ekki miklar vonir um að slíkt áræði og kjarkur kæmi fram í dómnum en að sjálfsögðu tel ég að það hefði ver- ið samkvæmt lögum að lýsa því yf- ir,“ sagði hann og benti á að for- dæmi væru fyrir því í öðrum löndum að lýsa sakborninga sak- lausa í endurupptöku eftir 20 ára fangelsi. „Sýknaður maður er saklaus“ Jón Steinar Gunnlaugsson, verj- andi Kristjáns Viðars Viðarssonar, lýsti einnig yfir ánægju með sýknu- dóminn. „Það er loksins búið að ná réttlætinu fram í þessu máli. Þessir sakborningar eru sýknaðir af þess- um ákæruefnum eins og hefði átt að gera strax árið 1980 að mínum dómi,“ sagði hann, en Jón Steinar telur sýknudóm fullnægjandi dóm fyrir ákærðu. „Sýknaður maður er saklaus samkvæmt íslenskum lög- um og öllum sjónarmiðum,“ sagði hann og benti einnig á að lexía fæl- ist í málinu fyrir þjóðina. „Af þessu skelfilega máli ætti þjóðin að geta dregið þær ályktanir að láta ekki einhvern meintan al- mannaróm eða viðhorf almennings ráða dómum dómstólanna,“ sagði hann. „Það megum við aldrei gera og hér í dag var undið ofan af alveg hræðilegu dæmi um að dómstólar hafi látið undan slíku. Vonandi læra menn af því,“ sagði hann. Ríkið greiði leið fyrir bætur Jón Magnússon, verjandi Tryggva Rúnars Leifssonar, úti- lokar ekki að farið verði fram á að dómfelldu verði bætt tjón sitt. Leggjast þurfi yfir það með hvaða hætti það geti verið hægt. „Það er næsta mál að skoða það. Mér finnst eðlilegt að ríkisvaldið greiði leið fyr- ir það að greiddar séu bætur þegar svona illa er farið að einstaklingum. Þetta er mikill sársauki, erfiðleikar og í rauninni pyntingar sem áttu sér stað hjá þessu fólki,“ sagði hann. Oddgeir Einarsson, lögmaður fjölskyldu Sævars Ciesielskis, kvaðst ánægður, en hann gerði ekki kröfu um það fyrir hönd Sævars að lýst yrði yfir sakleysi hans líkt og hluti verjenda gerði. „Dómkrafan er sýkna og það er fallist á hana. Ég reyndar óskaði eftir því að það yrði fjallað efnislega um málið, en það er nokkuð sem er mat Hæstaréttar. Mér sýnist á lestrinum að dómurinn hafi bara sýknað af þeirri ástæðu að bæði ákæruvaldið og verjendur kröfðust sýknu,“ sagði hann. Fjöl- skylda Sævars vonaðist til þess að efnislega yrði farið ofan í málið að sögn Oddgeirs, en hann segir aðal- atriðið að sakborningar séu hreins- aðir af sökunum. „Með þessum dómi teljast þeir saklausir af þessu og það er aðalatriðið,“ sagði hann. Stærsti sigur sakaðs manns Davíð Þór Björgvinsson, settur ríkissaksóknari í málinu, sagði að niðurstaðan kæmi ekki á óvart. Fljótt á litið færi Hæstiréttur stystu leið og sýknaði í samræmi við kröf- ur ákæruvaldsins. Spurður hvort dómurinn hefði mátt vera ítarlegri hvað varðar þá meðferð sem sak- borningar fengu áður en dómur féll árið 1980 sagði Davíð Þór að það yrðu verjendur dómfelldu að meta. „Eins og ég sagði í ræðu minni þegar ég flutti málið í dómsal, þá getur sakaður maður ekki unnið stærri sigur í dómsal en að vera sýknaður,“ sagði hann og benti á að málið ætti sér mjög langan aðdrag- anda. „Til að ná fram þessari lög- fræðilegu niðurstöðu hefur málið verið margrannsakað. Hvort þeir sem standa að dómfelldu, og nú sýknuðu, telji þetta vera fullnægj- andi, það er auðvitað þeirra að meta. Ég hef engin tæki og tól til að gera meira en gert hefur verið hér í dag,“ sagði hann. Aðalatriðið að sýkna hafi verið niðurstaða dómsins  Verjandi segir eðlilegt að ríkið greiði leið fyrir bætur Morgunblaðið/Hari Verjendur Eftir dómsuppkvaðningu tókust verjendur dómfelldu í hendur. „Þetta er auðvitað tilfinningaríkt augnablik og mikill léttir að Hæsti- réttur skuli hafa, án fyrirvara, sýknað,“ sagði Erla Bolladóttir, einn sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, eftir að dóms- úrskurður lá fyrir. Erla var sú eina af þeim sem voru sakfelld á sínum tíma sem ekki fékk endurupptöku máls síns. Hún var ekki sakfelld fyrir morð og hvarf Guðmundar Einarssonar og Geirfinns Einars- sonar heldur fyrir meinsæri. Sá hluti málsins var eini hluti þess sem ekki var endurupptekinn. „En þetta er auðvitað ekki búið. Sigur réttlætis er ekki kominn fyrr en búið er að sýkna alla af meinsæri líka. Við erum þrjú sem sitjum eftir með meinsæri, núna kæri ég niður- stöðu endurupptökunefndar því hún var í hæsta máta vafasöm í mínu máli,“ sagði Erla. Hún sagðist myndu fara með málið fyrir Héraðsdóm og að undir- búningur þess væri hafinn. „Ég vildi óska að það hefði verið hægt að klára þetta allt núna. Þetta er orðið ofboðslega langt,“ sagði Erla. mhj@mbl.is „Vildi óska að það hefði verið hægt að klára þetta“ Morgunblaðið/Hari Erla Bolladóttir Hún sagði niður- stöðuna vera mikinn létti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.